25.01.1961
Sameinað þing: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í D-deild Alþingistíðinda. (3121)
154. mál, framlag frá Bandaríkjunum
Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):
Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir upplýsingarnar. En ekki er hægt að vera mjög bjartsýnn um samkv. því, sem hann sagði, að því er mér virtist, að þetta fé komi fljótlega í umferð til framkvæmda. En ég vil leggja áherzlu á það fyrir mitt leyti, að það verði sem fyrst teknar ákvarðanir um að ráðstafa þessu mótvirðisfé innanlands til nauðsynlegra framkvæmda. Og það er mín skoðun, að það megi byrja á þeim ráðstöfunum mjög fljótlega, án þess að nokkur hætta sé á því, að það raski því, sem kallað er jafnnægi í fjármálum landsins. Í því sambandi vísa ég til þess, hvernig framkvæmdin hefur verið varðandi mótvirðisfé vegna Marshallaðstoðarinnar. Því hefur verið ráðstafað til útlána, að vísu talsverðum hluta af því smátt og smátt á talsvert löngu árabili. Ég fyrir mitt leyti legg áherzlu á, að það verði sem allra fyrst settar reglur um að nota þetta fé í því skyni að greiða fyrir framkvæmdum, til útlána, og þó að það verði ekki allt tekið í einu til þess, þá verði sem allra fyrst sett um það löggjöf til þess að tryggja að þetta verði ekki að eyðslueyri.