01.02.1961
Sameinað þing: 35. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í D-deild Alþingistíðinda. (2960)

153. mál, vaxtakjör atvinnuveganna

Björn Pálsson:

Herra forseti. Ég ætlaði mér ekki að tala í þessu máli, en það var eitt atriði hjá hv. 11. þm. Reykv. (ÓB), sem orsakaði það, að ég bað um orðið. Hann sagði, að í skýrslu, sem hann hefði frá Fiskífélaginu, skildist mér, frá 1958, væri reiknað með, að vextir af rekstrarlánum vélbáts væru 0.77% af, að mér skildist, heildargjöldum bátsins. Þetta er mjög svipað og hæstv. viðskmrh, hélt fram um daginn, að 2% vaxtahækkun þýddi fyrir bátinn 0.6% hækkun á rekstrargjöldum bátsins. Þetta er algerlega furðuleg staðhæfing, og satt að segja komu mér kálfarnir í hug, þegar hv. 11. þm. Reykv. var að tala um þetta. Ég átti raunar ekki við hann um daginn, þegar ég minntist á kálfama, en þessir útreikningar eru hliðstæðir og var með vesalings kálfana, þegar þeir voru að leika sér og þekktu ekki vatnið frá jörðinni. Annaðhvort eru þetta vísvitandi blekkingar eða þeir hafa ekki hugmynd um, hvað þeir eru að segja. Annars hef ég alltaf trúað því. að þessi hv. þm. gæti ekki sagt ósatt, hann væri svo vandaður og sannleikseiskandi, og ég held það satt að segja enn, og þarna mun því vera um algera óaðgæzlu að ræða. Ég ætla bara að biðja ykkur að reikna með mér. það, sem villir þessa menn, ef þeir segja ekki vísvitandi ósatt, er það, að þeir taka einungis vextina af rekstrarláni vélbátsins, en það er 100–150 þús. árið 1958. Ég fékk raunar ekki nema 100 þús. í haust. Það er þetta, sem er kallað rekstrarfé bátsins, og L.Í.Ú. reiknaði með því, að þetta væru 12 þús. eftir áætlun, sem það gerði nú. Það reiknar með, að aflinn á vetrarvetíðinni sé 1403 þús. Og 12 þús. af 1403 þús., það er svipað þessu, eða 0.08–0.09%. Ef á bara að taka þessa upphæð, þetta litla rekstrarlán, og reikna það sem heildarvaxtaútgjöld bátsins, þá er algerlega furðulegt, að prófessor í hagfræði skuli koma með svona kenningu og vitleysu, endileysu. Þetta er líklega 1/40 hluti af því rekstrarfé, sem báturinn þarf, ef miðað er við kaupverð nýs báts. Það er fyrir neðan allar hellur að bera þetta á borð fyrir almenning. Og viðskmrh. gerði eitthvað svipað. Þið getið bara reiknað þetta sjálfir í huganum. Heildarvaxtaútgjöld bátsins reiknar Landssambandið 92 þús. kr. í fjóra mánuði. Nú skulum við bara taka nýjan bát. og reiknið þið með mér.

Við skulum taka 75 tonna bát eða 80 tonna bát eða eitthvað svoleiðis. Það er óhætt að gera ráð fyrir, að hann kosti 5 millj., og það er ógerlegt að reikna með, að veiðarfærin kosti minna en milljón, bæði til síldveiða og fiskveiða, og þau eru meira. Bara nótin, blokkin og síldarleitartækin kosta 800–900 þús., og net og lína kosta upp undir hálfa milljón með öllum útbúnaði, þannig að það er meira. En við skulum bara gera þetta 6 millj. alls. Reiknið þið vextina af þessu. Ef menn vilja taka meðaltal. þá skulum við reikna 8%. Eigandinn fær ekki nema 2/3 af bátsverðinu í fiskveiðasjóði. Hitt verður að taka að láni með 10% vöxtum. Þetta eru 480 þús. Og það er ómögulegt að gera ráð fyrir, að þessi bátur veiði fyrir meira en 4 millj., og er þá hátt áætlað. Þá fara 12% í vexti yfir árið. Þetta er allt saman rekstrarfé, sem útgerðarmaðurinn þarf að hafa, bæði fé í bátnum og veiðarfærin. Þetta eru 12%.

