01.03.1961
Sameinað þing: 43. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í D-deild Alþingistíðinda. (3149)

191. mál, vistheimili fyrir stúlkur

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. 1. liður fsp. er um það, hvað líði undirbúningi að stofnun og rekstri vistheimilís fyrir stúlkur samkv. lögum nr. 20 frá 16. apríl 1955.

Hinn 28. apríl 1955 fól menntmrn. stjórnarnefnd vistheimilisins að Breiðuvík þeim Gísla Jónssyni alþm., Magnúsi Sigurðssyni skólastjóra og Þorkatli Kristjánssyni fulltrúa, að athuga um undirbúning að stofnun vistheimilis fyrir stúlkur. gera tillögur um hentugt húsnæði og annað, er að málinu lyti, og var þetta gert í framhaldi af þeirri lagabreytingu, sem hv. fyrirspyrjandi gat um í ræðu sinni áðan. Þessi nefnd skilaði álitsgerð 8. okt. 1955 og lagði eftirfarandi til: .Í fyrsta lagi, að hafizt verði þegar handa um að koma upp nýrri vistheimilisbyggingu í þessu skyni fyrir a.m.k. 30 stúlkur, auk starfsmanna, með nauðsynlegum vinnustofum og kennslustofum. Húsameistari ríkisins gerði fyrir n. uppdrætti að slíku heimili, og var byggingarkostnaður þá áætlaður um 2 millj. kr. Í öðru lagi. að tekin verði árlega í fjárlög 1 millj. kr. til byggingarinnar, unz henni verði lokið, eða lægri fjárhæð að viðbættri lántökuheimild, er samtals nemi framangreindri upphæð. Í þriðja lagi var það í till. þessarar n., að stofnuninni yrði tryggt nægilegt land og hitaréttindi að Sólheimum í Grímsnesi eða Reykjanesi ásamt Reykjalundi í Grímsnesi. Og í fjórða lagi, að leitað væri eftir samkomulagi við bæjar- og sveitarfélög, sem þurfa að koma fyrir börnum og öryrkjum í sérstökum stofnunum, með samstarfi um stofnun og rekstur slíkra heimila.

Þetta voru tillögur stjórnarnefndar vistheimilisins á Breiðuvík varðandi framkvæmd þeirrar lagabreytingar, þar sem gert var ráð fyrir heimild til handa ríkisstj. að koma upp nýju vistheimill fyrir stúlkur. Hins vegar var ekkert fé veitt á fjárlögum til byggingar slíks vistheimilis og þess vegna var að sjálfsögðu ekki hægt að hefjast handa um neinar framkvæmdir. Höfuðástæða þess, að Alþingi veitti ekki fé á fjárlögum til byggingar vistheimilis fyrir stúlkur, hefur án efa verið sú, að ríkið var að byggja vistheimili fyrir pilta í Breiðuvík, og Alþingi mun eflaust hafa þótt rétt að nota það fé allt, sem á annað borð væri tiltækilegt í þágu þessara málefna til þess að ljúka byggingu heimilisins í Breiðuvík, áður en hafin yrði bygging nýs heimilis fyrir stúlkur.

