01.02.1961
Sameinað þing: 35. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í D-deild Alþingistíðinda. (2946)
146. mál, sjálfvirk símstöð í Borgarnesi
Flm. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. ástæðan til þess, að ég gerði till. um, að þessari till. yrði vísað til fjvn., er sú, að ég man eftir því, að slíkar till. hafa verið þar til meðferðar á fyrri þingum. Man ég þar eftir símstöð í Vesímanneyjum og símstöð á Akranesi að minnsta kosti. Af þeirri ástæðu gerði ég till. um, að þessi till. færi þangað. Það er hins vegar ekkert kappsmál frá minni hendi, í hvaða nefnd þetta mál fer,
heldur hitt, að það fái afgreiðslu, og ég get því fallizt á allshn., enda verði þá tryggt, að málið verði afgreitt þaðan.