Og svo kemur þessi hv. prófessor og segir, að það skipti engu máli, þetta séu 0.77%. Ég trúi því, að þessi hv. þm. sé svo vandaður, að hann segi aldrei vísvitandi ósatt, og því sé ég alveg sérstaklega ástæðu til þess að benda á þetta. Það er ekki von, að vel gangi í þjóðfélaginu, þegar svona er reiknað, því að þessi maður hefur verið í nefndum, þó að hann hafi ef til vill ekki verið það síðast, sem hafa verið að aðstoða eða lána ríkisstj. vizku. Þetta eru vizkugjafar. Þið getið alveg reiknað þetta, um leið og ég reikna það. Þetta getur hvert barn reiknað. En ef við viljum bara taka vertíðina, þessi 92 þús., sem Landssambandið reiknar nú, aðeins taka það, þá eru það 6.5% af aflaverðmætinu á vertíðinni, og það er bezta tímabilið, sem báturinn er gerður út á, langtryggasta. Það voru 92 þús. af brúttóaflatekjum bátsins, en sennilega 12%, ef það er reiknað yfir allt árið, þó að það sé náttúrlega nokkuð misjafnt eftir afla bátsins. Þetta er að reikna viturlega. En 2% hækkun á vextina gerir 1/4 hluta af 480 þús. og það er 120 ,þús. kr. skattur, miðað við bát af þessari stærð og með þessum veiðarfærum.

Það er að nokkru leyti rétt, sem hv. 11. þm. Reykv. hélt hér fram áðan, að vextirnir lækka af sjálfu sér, ef það er svo mikið peningaflóð, að menn hafi miklu meira af peningum en þjóðin þarf að nota. En hinu er ekki hægt að ganga fram hjá, að það var ríkisstj., sem hækkaði vextina með lagaboði, því að hún lét fá sér vald til þess að hækka vextina í vetur, lét þingið fá sér vald til þess. Og þess vegna ber ríkisstj. og hennar flokkar algerlega ábyrgð á vaxtahækkuninni. Það var hægt að halda vöxtunum óbreyttum. Ég er ekki að kenna ríkisstj, þetta að öllu leyti, vegna þess að henni var sagt fyrir, að ég ætla. Ég hygg, að hún hafi fengið sín fyrirmæli frá París, það hafi verið sett að skilyrði til þess að fá yfirdráttarlán. Ég fullyrði þetta ekki, en ég hef grun um það. Og ég er ekki viss, að ríkisstj. hefði gert þetta, ef hún hefði ekki verið neydd til þess.

Ég held því ekki fram, að ríkisstj. hafi ánægju af að gera fólki til miska. en staðreyndin er, að vextirnir hafa þrengt svo að útgerðarmönnum, fiskvinnslustöðvum og verzlunum í landinu, að þær eru í vandræðum.