Eftir að ég tók við forstöðu menntmrn. sumarið 1956, Varð ég þess auk þess var, að talsverður ágreiningur var meðal þeirra, sem áhuga og kunnugleika höfðu á þessum málum, um bæði stærð og staðarval slíks nýs vistheimilis fyrir stúlkur. Þess vegna var það, að hinn 2. des. 1957 skipaði menntmrh. nefnd til að athuga og gera rökstuddar tillögur um stofnun, staðsetningu og rekstur vistheimills fyrir stúlkur, sem framið hafa lögbrot eða eru á annan hátt á glapstigum, eins og segir í skipunarbréfi n. Í n. áttu sæti dr. Símon Jóhannes Ágústsson prófessor, formaður, skipaður af ráðuneytinu án tilnefningar, Halldóra Eggertsdóttir námsstjóri. tilnefnd af Bandalagi kvenna, Jóhanna Egilsdóttir, tilnefnd af Kvenréttindafélagi Íslands, Guðlaug Narfadóttir, tilnefnd af áfengisvarnanefnd kvenna, Jónína Guðmundsdóttir, tilnefnd af Kvenfélagasambandi Íslands, og Petrína Jakobsson, skipuð af rn. án tilnefningar. Í forföllum Halldóru Eggertsdóttur tók Valgerður Gísladóttir síðan sæti í n. Tillögur þessarar n. voru eftirfarandi: 1) Vistheimili verði reist fyrir 12 stúlkur, sem taldar eru á glapstigum, á aldrinum 13–18 ára. 2) Staðsetning heimilisins verði að Úlfarsá í Mosfellssveit. 3) Jafnframt því, sem Alþingi veiti fé til þess að reisa vistheimilið, geri menntmrn. ráðstafanir til þess, að a.m.k. 3 konur búi sig á beztu stöðum erlendis undir það að starfa við heimilið, tvær til að verða forstöðukonur, húsmæður, en ein til að verða árskona (socíal worker). N. taldi koma til greina að reka að Úlfarsá til bráðabirgða heimili fyrir 6 stúlkur.

Þessar tillögur hafa því miður ekki heldur getað komið til framkvæmda. þar eð fjárveitingar hafa ekki heldur veríð nægilegar til að hrinda þeim í framkvæmd, þó að framkvæmd þessara tillagna mundi að vísu kosta mun minna en þeirra tillagna stjórnarnefndar Breiðuvíkurheimilisins, sem ég gat um fyrr. Þó er þess að geta, að árið 1959 voru teknar 300 þús. kr. í fjárlög til byggingar slíks vistheimilis fyrir stúlkur, og hefur sú upphæð verið á fjárlögum síðan, þannig að nú eru fyrir hendi 900 þús. kr. til byggingar slíks vistheimilis fyrir stúlkur. En til samanburðar má geta þess, að stofnkostnaður drengjaheimilisins í Breiðuvík er nú orðinn 3.5 millj. kr., en miklum stofnkostnaðarframkvæmdum er enn ólokið. Árlegur rekstrarkostnaður drengjaheimilisins í Breiðuvík er 972 þús. kr. En enn hefur ekkert fé verið veitt á fjárlögum til rekstrar vistheimilis fyrir stúlkur.

Þessar 900 þús. kr., sem veittar hafa verið til stofnkostnaðarframkvæmdanna eru ekki enn nægilega mikil fjárhæð til þess, að verjandi sé að hefja með því fé byggingu vistheimilis, sem án efa mun kosta þre- eða fjórfalda þessa upphæð. En þar eð mér er og var ljóst, að hér er um mikið vandamál að ræða, datt mér á sínum tíma í hug, hvort ekki væri unnt að leysa vandræði a.m.k. sumra þeirra stúlkna, sem hér um ræðir, með því að koma þeim fyrir á viðurkenndum skóla- eða vistheimilum erlendis, enda mundi stúlkunum í mörgum tilfellum verða auðveldara í umhverfi, sem þekkir ekki bresti þeirra, að snúa inn á hollari brautir og auk þess minni hætta á, að þær lendi aftur í sömu örðugleikum heima, ef gömul áheillasambönd hafa gersamlega verið rofin með dvöl erlendis í nokkurn tíma. Menntmrn. leitaði aðstoðar danskra stjórnarvalda til að mega vista nokkrar stúlkur á slíkum heimilum þar í landi og fékk um það fyrirheit. Í samræmi við þetta hafa nokkrar stúlkur verið vistaðar erlendis.

Hinn 26. febr. 1959 skipaði ráðuneytið n. til að fjalla um vandamál þeirra stúlkna, sem til greina kæmi að vista erlendis, og fylgjast með þeim. Í þessari n. eiga sæti Guðlaug Narfadóttir, formaður, Sigríður Sumarliðadóttir lögreglukona og Magnús Sigurðsson skólastjóri, en 22. sept. 1960 tók Auður Vilhjálmsdóttir stud. theol. sæti í n. í stað Sigríðar Sumarliðadóttur, sem nú dvelst erlendis við framhaldsnám.

