19.12.1960
Neðri deild: 42. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (296)

130. mál, söluskattur

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. var að halda því fram hér áðan, að í umr. á Alþ. í fyrra hefði hann ekki gefið neitt fyrirheit eða ádrátt um það, að þessi skattur, sem hér er verið að ræða um, yrði ekki framlengdur. Í því sambandi vitnaði hann í ummæli, sem hann hefði viðhaft 14. marz í fyrra og munu hafa verið í Ed. Ég vil í þessu tilefni rifja það upp, sem hæstv. fjmrh. sagði um þetta mál, þegar frv. um söluskattinn var til 1. umr. hér í þessari hv. d. s.l. vetur, eða 15. marz, þegar hann var að gera grein fyrir því, vegna hvers smásöluskatturinn nægði ekki á þessu ári til þess að gefa ríkinu þær tekjur, sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárlagafrv. Hæstv. fjmrh. fórust orð á þessa leið:

„Þessar þrjár ástæður liggja til þess, að söluskattur sá, sem hér er lagt til að lögfestur verði, muni ekki á þessu ári gefa þá upphæð, sem í fjárlagafrv. hafði verið tiltekin. Það varð því að ráði, að á þessu ári skyldi náð viðbótarupphæðinni með því að bæta við innflutningssöluskattinn, sem nú er 7%, og að hann skyldi hækkaður um 8%, þ.e.a.s. verða 15%.“

Hæstv. ráðh. sagði enn fremur:

„Nú vil ég taka það fram, að þetta tvennt, 3% smásöluskatturinn og 8% innflutningssöluskatturinn, er m.a. að því leyti ólíkt í þessu frv., að ákvæðin um smásöluskattinn eru ekki bundin við þetta ár, heldur gert ráð fyrir, að þau ákvæði standi áfram, að smásöluskattinum verði haldið ekki aðeins þetta ár, heldur áfram. Hins vegar er 8% innflatningssöluskatturinn bráðabirgðaákvæði og ekki ákveðið annað í þessu frv. heldur en hann skuli gilda út þetta ár.“

Það má að vísu segja, að það felist í þessum ummælum ekki ákveðið loforð um það, að skatturinn skuli ekki vera framlengdur. En öll sú skilgreining, sem hæstv. ráðh. gerir á þessum tveimur sköttum í þessum ummælum sinum, verður ekki skilin á annan veg en þann, að hann sé að gefa mjög ákveðið undir fótinn um það, svo að ekki sé sterkara til orða tekið, að skatturinn verði ekki framlengdur. Og ég efa það ekki heldur, að það hafi verið vonir hæstv. ráðh. þá, að það mundi verða hægt. En hins vegar hefur honum ekki tekizt að standa við það vegna ástæðna, sem hér hefur áður verið gerð grein fyrir, sem sagt þeirra, að samdrátturinn, sem hefur hlotizt af efnahagsmálastefnunni, hefur orðið meiri en hæstv. ráðh. gerði sér vonir um þá og gerði ráð fyrir þá, og þess vegna hefur orðið nauðsynlegt að framlengja skattinn aftur á þessu ári.

Það kemur mjög ljóst fram í ummælum á þessum tíma í blöðum hæstv. ríkisstj., að þar var eindregið reiknað með því og þessi ummæli ráðh. skilin á þá leið, að skatturinn mundi ekki verða framlengdur, heldur aðeins vera til bráðabirgða, vegna þess að smásöluskatturinn gæfi ekki þær tekjur árið 1960, sem upphaflega hafði verið áætlað, vegna sérstakra ástæðna, sem ráðh. gerði grein fyrir og rifjaði hér upp áðan. En þessar ástæður voru hins vegar ekki fyrir hendi á árinu 1961 og þess vegna líka gert ráð fyrir því, eins og kom líka fram í ummælum ráðh., sem ég hef hér lesið upp, að búizt var við því, að ekki þyrfti að framlengja viðbótarinnflutningssöluskattinn.

Ég skal svo ekki ræða meira um þetta atriði. En ég held, að það sé nægilega ljóst af þessu og öðru, sem hér hefur fram komið, að hæstv. ráðh. gaf mjög ákveðið fyrirheit og ádrátt um það á s.l. vetri, að ekki þyrfti að framlengja þennan skatt, og vafalaust hefur hann þá líka gert sér ákveðnar vonir um, að það yrði hægt að standa við það. En vegna þeirra áhrifa, sem efnahagsmálaaðgerðir ríkisstj. hafa haft, hefur ekki verið hægt að standa við þetta fyrirheit.

