01.02.1961
Sameinað þing: 35. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 937 í D-deild Alþingistíðinda. (2959)
153. mál, vaxtakjör atvinnuveganna
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Eins og þegar hefur komið fram í framsöguræðu hv. flm., hef ég deyft mér að bera fram brtt. við þá þáltill., sem hér liggur fyrir. Brtt. er á þskj. 305, og vil ég leyfa mér að fara um það nokkrum orðum, hvað fyrir mér hefur vakað.
Ég hygg, að okkur hv. flm. þessarar þáltill., sem hér er til umræðu, sé báðum jafnljós nauðsyn þess, að íslenzkum atvinnuvegum verði séð fyrir nægilegu fjármagni með svo hagstæðum kjörum sem aðstæður hverju sinni leyfa. Við munum einnig sammála um það, að ef skynsamlegar líkur séu fyrir því, að athuganir gætu greitt fyrir lausn þessa viðfangsefnis, þá megi ekki horfa í þann kostnað og fyrirhöfn, er framkvæmd þeirra kann að hafa í för með sér. Hitt tel ég satt að segja meira álitamál hvort ávinningur sé í því að stofna til samanburðar í þessu efni við það ástand, sem kann að ríkja í nágrannalöndum okkar, þar sem það er ávallt svo með allan samanburð við önnur lönd á sviði efnahagsmála, að það er erfitt að gera hann, vegna þess að aðstæður eru gjarnan svo ólíkar, og jafnvel þó að slíkur samanburður fengist, er auðvitað fráleitt að slá því föstu, að hægt sé að samræma þá kosti, sem við eigum við að búa, því, sem þar gerist. Mér finnst ærið hæpið að halda því fram, eins og virðist koma fram í þessari tillögu, að þótt atvinnuvegir nágrannalandanna kunni að búa við betri vaxtakjör en íslenzkir atvinnuvegir, þá sé í lófa lagið að skapa sömu kjör í þessum efnum hér, og mun ég víkja nánar einmitt að þessu atriði síðar. Á sama hátt er það að mínu áliti ekki heldur raunsæi, þegar kröfur um bætt kjör til handa verkafólki og öðrum launþegum eru rökstuddar með því, að kaupmáttur launa einhvers staðar annars staðar, svo sem á Norðurlöndum eða jafnvel í Bandaríkjunum, sé meiri en hér. Ég skal ekki bera neitt á móti því, ,þó að erfitt sé að gera slíkan samanburð. að kaupmáttur verkamannslauna sé nú eitthvað meiri á Norðurlöndunum en hér. Ég tel líka, og um það hugsa ég að sé ekki neinn ágreiningur á milli hv. alþm., hvar í flokki sem þeir annars eru, að æskilegt sé, að íslenzkir verkamenn búi við ekki lakari launakjör en gerist á hinum Norðurlöndunum og jafnvel ekki lakari launakjör en í Bandaríkjunum. En spurningin, sem þarf að svara, er sú, hvort Það sé yfirleitt mögulegt að skapa hér sams konar kjör eða a.m.k. á skömmum tíma. Það er auðvitað hægt að hækka kaupgjaldið nógu mikið, en aðalatriðið er, hvort það mundi ráða bót á þessu. En það er annað mál en það, sem hér liggur fyrir, og skal ég ekki fara nánar út í það.