2. liður fsp. er um það, hversu margar stúlkur hafi verið sendar á erlend vistheimili síðan 1956 og hversu margar dveljist þar nú, og 3. liðurinn er um það, hvort nokkrar skýrslur séu til um það. hversu margar stúlkur þurfi heimilisvist, og ef svo er, hverjar þær skýrslur þá séu. Samkv. skýrslu þeirrar nefndar, sem ég nú var að nefna og hefur ráðstafað stúlkum til vistar í Danmörku, hafa 9 stúlkur dvalizt erlendis á vegum n. Eru 4 þeirra nú á vistheimilum í Danmörku, en 5 komnar heim aftur, og virðist árangur af dvöl þeirra ýmist sæmilegur eða ágætur, eftir því sem segir í skýrslu n. 2 stúlkur bíða nú eftir hælisvist í Danmörku.

Í skýrslu n. þeirrar, sem próf. Símon Jóh. Ágústsson var formaður fyrir og ég gat um áðan en skýrslan er dags. 11. nóv. 1958, segir svo um fjölda þeirra stúlkna, sem kynnu að þarfnast hælisvistar: Samkv. upplýsingum frá barnaverndarnefnd Reykjavíkur 1958 hefur hún haft skipti af 20 stúlkum að meðaltali á ári á aldrinum 13–16 ára undanfarin fimm ár. Kvenlögreglan í Reykjavík hafði árið 1957 skipti af 36 stúlkum á aldrinum 13–17 ára, sem neyta oft víns. Verið getur raunar, að hjálpa mætti mörgum þessum stúlkum á annan veg en með því að koma þeim á vistheimili, en hitt er á að líta, að heimili þetta tæki við stúlkum af öllu landinu. — Í framhaldi af þessum upplýsingum n. má geta þess, að á árunum 1959 og 1960 mun barnaverndarnefnd Reykjavíkur hafa haft afskipti af svipuðum fjölda stúlkna og á undan er getið, eða um 20 á ári, og telur Þorkell Kristjánsson fulltrúi barnaverndarnefndar, að um 15 þessara stúlkna mundu þurfa hælisvist, en vandræði þessara stúlkna munu hafa verið fólgin í útivist, lauslæti og drykkjuskap. Á árinu 1958 hafði kvenlögreglan í Reykjavík afskipti af 57 stúlkum á aldrinum 13–18 ára, en á árinu 1959 var fjöldi þessara stúlkna 89, en af þeim telur Guðrún Sverrisdóttir lögreglukona að um 18 muni hafa brýna þörf á hælisvist.

4. liður fsp. er um það, hvað ríkisstj. hyggist gera til þess að framkvæma áðurnefnd lög frá 1955. Eins og komið hefur fram þegar í því, sem ég hef sagt til svars við þremur fyrstu liðum fsp., hefur á undanförnum árum allmikið verið unnið að þessu máli, enda hafa þrjár nefndir manna og kvenna sem hafa reynslu og sérþekkingu í þessum efnum, unnið með ýmsum hætti að undirbúningi málsins og framkvæmdum. Í því sambandi hafa ýmsir, svo sem dr. Símon Jóh. Ágústsson, Halldóra Eggertsdóttir námsstjóri og Sigríður Sumarliðadóttir lögreglukona, kynnt sér rekstur stúlknaheimila erlendis. En ekki verður lögð nógsamlega rík áherzla á, að mál af þessu tagi hljóti mjög vandlegan og rækilegan undirbúning og ekki verði rasað í neinu um ráð fram varðandi staðarval og fyrirkomulag heimilisins að öðru leyti. En n. þær sem fjallað hafa um þetta mál og falið hefur verið að gera tillögur um það, hafa ekki verið sammála. hvorki um staðarval né heldur fjölda viststúlkna, þ.e. stærð heimilisins, en hvort tveggja þetta eru grundvallaratriði í sambandi við framtíðarlausn málsins.