Hæstv. ráðh, var hér áðan að rifja upp útreikninga um það, að þær skattalækkanir,. sem ríkisstj. hafði gert og látið framkvæma, kæmu þannig út gagnvart meðalfjölskyldu, að þrátt fyrir þá hækkun á söluskattinum, sem hefði orðið, þá legðust nú minni skattabyrðar á meðalfjölskyldu en áður hefði verið, þannig að lækkun tekjuskatts og útsvars, sem var samþ. hér á s.l. ári, hefði falið í sér hærri upphæð en þá, sem felst í sölusköttunum tveimur, sem á höfðu verið lagðir, smásöluskattinum og viðbótarinnflutningssöluskattinum.

Það er vert að athuga þetta nokkru nánara. Samkv. því, sem var upplýst af hæstv. ráðh. á þinginu í fyrra, nam lækkun tekjuskattsins samanlagt 75 millj. kr. Það er skýrt tekið fram í því fjárlagafrv., sem hann lagði fram. Lækkun útsvaranna var í grg. fyrir útsvarsfrv. áætluð 55 millj. kr., svo að samtals nam þessi skattalækkun 130 millj. kr. Skattalækkanirnar samkv. útreikningum ríkisstj. sjálfrar námu 130 millj. kr. Í því fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir, er hins vegar gert ráð fyrir því, að þessir tveir nýju söluskattar, sem ríkisstj. hefur lagt á, smásöluskatturinn og viðbótarinnflutningssöluskatturinn, nemi rösklega 350 millj. kr. eða m.ö.o. er nærri því þrisvar sinnum hærri upphæð en sú skattalækkun, sem ríkisstj. framkvæmdi. En þrátt fyrir þessa staðreynd segist hæstv. fjmrh. vera svona sniðugur, að þó að skattaupphæðin hafi þannig verið raunverulega þrefölduð, þá séu byrðarnar léttari fyrir meðalfjölskyldu en þær voru áður. Hvernig halda menn, að þetta geti staðizt? Með því að athuga dálítið nánar, hvernig þetta kemur út, ef fylgt er útreikningi hæstv. ráðh. í sambandi við þann skatt, sem hér liggur fyrir, þá verður dæmið á þessa leið:

Samkv. þeim útreikningum, sem hann hefur birt og hann segir, að hagstofan hafi reiknað út eftir grundvelli framfærsluvísitölunnar, nemur þessi skattur, sem hér ræðir um, um 1700 kr. á meðalfjölskyldu. Það mun láta nærri, að það sé þá um 400 kr. á einstakling, vegna þess að í meðalfjölskyldunni eru rúmlega 4 einstaklingar. Þessar 400 kr. á einstakling, þegar reiknað er með því, að íbúarnir séu eitthvað í kringum 170 þús., nema samtals 68 millj. kr.

Eftir þessu að dæma ætti þessi skattur ekki að gefa nema 68 millj. kr. Í fjárlagafrv., sem liggur fyrir Alþ., er hins vegar gert ráð fyrir, að þessi skattur nemi 168 millj. kr., eða 100 millj. kr. meira. Hvar heldur hæstv. ráðh. að þessar 100 millj. komi niður, þó að með einhverjum útreikningum sé kannske hægt að leiða rök að því, að af þessum söluskatti komi ekki nema 68 millj. kr. inn í sjálfa framfærsluvísitöluna? Þessar 100 millj. kr. leggjast kannske ekki beint á neytendur í landinu. Þær leggjast hins vegar á framleiðsluna og fyrirtækin í landinu, og vitanlega verða neytendur fyrr en síðar að borga það, sem atvinnufyrirtækin og verzlunarfyrirtækin verða að greiða. Þessi skattlagning verður að sjálfsögðu til þess, að afkoma atvinnufyrirtækjanna verður lakari sem þessari upphæð nemur. Það verður til þess, að þau verða að draga að sér höndina, þau verða að skera niður eftirvinnu, eins og þegar hefur verið gert, jafnvel segja fólki upp o.s.frv., og smátt og smátt kemur þetta svo fram á almenningi í landinu, með því að þessi fyrirtæki, t.d. verzlunarfyrirtækin, þurfa að fá hærri álagningu. Þó að þessir söluskattar komi ekki strax fram í framfærsluvísitölunni, þá koma þeir að sjálfsögðu fyrr en síðar fram sem byrðar á almenningi með einum eða öðrum hætti, þó að það sé ekki hægt að sýna það strax í sambandi við útreikninga, sem eru byggðir á framfærsluvísitölunni.

Það er hins vegar staðreynd, sem verður ekki á móti mælt, að skattalækkunin, sem ríkisstj. hefur framkvæmt, er samkv. upplýsingum hennar sjálfrar, eins og ég hef hér rifjað upp, 130 millj. kr. á ári, en nýju söluskattarnir, sem ríkisstj. hefur lagt á, nema 350 millj. kr., og auk þess hefur ríkisstj. staðið að því að hækka marga aðra skatta en þessa, þannig að skattabyrðarnar hafa margfaldazt hjá hæstv. ríkisstj.