Það er fjarri mér að vilja gera minna úr því en efni standa til, hvert hagsmunamál það sé fyrir íslenzka atvinnuvegi að eiga kost hagkvæmra rekstrarlána. En ég get þó ekki látið hjá líða í þessu sambandi að minnast með nokkrum orðum á hinn að mínu áliti fráleita málflutning hv. stjórnarandstæðinga í sambandi við þessi vaxtamál Þá má í fyrsta lagi nefna, að þýðing vaxbanna fyrir afkomu atvinnuveganna hefur verið stórkostlega ýkt, og því miður var ræða hv. flm. engin undantekning í þeim efnum. Annars hafa ýmsir hæstv. ráðherrar að undanförnu gert grein fyrir þessu máli, m.a. sýndi hæstv. viðskmrh. nýlega fram á það í umr. hér á hv. Alþ., á hvaða blekkingum það er byggt, að vextirnir hafi svo geysimikla þýðingu. Ég vil aðeins í sambandi við þetta nefna upplýsingar, sem vera má að vísu að áður hafi komið hér fram, þó að ég hafi ekki orðið var við það, en það eru upplýsingar frá reikningaskrifstofu sjávarútvegsins um hlutdeild einstakra kostnaðarliða í útgerð vélbátanna. Niðurstöður þessarar skýrslu eru þær fyrir árið 1958, að vextir af rekstrarlánum hafi það ár numið 0,77% af rekstrarkostnaði vélbátaútvegsins í heild. Það ætti að vera auðsætt af þessari tölu, sem ég sé ekki ástæðu til að véfengja, — hér er um að ræða stofnun, sem rekin er af Fiskifélagi Íslands, og mér er ekki annað kunnugt en þessi stofnun og þeir sérfræðingar, sem þar vinna, njóti fyllsta trausts, - að lækkun vaxta innan þeirra takmarka, sem um getur verið að ræða, getur ekki haft neina verulega þýðingu fyrir afkomu bátaútvegsins a.m.k. og þá ekki heldur fyrir samkeppnisaðstöðu hans gagnvart öðrum löndum. Það er auðvitað skiljanlegt frá sjónarmiði útvegsmanna, þó að þeir geri sér e.t.v. ljósara en nokkrir aðrir, að hér er ekki um þýðingarmikinn kostnaðarlið að ræða, að þeir vilji hafa þennan tilkostnað sem lægstan.
Annað atriði get ég ekki heldur látið hjá líða að minnast á, sem mjög hefur einkennt málflutning hv. stjórnarandstæðinga í sambandi við þessi vaxtamál, og hann er sá, að ætíð hefur einhliða verið einblínt á þá hlið málsins, sem snýr að þeim, sem hafa peninga að láni. Það er yfirleitt varla minnzt á þá hliðina, sem snýr að sparifjáreigendum, fremur en hún væri ekki til. Í þessu sambandi kemur mér í hug, að það var fyrir tveimur árum í þingveizlu, að hv. 1. þm. Norðurl. v. flutti þar brag, þar sem efnið var það, að þáv. stjórn átti að hafa falið einum af forustumönnum, þjóðarinnar að leggja leið sína til tunglsins og ræða við karlinn í tunglinu um möguleika á því að fá lán úr sparisjóði þeirra tunglbúa. Bragur þessi var ágætlega ortur og margt í honum hnyttilegt, enda klöppuðu þingmenn höfundi mjög lof í lófa, sem fyllilega var að makleikum. Það, sem vakti fyrir höfundi, var auðvitað ekki annað en að skemmta í góðum fagnaði, og það tókst með ágætum. Hitt vakti ábyggilega ekki fyrir honum, þó að það hafi síðar komið fram, að það einkennir málflutning hv. flokksbræðra hans í þessum vaxtamálum, að þeir álykta svo sem það væri raunverulega karlinn í tunglinu, sem fengi vextina. Það er talað um það. að háir vextir séu svo og svo mikil byrði fyrir þjóðina í heild. Þetta væri satt, ef það væri rétt, að það væri karlinn í tunglinu, sem fengi vextina. En nú vitum við allir, að það er ekki svo. Bankarnir hafa ekki grætt á þeirri vaxtahækkun, sem framkvæmd hefur verið. Þvert á móti hefur bilíð milli útlánsvaxta og innlánsvaxta verið þrengt frá því, sem áður var, og er það út af fyrir sig sízt að lasta. Það, sem hér er um að ræða, er því auðvitað ekki annað en það, að það á sér stað yfirfærsla á peningum frá þeim, sem skulda, og til þeirra, sem eiga sparifé. Hvort vextirnir eru hærri eða lægri, gerir þjóðina sem heild þess vegna hvorki betur né verr setta. Þetta ætti í rauninni að vera svo sjálfsagður og auðsær hlutur, að um hann ætti ekki að þurfa að ræða hér á Alþingi, en því miður hefur málflutningur hv. stjórnarandstæðinga í þessu máli verið slíkur, að full ástæða er til þess að nefna þetta atriði.