Þá er rétt að víkja að þeirri tilraun, sem gerð hefur verið í því skyni að leysa þetta mikla vandamál til bráðabirgða með þeim hætti að vista stúlkur á skóla- eða vistheimilum erlendis. Eins og ég gat um áðan, hafa 9 stúlkur verið vistaðar í Danmörku í þessu skyni og eru 5 þeirra komnar heim aftur, og segir svo um reynslu af dvöl þessara stúlkna í bréfi frá kvenlögreglu Reykjavíkur, dags. 29. okt. s.l.:

„Stúlkur þær, sem kvenlögreglan hafði áður mikil afskipti af, en dvalið hafa um tíma á vistheimilum erlendis á vegum nefndar þeirrar, sem skipuð var af menntmrn. 26. sept. 1959, hafa eftir heimkomu sína komið vel fram og hvergi komið við sögu kvenlögreglu síðan.“

Þá eru og mjög athyglisverðar umsagnir foreldra þessara stúlkna. Um stúlku A segja foreldrar, að hún hafi mikið mannazt af dvöl sinni erlendis, og votta foreldrarnir n. og þeim, sem sáu um dvöl hennar erlendis, mikið þakklæti. Um stúlku S segir, að eftir heimkomuna hafi hún strax farið í vinnu, sem hún stundi mjög vel, sjálf sé hún mjög ánægð með veru sína í skólanum og þakklát fyrir hjálpina. Virðist hún með veru sinni erlendis hafa komizt yfir alla örðugleika. Fyrir þetta er ég þakklátur, segir faðir stúlkunnar í bréfi. Stúlka C er af móður sinni sögð hafa haft mjög, gott af veru sinni í Danmörku, sé byrjuð að vinna og sé áhugasöm fyrir starfi sínu. Foreldrar stúlku D telja, að engin leið sé ákjósanlegri en sú, sem farin var, til þess að ná góðum árangri. Foreldrar stúlku E þakka þá miklu aðstoð, sem þeim er veitt til að vista dóttur þeirra erlendis, og segir svo í umsögn þeirra: „Teljum vér, að för þessi hafi bjargað dóttur okkar af villigötum. Er hún gerbreytt stúlka eftir dvöl þessa ytra. Reynsla er komin á, að hér er ekki aðeins um skammvinna breytingu að ræða, því að nú er liðið á annað ár, frá því að hún kom heim, en hún hefur komið í hvívetna vel fram síðan.“

Þessi tilraun með vistun stúlkna erlendis virðist því greinilega hafa gefið góða raun og bætt að nokkru úr brýnustu þörf í bili, og ég tel reynsluna af þessari tilraun vera svo athyglisverða, að slíkar ráðstafanir hljóti framvegís að vera meðal þeirra úrræða, sem til greina koma, þegar velja skal í einstökum tilvikum um leiðir til að bjarga ungum stúlkum af glapstigum. Í þessu sambandi tel ég og rétt og skylt að geta þess að dansk stjórnarvöld hafa sýnt frábæra lipurð og framúrskarandi fyrirgreiðslu í sambandi við vistun framangreindra stúlkna á skóla- og vistheimilum í Danmörku, en aðsókn þarlendra að slíkum heimilum er miklum mun meiri en hægt er að fullnægja, og eiga dönsk stjórnarvöld því miklar þakkir skildar fyrir aðstoð við Íslendinga í þessum efnum.

Þegar samstaða hefur fengizt um staðarval og stærð vistheimilis fyrir stúlkur og önnur grundvallarsjónarmið liggja ljóst fyrir og þegar nægilegt fé hefur verið veitt af Alþingi á fjárlögum til byggingar slíks heimilis, tel ég rétt og sjálfsagt að hefjast handa um byggingu, og er vonandi, að þessum skilyrðum, sem ég nú gat um, verði fullnægt innan tíðar, því að um það á enginn ágreiningur að þurfa að vera, að hér sé um knýjandi þjóðfélagsvandamál að ræða og auk þess viðkvæm tilfinningamál sem varða heill og hamingju margra einstaklinga og fjölskyldna. En á það vil ég aftur leggja áherzlu, að það er mjög mikilvægt, að mjög sé vandað til undirbúnings máls eins og þessa og gætt fyllstu forsjár og framsýni í hvívetna.