En þrátt fyrir það leyfir hæstv. fjmrh. sér að halda því fram með því að slíta tölur úr samhengi, að þetta komi þannig út fyrir almenning, að hann hagnist á þeim skattalagabreytingum, sem hér hafa verið gerðar.

Ég held, að ef menn athuga þetta nokkru nánar og með því að blekkjast ekki á því, að vissir hlutir séu dregnir úr samhengi, heldur athugi málið allt, þá geri þeir sér það ljóst, að skattabyrðarnar hafa aukizt alveg stórkostlega, enda held ég, að allir aðilar, sem þessu eru kunnugir, geri sér fullkomlega grein fyrir hinni stórauknu dýrtið, sem hefur orðið hér á þessu ári og ekki aðeins stafar. af gengisbreytingunni, heldur miklu frekar af þeim skattahækkunum, sem hafa átt sér stað, vaxtaokrinu og öðrum slíkum ráðstöfunum, sem ríkisstj. hefur framkvæmt.

Vegna þess að það er orðið áliðið þingtímans að þessu sinni og ég vil ekki draga umræður óhæfilega á langinn, skal ég ekki ræða fleiri atriði að sinni af því, sem kom fram hjá hæstv. fjmrh. En það er ein fsp., sem ég bar fram til hans við 1. umr. og hann hefur enn ekki svarað, en ég vænti, að hann svari núna við þessa umræðu.

Í tilefni af því, að þær vonir hafa brostið, að þessi viðbótarinnflutningssöluskattur yrði afnuminn og þar með dregið nokkuð úr þeirri kjaraskerðingu, sem almenningur hefur orðið fyrir, þá spurði ég hæstv. fjmrh. að því við 1. umr., hvaða ráðstafanir ríkisstj. hygðist gera til að draga úr hinni miklu kjaraskerðingu, sem ráðstafanir hennar hefðu haft fyrir almenning í landinu og sjást kannske ljósast af því, að laun verkamanna, jafnvel þó að þeir hafi atvinnu allan ársins hring, eru ekki nema 48 þús. kr. á ári, er. hins vegar gerir framfærsluvísitalan ráð fyrir því, að þó að gætt sé hins ýtrasta sparnaðar, þurfi meðalfjölskyldan að fá 68 þús. kr. sér til framfærslu. Þarna munar ekki mínna en 20 þús. kr., og hvar á almenningur að taka þetta? Það er að vísu sagt, að þarna komi inn í fjölskylduuppbæturnar. En þær nema ekki nema rúmum 5 þús. kr. hjá svona fjölskyldu, og þá eru 15 þús. eftir, sem þarf að brúa. En hæstv. ráðh. hafa séð um sjálfa sig. Þeir hafa lækkað sína skatta svo mikið, að þeir hafa fengið þessar 15 þús. kr. uppbætur og vel það, sem þarna ber á milli á þeim launum, sem verkamannsfjölskyldan hefur og framfærsluvísitölufjölskyldan er talin þurfa hafa. Þeir hafa brúað þetta bil og vel það með þeirri skattalækkun, sem þeir hafa veitt sér, því að eins og hér hefur verið víkið að áður, mun þessi skattalækkun svara til þess, að Dagsbrúnarverkamaður fái 50—60% kaupuppbót. Það ætti að sjálfsögðu að ýta undir hæstv. ráðh. að gera eitthvað til þess að bæta upp þá kjaraskerðingu, sem almenningur hefur orðið fyrir, að þeir hafa hugsað svona vel um sjálfa sig, og þeir eru vafalaust það skilningsríkir, að þeir vilja ekki láta almenning sitja við lakara borð en þeir sitja við sjálfir. Þess vegna beini ég enn á ný þeirri fsp. til hæstv. fjmrh., fyrst sá skattur, sem hér er rætt um, verður ekki afnuminn og almenningur verður að búa áfram við kjaraskerðingu af völdum hans, hvaða aðrar ráðstafanir hyggst þá ríkisstj. gera til að koma á móts við þær launastéttir, sem fara verst út úr kjaraskerðingunni, og til þess að sjálfsögðu að koma í veg fyrir það, að þessar stéttir neyðist til þess að grípa til einhverra sérstakra vandræðaráðstafana, eins og t.d. verkfalla, sem allir vænta þó að verði komizt hjá og á að vera hægt að komast hjá, ef ríkisstj. sýnir einhvern skilning í þessum málum og kemur til móts við menn, áður en út í óefni er komið? Og fyrst þær vonir hafa ekki rætzt, að hægt verði að afnema þennan skatt, þá hlýtur ríkisstj. að hafa einhver önnur ráð uppi í þessu sambandi, og þess vegna væri æskilegt, ef hæstv. fjmrh. treystir sér til þess að skýra frá því nú.