En víkjum nú aftur að þáltill. og efni hennar. það er vitanlega alveg rétt, sem fram kom í framsöguræðu hv. flm., að vextir eru hærri hér á landi en í nágrannalöndum okkar. Það mun eiga við um öll Vestur-Evrópulöndin, að vextir eru þar yfirleitt lægri en hér. Þetta er staðreynd, sem enginn getur borið á móti. En hins vegar ber auðvitað að spyrja í sambandi við þetta: Er nauðsynlegt, að svo sé. eða hvaða nauðsyn ber til þess, að vextir séu a.m.k. í bili hærri hér en þar? Hvernig stendur á því, að vaxtakjörin eru önnur hér en í hinum Vestur-Evrópulöndunum, og hvaða leiðir mundu til úrbóta, ef íslenzkir atvinnuvegir búa í þessu efni við lakari kjör, sem ekki er vafi á að er staðreynd í bili? Svarið við fyrstu spurningunni. hvers vegna vextir séu hærri hér en í öðrum Vestur-Evrópulöndum, er blátt áfram það, að það er vegna þess, að við erum fátækari að fjármagni en þau. Vextirnir eru það, sem menn greiða fyrir að fá fjármagn til umráða, og eru auðvitað lægri þar, sem gnægð er af fjármagni, heldur en þar, sem skortur er á því, á sama hátt og það þarf engan að undra það t.d., að vínber séu dýrari á Íslandi en á Ítalíu. Á Ítalíu geta þau vaxið hvar sem er án nokkurrar teljandi fyrirhafnar, en hér verða þau ekki ræktuð nema með ærnum kostnaði, svo að öllum er ljóst, að vínberin hljóta að verða dýrari hér en þar. En sama máli gegnir auðvitað um öll önnur gæði, að þau verða þeim mun dýrari sem meiri skortur er á þeim og meiri fyrirhöfn að afla þeirra. En ég held, að það geti ekki verið um það neinn ágreiningur, að fjármagnsskortur er meiri hér á landi en í öðrum Vestur-Evrópulöndum. Lítum t.d. til Vestur-Þjóðverja í þessu efni. Það var nýlega sagt frá því í blöðum og útvarpi, að Vestur-Þjóðverjar væru nú í þann veginn að velta Alþjóðabankanum og einhverjum fleiri alþjóðlegum lánastofnunum stór lán. Svona mikið fjármagn hafa þeir til umráða, að þeir geta lánað í stórum stíl alþjóðlegum lánastofnunum. Hvernig erum við staddir í þessu efni? Í sambandi við umr. um efnanagsmálin á s.l. vetri var það upplýst, að við værum líklega skuldugastir allra þjóða, ef til vill væri það ein eða tvær, sem færu fram úr okkur í því efni. Þetta var út af fyrir sig ekki vefengt af neinum, hversu mikill ágreiningur sem var um efnahagsmálatillögurnar að öðru leyti. Því miður mun þetta síður en svo hafa breytzt okkur í hag síðan, enda ekki gert ráð fyrir því þá, að ekki yrði um einhverja skuldaaukningu að ræða á þessu ári. En út í það atriði sé ég ekki ástæðu til að fara nánar hér, því að það er alls ekki ætlun mín að fara að efna hér til neinna almennra stjórnmálaumræðna.
Ástæðan til þess, að í Vestur-Þýzkalandi eru vaxtakjörin betri en hér, er blátt áfram sú, að Þjóðverjar standa í þessu efni á þurru landi, en við erum í vatni a.m.k. upp að mitti. Ég hlýddi hér á dögunum á umr. í hv. Nd., .þar sem hv. 5. þm. Norðurl, v. (BP) sagði þá sögu, sem vakti nokkra kátinu meðal hv. þm., að bóndi norður í Þingeyjarsýslu hefði orðið fyrir því óhappi, þegar hann hleypti kálfunum út úr fjósi sínu, að þeir hlupu allir út í vatn eða á, sem var þar nálægt, og fórust. Gáfnafar aumingja kálfanna var ekki meira en það, að þeir gerðu ekki mun á landjörðinni og vatninu. Að áliti hv. þm. átti þetta einmitt við um okkur hagfræðingana, að við gætum ekki heldur gert greinarmun á vatni og þurru landi. En því miður virðist það nú vera þannig, að það eru fleiri en kálfarnir og hagfræðingarnir, sem gera ekki mun á vatni og þurru landi. Hv. framsóknarmenn virðast sekir um það sama í þessum lánamálum, ef þeir undrast það, að vaxtakjör hér á Íslandi skuli ekki geta verið jafngóð og í Vestur-Þýzkalandi og öðrum Vestur-Evrópulöndum.
