15.12.1960
Neðri deild: 40. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (323)
134. mál, efnahagsmál
Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta mái til meðferðar og haldið um það tvo fundi og reynt að afla sér nokkurra upplýsinga, m.a. um útflutningssjóðinn. En því miður hafa þær ekki verið svo sundurliðaðar sem æskilegt hefði verið.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða hér um efni þessa máls, það var gert svo ýtarlega í framsöguræðu hæstv. sjútvmrh. við 1. umr. frv.
N. hefur verið sammála um að mæla með því, að hv. d. samþykkti þetta frv., en hins vegar klofnaði nefndin um brtt., sem minni hl. lögðu fram og lýstu í nefndinni, og munu þeir því skila sérstöku áliti.
Meiri hl. fjhn. mælir með því, að þetta frv. verði samþykkt óbreytt.