26.10.1960
Sameinað þing: 7. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í D-deild Alþingistíðinda. (3053)

34. mál, lántökur ríkisins

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Fyrsta spurningin er á þá leið: Hve mikið er búið að borga inn til íslenskra banka af umsömdu 6 millj. dollara láni í Bandaríkjunum, og hve miklu nemur sú fjárhæð í íslenskum krónum? Svarið er það, að búið er að greiða inn í dollaraupphæð 3743219.86, en í ísl. kr. er það 1176096.45.

Önnur spurningin er sú, hvort ríkisstj. hafi ráðstafað nokkru af lánsfé þessu umfram það, sem heimilað var í 22. gr. fjárlaga 1959. Svar: Ráðstöfun þessa fjár hefur verið til umr. í ríkisstj., en endanlegar ákvarðanir um ráðstöfun þess liggja ekki fyrir.

Þriðja spurningin: „Er ríkisstj, að leita fyrir sér um nýjar lántökur, og ef svo er, þá hverjar og í hvaða skyni?“ Ríkisstj. undirbýr nú áætlun um verklegar framkvæmdir og ný arðvænleg atvinnufyrirtæki á næstu ánum. Hún hefur í hyggju að leita eftir hagkvæmum lánum til langs tíma hjá alþjóðlegum og erlendum lánsstofnunum til framkvæmda á þeirri áætlun.