22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í D-deild Alþingistíðinda. (2996)
193. mál, innlend kornframleiðsla
Flm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Kornrækt er nú tekin að ryðja sér nokkuð til rúms sem búgrein hér á landi og fer vaxandi, enda þótt hér sé ekki orðið um stóran atvinnuveg að ræða enn sem komið er. Hér á Alþingi hafa líka verið flutt frv. um aðstoð af hálfu hins opinbera við þessa búgrein, og liggur nú fyrir þessu þingi frv. um þetta efni. En mér sýnist á ýmsum sólarmerkjum, að það standi ekki til, að þetta þing afgreiði það mál Ég tel hins vegar, að varðandi kornrækt í landinu og varðandi aðstoð hins opinbera gagnvart þeim mönnum, sem við kornrækt brást, sé eitt atriði alveg sérstaklega, sem vert sé að taka til atthugunar og gera .þar á nokkrar úrbætur, sem máttu verða kornræktinni í landinu til framþróunar.
Því er sem sagt svo háttað, að hið opinbera greiðir nú niður þær kornvörur, sem til landsins eru fluttar, um 18.61% af fob–verði þeirra. Þetta mun vera í framkvæmd þannig, að um beinar niðurgreiðslur er að ræða varðandi fóðurkorn. par eð ákvæðin um söluskatt af innflutningi ná ekki til þess. En um korn til manneldis mun framkvæmdin vera sú, að söluskatturinn, sem af innflutningi er 161/2% af vörunni sjálfri, en leggst auk þess á flutningskostnaðinn. mun vera metinn til jafns við þessa niðurgreiðslu, og kornvörurnar til manneldis munu þess vegna vera greiddar niður á .þann ábeina hátt, að ekki er innheimtur af þeim neinn söluskattur í tolli. Það liggur því í augum uppi, að hið erlenda og aðflutta korn er selt hér sem þessu nemur undir eðlilegu verði. Það má því segja, að í samkeppninni við hina innlendu kornrækt er haldið uppi verndartolli fyrir hið erlenda korn, þannig að Þeir, sem rækta kornið sitt sjálfir, fá engar hliðsfæðar niðurgreiðslur eða verðbætur við það, sem ríkissjóður leggur út varðandi innflutt korn. Ég ætla, að hv. alþm. muni ekki telja að athuguðu máli, að hér sé farið að réttum leikreglum, með því að ójafna svo sem nú er gert aðstöðu innlendra kornframleiðenda gagnvart hinum erlendu, innlendu aðilunum í óhag. Þess vegna hef ég leyft mér að flytja hér till um það, að jafnmiklar verðbætur og nemur niðurgreiðslu á innfluttu korni verði framvegis greiddar til innlendra kornframleiðenda.
Ég get því miður ekki gert hér nákvæma grein fyrir því, hvað slík niðurgreiðsla mundi kosta ríkissjóð mikla fjármuni. En á hinn bóginn er augljóst, að hér er ekki um að ræða stórar fjárfúlgur. Það reynist ókleift að fá nokkurs staðar upplýsingar um það, hve mikil kornframleiðslan hefur verið í landinu t.d. á s.l. ári. Um það virðast ekki liggja fyrir neinar tölur. Þó er vitað, að á einni bújörð austanlands munu nafa verið framleiddar um 500 tunnur af korni á s.l. sumri. Allálitleg framleiðsla, máske eitthvað svipuð þessu. fer fram í tilraunastöð á Sámsstöðum í Fljótshlið, og allmargir bsendur víðs vegar, sérstaklega á Suður- og Austurlandi, munu fást við kornrækt, þótt ekki sé það í stórum mæli. Það má þess vegna ætla, að framleiðslan á því korni, sem komið hefur til þreskingar á s.l. ári, muni nema eitthvað á annað þúsund tunnum og sést af því, að þótt horfið væri að því að jafna þann aðstöðumun, sem innlendir kornframleiðendur ættu að fá til jafns við það, sem rákið greiðir niður hið erlenda korn. mundi það ekki valda stórum fjármagnsútgjöldum fyrir ríkissjóð, en er í eðli sínu mikið réttlætismál — og ekki einasta réttlætismál heldur einnig mál þess eðlis, að það er líklegt til þess að örva búgrein, sem allir óska eftir, svo langt sem vitað verður, að megi taka eðlilegri framþróun og verða snarari þáttur í búskap landsmanna. Það hefði þess vegna verið eðlilegt, að ríkisstj. hefði ótilkvödd af Alþingi komið auga á það, hvert réttlæti er í því falið að framkvæma efni þessarar till og verðbæta hið innlenda korn með sams konar fjárhæðum og hún leggur út fyrir innflutta kornið. En til þessa nefur hún ekki gert það. Vera má, að hún hafa haft í huga að jafna þennan aðstöðumun með lagasamþykkt um aðstoð við kornrækt, en sýnilegt er, að á þessu þingi verður slíkt frv. ekki gert að lögum. Þess vegna tel ég enn brýnna, að þessi till nái fram að ganga, og það er till mín, að að þessari umr. lokinni verði till vísað til fjvn.
Nú hef ég orðið þess var varðandi þau mál, sem hér hafa verið á dagskrá næst á undan þessu máli, að hæstv. forseti hefur ekki freistað þess að láta fara fram um þau atkvgr., heldur tekið þau út af dagskrá. Nú vildi ég leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta á því, að þegar ég leit á viðverutöflu alþm. fyrir stuttri stundu, reyndust vera í húsinu nægilega margir þm. til þess, að þingið gæti verið ályktunarfært, og eru það tilmæli mín til hans, ef þessari umr. lýkur fljótlega, að hann geri tilraun til þess að fá málinu vísað til nefndar.