En af hverju stafar þá fjármagnsskorturinn hér á landi? Það, sem mestu veldur um það, er að mínu áliti annars vegar aðbúðin að sparifjáreigendum og hins vegar meðferð okkar á því fjármagni, sem við höfum að undanförnu haft til umráða, því þó að við séum nú í fjárkröggum, hefur ekki alltaf svo verið, og vissulega höfum við undanfarin ár a.m.k. frá því að seinni heimsstyrjöldinni lauk haft mikla fjármuni til umráða og lagt í mikla fjárfestingu. Árin 1945–51 nam fjárfestingin hér á landi samkv. upplýsingum frá Framkvæmdabankanum 6 milljörðum og 200 millj. kr., og á árunum 1951-58 nam fjárfestingin 6 milljörðum og 500 millj. kr. Miðað við fyrra tímabilið, mun láta nærri, að fjárfesting hafi numið um 30% af þjóðartekjunum, sem er geysimikið, þegar tekið er tillit til þess, að í þessu er þó ekki talin fjárfesting til íbúðanhúsa, sem er mjög stór liður í fjárfestingunni, þannig að eingöngu það, sem lagt hefur verið í aukningu framleiðslutækjanna, hefur numið 6 milljörðum og 200 millj. kr. eða um 30% af þjóðartekjunum á þessu árabili. En hver hefur svo framleiðsluaukningin orðið á þessu sama tímabili? Hvað hafa raunverulegar þjóðantekjur aukizt? Jú, niðurstaða Framkvæmdabankans er sú, að þær hafa ekki aukizt neitt, heldur þvert á móti minnkað um 400 millj., um hvorki meira né minna heldur en 400 millj. kr. Á seinna tímabilinu, frá 1951–58, er útkoman að vísu nokkru skárri, þó að raunin muni vera sú, að hlutfallið á milli fjárfestingar og aukningar þjóðartekna hefur einnig þá verið óhagstæðara en í nokkru öðru Vestur-Evrópulandi, og það hef ég heyrt, að erlendir hagfræðingar, sem hér hafa verið. hafi undrað sig mjög á því, hvernig yfirleitt væri hægt að leggja í svona mikla fjárfestingu, án þess að af því leiddi nokkra framleiðsluaukningu.
Nú er auðvitað rétt, að það komi fram, að að nokkru leyti er hér um óviðráðanlegar orsakir að ræða, nefnilega þær, að eftir styrjöldina breyttust verzlunarkjörin gagnvart öðrum löndum okkur í óhag. Hlutfallið á milli verðmætis útflutnings og innflutnings raskaðist okkur í óhag. En útflutningurinn er þó aldrei nema um það bil þriðjungur af þjóðartekjunum, og auk þess munu verzlunarkjörin, þegar þau voru einna óhagstæðust, ekki hafa versnað um meira en 30% frá því, sem var á stríðsárunum. En það var þegar þau urðu allra áhagstæðust, svo að þessi skýring ein nægir auðvitað ekki í þessu sambandi.
