18.01.1961
Sameinað þing: 32. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í D-deild Alþingistíðinda. (3115)

139. mál, ríkisábyrgðir vegna togarakaupa

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það er spurt um, hverjum hafi verið veittar ríkisábyrgðir til togarakaupa árin 1959 og 1960, hver sé lánstími og önnur kjör á þeim lánum, hve miklu nemi lánin á hvert skip og hve miklum hluta af kaupverði skipanna.

Ríkisábyrgðir á lánum vegna togarakaupa á árinu 1959 voru sem hér segir:

1) Hlutafélagíð Ásfjall, Hafnarfirði, vegna Keilis. Veitt ríkisábyrgð á láni að fjárhæð 720 þús. þýzk mörk. Lánið er til 5 ára með 61/2% vöxtum á ári og nemur 80% af kaupverði skipsins.

2) Bæjarútgerð Hafnarfjarðar vegna Maí. Veitt ríkisábyrgð á láni að fjárhæð 2 millj. 580 þús. þýzkra marka. Lánið er til 5 ára og vextir 6%. Lánsfjárhæðin nemur 60% af kaupverði skipsins.

Varðandi þessi mál bæði er rétt að taka fram, að bæði hlutafélagið Ásfjall og bæjarútgerð Hafnarfjarðar hafa undirritað yfirlýsingu, þar sem lántakendur skuldbinda sig til þess að útvega nauðsynleg lán til þess, að þessi erlendu lán verði í reyndinni 15 ára lán.

3) Guðmundur Jörundsson, Akureyri, vegna Narfa. Ríkisábyrgð veitt á láni að fjárhæð 3468645 þýzk mörk. Lánið er til 12 ára með 61/2% vöxtum á ári og nemur 90% af grunnverði skipsins.

4) Ísbjörninn h/f, Reykjavík, vegna Freys. Ríkisábyrgð veitt á láni að fjárhæð 3728950 þýzk mörk. Lánið er til 111/2 árs með 61/2% vöxtum og nemur 85% af kaupverði skipsins.

5) H/f Ísfell, Flateyri, vegna Sigurðar. Veitt ríkisábyrgð á láni að fjárhæð 3948300 þýzk mörk. Lánið er veitt til 12 ára með 61/2% vöxtum og nemur 90% af kaupverði skipsins.

6) Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akraness h/f vegna Víkings. Það er sama lánsfjárhæð, greiðsluskilmálar, vaxtakjör og hluti af kaupverði og hjá Ísfelli h/f.

Þessar ríkisábyrgðir voru allar veittar á árinu 1959, en engar nýjar ábyrgðir hafa verið veittar vegna togarakaupa á árinu 1960.