Svo er þessi hv. prófessor að tala um það, að við hefðum ekki átt að feila gengið svona mikið og fara svona illa með sparifjáreigendur. Því í ósköpunum hefur hann alltaf verið í þessum nefndum, sem hafa verið að ráðleggja að fella gengið, og því í ósköpunum réttir hann upp sína hönd í fyrra með þessari gengislækkun, sem er tóm vitleysa? Það var nefnilega álíka vitlaust reiknað út hjá þeim og vextirnir. Þeir athuga það ekki, að útgerðin getur aldrei grætt á gengislækkun. Það eina, sem útgerðin gat hagnazt á, var að svíkja kaupið af mönnunum. En það var bara ekki hægt nema í nokkra mánuði. Venjulega hækkaði kaupið sama árið og alltaf árið eftir. Nú er búið að binda kaupið við brúttó-aflaverðmæti fisksins, svo að það er útilokað að geta grætt á gengislækkun fyrir útveginn. Það væri nákvæmlega sama, þó að gengið væri hækkað um 20%, útgerðin stendur ekkert verr að vígi og meira að segja betur, því að rekstrarfjárskorturinn minnkar. Það er eins og með vextina, þeir líta á blaðið, fara eftir einhverjum formúlum, en vita ekkert, hvað þeir eru að gera, hafa enga hugmynd um það. Þeir kunna ekki að gera út bát, þessir góðu menn, og athuga ekki, að hver einasti útgerðarliður, sem nokkru skiptir, er algerlega bundinn við gengið. Þegar þeir reiknuðu út hagnaðinn af því að lækka gengið fyrir útveginn, þá gleymdu þeir liðum eins og vöxtunum, þeir gleymdu liðum eins og afskrifturn og fleiri liðum, og á þann hátt er hægt að fá hagnað. Þeir tóku aðeins 3 útgjaldaliði: olíu, beitu og veiðarfæri, hinum útgerðarliðunum slepptu þeir. Vitanlega er ekki hægt að reikna með því, að maðurinn selji bát. Ef hann á hann, verður að reikna með því, að hann þurfi að endurnýja hann með því kostnaðarverði, sem verður, þegar hann þarf að kaupa hann. Það er ekki hægt að reikna með því. að menn geti kastað frá sér bátunum, ef mögulegt er að selja þá, og hlaupið með peningana í burtu. Það verður að byggja einn atvinnuveg þannig upp, að hann geti endurnýjað sig, það sé hægt að endurnýja tækin.

Allar þessar aðgerðir byggjast einfaldlega á því, að þessir svokölluðu sérfræðingar hafa ekki haft hugmynd um, hvað þeir voru að gera. Þeir héldu, að þeir væru að gera útveginum greiða, en gerðu honum aðeins óleik. Ég er alveg sammála prófessornum um það, að það eru hrein svik við fólkið, þessi gengislækkun, og það er fyrst og fremst það, sem skapar rekstrarfjárskortinn í landinu. Það er aldrei hægt að fá fólkið til þess að safna peningum að ráði, ef það á alltaf von á því, að þeir séu verðfelldir. En þetta er fyrst og fremst þessum blessuðum sérfræðingum að kenna. Þeir hafa ekkert vitað, hvað þeir voru að gera.

Viðvíkjandi því, sem Þórarinn Þórarinsson hélt fram um kaupið. þá er ég ekki viss um, að hann fari alveg með rétt mál. Þið hafið nú fengið norska kaupið í bæklingnum um niðursuðuna, og það er aðeins hærra en hérna, en það munar ekki miklu, það er allt að krónu munur á kvennakaupi í Noregi og karlmannakaupi. Það munar ekki mjög miklu. En það er ekki alveg einhlítt að taka kaupið. Ég hitti mann, sem var að koma frá Osló, hann hafði unnið þar, og ég var að spyrja hann. Hann taldi, að það munaði ekki miklu að enda launin sín þar eða hérna. Hann hafði unnið þar í verzlun og hafði 950 kr. á mánuði. norskar, en hann sagði. að deildarstjórarnir hefðu 1200 kr. norskar og forstjórarnir hefðu 1400 kr. norskar á mánuði. Þá getið þið reiknað þetta út. Það getur verið, að það sé heldur hærra en hér, en það munar ekki miklu. Nú getur þetta verið nokkuð misjafnt. Ég vildi benda á þetta. Það er ekkert á móti því að athuga þetta. Við þurfum að athuga það raunverulega, þannig að við förum ekki með blekkingar eða ósannindi. Ég er sannfærður um, að við getum látið okkar fólki eða eins vel og nágrannaþjóðirnar, því að það mun ekki nokkur þjóð hafa önnur eins skilyrði til hráefnaöflunar og íslenzkir sjómenn hafa.