Í stuttu máli eru að mínu áliti þrjár orsakir, sem hér eru að verki og skýra það í senn, hvað lítill árangur hefur orðið af þeirri fjárfestingu, sem við höfum lagt í, og þá óhugnanlegu skuldasöfnun, sem hér hefur átt sér stað. Af þessum orsökum vil ég fyrst nefna það hagkerfi, sem við höfum búið við, haftabúskapinn og framkvæmd hans, alræði hinna pólitísku nefnda hvað snertir bæði ákvörðun um fjárfestingu, notkun gjaldeyris o.s.frv. Ég minntist einhvern tíma á það hér á hv. Alþ., að ein af meginorsökum efnahagsvandamála okkar væri sú, að pólitísk sjónarmið réðu meira en efnahagsleg sjónarmið um skipan hagmála hjá okkur og m.a. því. í hvers konar fjárfestingu væri ráðizt. Hv. framsóknarmenn reyndu að snúa út úr þessum ummælum og vildu leggja í þau þá merkingu, að með pólitískri fjárfestingu væri átt við fjárfestingu utan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur, en með efnahagslegri fjárfestingu væri átt við fjárfestingu, sem væri innan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur. Hér er auðvitað um algeran útúrsnúning að ræða og blandað hér inn í alveg óskyldu málefni, sem ég alls ekki ræddi, nefnilega hvar ætti að staðsetja hin. einstöku fyrirtæki. Það, sem ég átti við og er óbreytt skoðun mín enn í dag., er þetta, að það er nú einu sinni staðreynd, að hinar pólitísku nefndir, sem skipaðar eru til þess að hafa það verkefni með höndum að úthluta gjaldeyris- og fjárfestingarleyfum og hvað það nú er, taka, eins og eðlilegt er, þar sem þær eru skipaðar af stjórnmálaflokkunum, fyrst og fremst tillit til þess, hvað sé hagkvæmt pólitískt, sem engan veginn þarf að fara saman við það, sem frá efnahagslegu sjónarmiði er skynsamlegt hverju sinni. Þeirra trúnaðarstarf er það hvers um sig að sjá fyrir því. að hlutur fyrirtækja, einstaklinga og stofnana, sem viðkomandi flokkur ber fyrir brjósti, verði ekki fyrir borð borinn hvað snertir úthlutun innflutningsleyfa, lána, fjárfestingarleyfa o.s.frv. Svo er starfað á þann hátt, — þar eð það hefur aldrei verið svo, að neinn einn flokkur hafi haft meiri hluta í þessum nefndum, og er það út af fyrir sig sízt að lasta, — að hver um sig reynir að ná samkomulagi við einhvern annan og segir: Ef þú gerir þetta fyrir mig, þá geri ég þetta fyrir þig. — En það er síður en svo trygging fyrir því og síður en svo líkur fyrir því, að það, sem út úr þessum pólitísku hrossakaupum á þessum vettvangi kemur, verði það, sem gefi þjóðarbúinu mestan arð, því að það atriði verður í þessu sambandi aukaatriði.
Annað atriði má líka nefna í þessu sambandi og það er einmitt vaxtapólitíkin. Lengst af á þessu árabili hefur sú stefna verði rekin að hafa vextina lága, og sérstaklega átti það þó við fyrir 1950. En einmitt það, að vextir eru lágir, þrátt fyrir það þó að fjármagnsskortur sé, skapar möguleika á því að nýta fjármagnið verr en ella mundi vera. Það, að vextirnir eru lágir, gerir mönnum einmitt mögulegt að taka há lán til framkvæmda, sem lítið gefa í aðra hönd, svo að að nokkru leyti hefur þetta atriði einnig verið að verki.
En þá kem ég að því atriðinu, sem er þó að mínu áliti langsamlega þýðingarmest, og það er verðbólgan, sem í senn hefur hindrað eðlilega sparifjármyndun og valdið mikilli fjármunasóun. Sem dæmi um verðbólguna og áhrif hennar í þessu efni má nefna það, að við gætum hugsað okkur tvo menn fyrir seinni heimsstyrjöldina, sem hefðu haft hvor um sig 7000 kr. handbærar og annar maðurinn hefði lagt þessa peninga inn í banka og látið þá standa á vöxtum síðan. Hvernig mundi hagur hans vera í dag? Ég hygg, að það muni láta nærri, að upphæð, sem staðið hefði á vöxtum með almennum bankakjörum síðan 1940, hefði til dagsins í dag um það bil tvöfaldazt eða lítið eitt meira. Á sama tímabili mun láta nærri, að verðlagið hafi um það bil tífaldazt. Raunverulegt verðmæti eigna þessa manns mundi þá aðeins vera af því, sem var í stríðsbyrjun, þannig að auk þess, að hann hefur tapað öllum arði af þessum peningum, hefur hann tapað af eign sinni. En hugsum okkur nú, að annar maður. sem hefði átt sömu peningaupphæð, hefði verið svo skynsamur frá sínu einstaklingssjónarmiði, að hann hefði ekki lagt peningana á banka, heldur t.d. keypt sér þúsund flöskur af Svartadauða. Mig minnir, að Svartadauðaflaskan hafi kostað 7 kr. fyrir stríðið, og held, að það sé rétt munað hjá mér, því að á þeim árum var maður ungur og einhleypur kandidat, og kom einstöku sinnum fyrir, að maður keypti þetta. Hvað er það í dag? Mér er sagt, að það sé 170 krónur, Þannig að maðurinn, sem hefði safnað þessum birgðum af Svartadauða, keypt 1000 flöskur af honum og geymt síðan, hann ætti nú 170 þús. kr. og það er góður arður af fjármagni. (Gripið fram í: Mætti hann nú selja Svartadauðann til að fá gróðann?) Ja, ætli hann mundi ekki gera það, hvort sem hann mætti það eða ekki. Einhverja möguleika held ég að hann mundi hafa til þess að gera sér peninga úr þessum málmi. (Gripið fram í: Það væri dýrara, ef það væri orðið 20 ára.) Já, það bætist við, og það styður einmitt mitt mál að fróðir menn um þetta og með góðan smekk í þessum efnum segja, að mjöðurinn batni við það að geyma hann. Fjárhagur þess manns, sem hefði ráðstafað fé sínu svona skynsamlega, mundi standa föstum fótum.
