18.01.1961
Sameinað þing: 32. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í D-deild Alþingistíðinda. (2938)
140. mál, utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúar þess erlendis
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Þessi till. fjallar um það að fela ríkisstj. að láta endurskoða löggjöfina um utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúa þess erlendis.
Þessi löggjöf er orðin 20 ára gömul. og hafa að sjálfsögðu margar breytingar orðið á þessum málum síðan og aðstæður mjög breytt. Löggjöfin var þá undirbúin með tiltölulega litlum fyrirvara, vegna þess að Danir höfðu farið með utanríkisþjónustu okkar fram að þeim tíma, en það samband skyndilega rofnað og við þess vegna orðið að taka þjónustuna að okkur án nokkurs sérstaks undirbúnings. Af þeim ástæðum er eðlilegt, að það séu ýmsir ágallar á þessari löggjöf og nauðsynlegt sé að endurskoða hana. Einn ágallinn er m.a. sá, að í lögunum eru engin ákvæði um, hvar skuli hafa sendiráð, og þess vegna hefur í framkvæmdinni orðið allmikið handahóf, hvar Ísland hefði sendiráð í öðrum löndum. Það er áreiðanlega til bóta, að um þetta verði sett föst ákvæði í lögin um utanríkisráðuneytið og ekki stofnað til nýrra sendiráða öðruvísi en að það sé hverju sinni ákveðið með breytingu á þeim lögum.
Það er lagt til í till., að þessi endurskoðun skuli fara fram í samráði við alla þingflokkana, og er þetta byggt á því, að þó að menn kannske greini á um sjálfa utanríkismálastefnuna, þá sé heppilegt, að skipan þessara mála sé ákveðin í samráði við alla flokkana, ef það er mögulegt, og að hún sjálf þurfi þess vegna ekki að vera deiluefni á milli þeirra.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta mál á þessu stigi, en legg til, að umr. verði frestað og till. vísað til utanrmn.