En gefur nú ekki einmitt þetta litla dæmi, þegar maður hugleiðir það, í rauninni skýringu á öllu öngþveitinu í þessum málum? Það er fyrst og fremst fjármagnsskorturinn, sem hefur hamlað okkur. Hér á hv. Alþ. og jafnvel nú í dag hafa stöðugt verið til umr. tillögur frá ýmsum hv. þm. um það að gera ráðstafanir til þess að afla fjármagns til hinna og þessara nytsamlegra hluta. Þetta eru allt saman skynsamlegar og eðlilegar tillögur. Það vantar fjármagn á ótalmörgum sviðum, í ræktunarsjóð, í fiskveiðasjóð, til húsbygginga o.s.frv. Við höfum að vísu getað fengið þetta fjármagn að nokkru leyti frá öðrum þjóðum og höfum því miður gengið lengra í því efni en æskilegt mundi vera. En ávallt hlýtur það nú samt að vera svo, að í þessu efni hljótum við fyrst og fremst að verða háðir innlendri sparifjármyndun, þannig að einmitt út frá því sjónarmiði, sem við hv. flm. till. erum alveg sammála um, að það sé öllu öðru nauðsynlegra að sjá íslenzkum atvinnuvegum fyrir nægilegu fjármagni, er nauðsynlegt að efla sparifjármyndunina. Þegar þetta er haft í huga, er þá von, að við séum vel staddir í þeim efnum, þegar það er þannig, að maður, sem hefur lagt peninga í banka, sem bankarnir hafa svo til umráða að lána atvinnuvegunum, fær þau laun fyrir þessa þjónustu við þjóðfélagið, sem ég hef gert grein fyrir, að hann hefur tapað 4/5 af raunverulegu verðmæti eigna sinna? Þannig er það launað að hjálpa til við það þjóðnytjastarf að skapa fjármagn til handa atvinnuvegunum. Aftur á móti maður, sem lagt hefur í fjárfestingu eins og þá að safna birgðum af Svartadauða, sem engum kemur auðvitað að gagni öðrum en manninum sjálfum, hans fjárhagur mundi standa með miklum blóma. Nú er það síður en svo, að ég beri út af fyrir sig hagsmuni sparifjáreigenda meira fyrir brjósti en hagsmuni annarra þjóðfélagsþegna, og ég ber þá ekki meira fyrir brjósti en hagsmuni skuldaranna. Mér finnst, að það atriði sé í rauninni aukaatriði í þessu sambandi. hvort maður vill styðja hagsmuni þeirra eða ekki, enda hefur það, að svo illa hefur verið búið að sparifjáreigendum, ekki bitnað á neinum ákveðnum hóp manna. Nei, afleiðingin af þessu hefur auðvitað orðið sú, að menn hafa ekki viljað gerast sparifjáreigendur. Sparifjármyndun hefur horfið.
Ég tel mig nú í rauninni hafa gert grein fyrir því, hvers vegna ég tel það, sem kemur fram í brtt. minni við þá till., sem hér liggur fyrir, aðalatriði málsins, það beri að vinna að því að ráða. bót á fjármagnsskortinum. Sé það gert, mundi hitt vandamálið með vextina leysast af sjálfu sér. Í þjóðfélagi. þar sem nóg er til af fjármagni, er að mínu áliti ekki unnt að halda uppi háum vöxtum, jafnvel þó að stjórnarvöldin kynnu að óska eftir slíku af einhverjum annarlegum ástæðum. Ef það á hins vegar að fara að lækka vextina, án þess að það skilyrði sé fyrir hendi. að hægt sé að afla nægilegs fjármagns á þessum lágu vöxtum, þá tel ég, að sú ráðstöfun sé gagnslaus og jafnvel verri en gagnslaus.
Einmitt í sambandi við þetta og kannske til nánari skýringar á þessu síðasta. langar mig til að rifja upp, að fyrir 14 árum, árið 1946, var sett af þeirri ríkisstj., sem þá var við völd, — það mun nafa verið nýsköpunarstjórnin, — löggjöf um ræktunarsjóð o.fl. Í þeirri löggjöf voru ákvæði um mjög hagstæð lán til ýmiss konar ræktunarframkvæmda. Það stórtækasta í þeim efnum, hvað snerti hin hagstæðu vaxtakjör, var ákvæði um það, að þeir, sem byggðu nýbýli á óræktuðu landi, skyldu eiga kost á lánum með þeim kjörum, að lánin voru til 50 ára og skyldi greiða í afborganir 2% af lánsupphæðinni, en alls enga vexti. Þetta eru góð vaxtakjör, að fá lánin vaxtalaus og þurfa ekki að borga þau fyrr en á 50 árum. Enginn ágreiningur mun heldur vera um það. að æskilegt sé að styðja þá, sem stofna vilja nýbýli á óræktuðu landi. En fyrir einum tíu árum þurfti ég af sérstökum ástæðum að fá upplýsingar um það í Búnaðarbankanum, hve mikið hefði verið lánað af mismunandi tegundum ræktunarlána, og þá kom í ljós, að þá höfðu alls verið lánaðar með þessum hagstæðu vaxtakjörum 82 þús. kr. Hvað ætli það hafi verið reist mörg nýbýli með þessum hagstæðu kjörum? Jafnvel þó að verðlagið væri lægra þá en nú, hefur þetta sjálfsagt ekki numið öllu meira en heimingi eða jafnvel ekki nema þriðjungi af stofnkostnaði eins nýbýlis. Var þeim, sem þá höfðu hug á því að stofna nýbýli, svo ákaflega mikill hagur í þessu lagaákvæði um hin hagstæðu vaxtakjör? Nei, við munum allir sammála um, að það hefur alls ekki komið þeim að neinu gagni. Og hvers vegna ekki? Ég býst við, að bæði sú ríkisstj., sem setti þessi lög, og þær, sem á eftir henni komu, hefðu gjarnan viljað útvega fjármagn með, þessum kjörum, en það var auðvitað ekki hægt. Gallinn á þessu var sá, að þar sem vextirnir voru ekki í neinu samræmi við eðlilegan fjármagnsmarkað, þá var ekki hægt að útvega neitt fjármagn með þessum hagstæðu kjörum, og þess vegna kom þetta engum að gagni þrátt fyrir þann velvilja, sem sjálfsagt hefur staðið þessu lagaákvæði að baki.
Mér finnst rétt að hafa einmitt þetta atriði í huga í sambandi við það alvarlega hagsmunamál fyrir þjóðina, sem hér er um að ræða. Þess vegna tel ég, að ef talið er, að þýðingu geti haft að gera einhvers konar athugun í þessum efnum, þá beri að leggja aðaláherzluna á það, sem fram kemur í minni tillögu. En vegna fyrirspurnar, sem hv. flm. beindi til mín, hef ég í sjálfu sér ekkert á móti því, að einnig séu athugaðir þeir hlutir, sem hann benti á, þó að ég telji það ekki líklegt til að koma að gagni. En annars legg ég til, að við báðir komum okkur saman um það að fela það á hendur hinni hv. þingnefnd, sem málið fær til meðferðar, að taka til athugunar, í hvaða mynd hún telur rétt að samþykkja þessa tillögu, verði það tillaga nefndarinnar.