16.12.1960
Neðri deild: 41. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (331)
134. mál, efnahagsmál
Frsm. 2. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Tilefni þess, að þessar umræður hafa orðið, er fyrst og fremst sú ræða, sem hæstv. fjmrh. hélt í kvöld. Ég vildi mjög gjarnan, að hann væri mættur hér, vegna þess að ég ætlaði að svara honum. (Sjútvmrh.: Ég mæti fyrir hann.) Það er ekki til neins, að neinn mæti fyrir hann. Við höfum hér áður reynslu af því, það kom fyrir í fyrra, — þetta er ekki í fyrsta skipti, sem hæstv. fjmrh, skrópar, — þá setti hann landbrh. í staðinn fyrir sig, og ég spurði landbrh. að því, hvort hann mundi nú flytja ráðherranum þetta, sem ég sagði, og svo þegar ég fór að yfirheyra hann, var hann búinn að gleyma helmingnum. (Sjútvmrh.: Ég skal reyna að muna nákvæmlega.) Ég fer fram á það við hæstv. forseta til þess að ofþyngja ekki minni hæstv. sjútvmrh., hvort hann álíti, að til þess væri nokkur von, að hæstv. fjmrh. kæmi aftur, og það þýddi að reyna að gera ráðstafanir til þess. (Forseti: Forseti hefur áður svarað tilmælum um þetta frá hv. 1. þm. Austf. og hefur engu við það að bæta.) Það er nefnilega alllangt liðið síðan, svo að ég hélt, að þetta mundi bara vera eitthvert kvöldgöltur á hæstv. fjmrh., en mundi ekki verða næturgöltur. Ég sé nú fram á, að sagan ætlar að endurtaka sig, svo að ég mun þá snúa mér að fjármálaráðherrastólnum, fyrst hann er ekki sjálfur mættur. Hins vegar verð ég að segja það, að það er eindæma ræfilsskapur, sem ég vart man eftir á Alþingi hér áður, af einum ráðherra að þjóta upp rétt fyrir kvöldmat hreyta út úr sér alls konar ósannindum og ýmsu þaðan af verra og stökkva svo burt og þora ekki að standa fyrir máli sínu, jafnvel ætla að fara að láta alsaklausa menn standa fyrir máli sínu. Ég verð að segja það, að slíkum götustráka hætti, að hafa slíkt í frammi, hefði ég ekki búizt við af eins hæverskum manni og hæstv. fjmrh. er í tali. Það þýðir nú yfirleitt lítið að vera kurteis í tali, en koma svo fram eins og dóni í verki. Og ég verð að segja viðvíkjandi þeim ósannindum, sem hann sagði hér í minn garð, að mér finnst það helvíti hart, að hann skuli hafa hlaupið burt, og ég get jafnvel trúað, að hann hafi hlaupið beint yfir í Morgunblaðið með lygina. Ég hélt hann hefði þá getað farið með hana beint í Morgunblaðið og ekki þurft að koma með hana hér á Alþingi áður. Ég held þess vegna, að þessi framkoma sé fyrir neðan allar hellur. Hæstv. fjmrh. hefur ekki staðið svo vel í stöðu sinni gagnvart Alþingi, að honum farist að sýna Alþingi slíkan dónaskap. Við sitjum hér í fjhn. þessarar deildar, og við fáum þau frv., sem fjmrh. gat verið búinn að leggja fyrir snemma á Alþingi, nú fyrst. Við vorum í morgun að meðhöndla söluskatt, sem þessi ráðherra hafði lagt fyrir Alþingi á síðustu dögum þingsins. Við höfum talið það skyldu okkar sem þingmanna, jafnvel þótt það séu svona slælegir fjmrh. í stjórn — og það í stjórn, sem við erum á móti, að reyna yfirleitt að láta þessa hluti samt sem áður ganga. Það var svo sem ekki mikið verið að tefja söluskattinn hérna í þessari hv. deild. Það var ekki heldur verið að tefja hann mikið í fjhn. hjá okkur. En ráðherrann, sem á allt undir náð stjórnarandstöðunnar með að fá þessi mál í gegn, þegar svona er komið eins og nú er, hvað gerir hann? Hann sýnir ekkert nema ósvífni, getur ekki einu sinni haft kurteisra manna hátt á. Og núna í dag sýnist mér, að fjárlögunum hafi verið lokað, umræðunum hafi verið slitið um fjárlögin, en söluskatturinn. sem er uppistaðan í fjárlögunum, m.a., eins og frv. liggur fyrir, er ekki einu sinni afgreiddur. Fjmrh., sem stendur svona í stöðu sinni, á a.m.k. að geta sýnt sæmilega kurteisi gagnvart þeim deildum, sem hann á það undir, að frv., þótt menn séu á móti þeim, nái fram að ganga. Það er varla von, að maður vandi slíkum ráðherra kveðjurnar, ekki sízt, þegar þetta er í annað skiptið, sem þetta kemur fyrir. Við stóðum hér uppi á næturfundum í þessari deild fyrr á þessu ári, á síðasta þingi, og það var leitað með logandi ljósi að fjmrh. alls staðar í bænum. Hæstv. forseti gaf fundarhlé hvað eftir annað til þess að láta leita að honum. Þá var hann nýr í embættinu, og hann tók sér þetta svo nærri, að hann fór að gefa yfirlýsingar daginn eftir í Morgunblaðinu, hvar hann hefði verið um nóttina, og þar hafði hann samt ekki fundizt. Þegar þetta næturgöltur hæstv. fjmrh. fer að endurtaka sig svona, þá fara menn eiginlega að spyrja, hvað hann sé yfirleitt að flækjast í stólnum öðru hvoru.
Ég skal þá snúa mér að því, sem hæstv. fjmrh, sagði, þótt sumt af því hafi verið minnzt á þegar, en ég vil gjarnan taka það frá dálítið öðru sjónarmiði en þegar hefur verið minnzt á. Ég var að reyna að grafast fyrir um það, hvernig væri með þessa hæstv. ríkisstjórn, hvort hún gerði sér grein fyrir því, hvert stefna hennar leiddi, og eiginlega er að sumu leyti dálítið fróðlegt að taka fjmrh. sálfræðilega þannig, að hvað miklu leyti hann hefur gert sér ljóst, hvaða afleiðingar hljótist af þeim ráðstöfunum, sem ríkisstj. hefur gert.
Þessi hæstv. fjmrh. talaði fyrst um verðfall á lýsi og mjöli. Var þetta eitthvað nýtt, verðfallið á lýsi og mjöli? Hvað stóð í frv. um efnahagsmál, þeim lögum, sem við erum að ræða, þegar þetta var lagt fyrir Alþingi síðast? Hvað stóð þar á blaðsíðu 18, þar sem útreikningar hagfræðinganna eru? Þar stóð, að þeir hefðu reiknað með þessu verðfalli, það var komið þetta verðfall, og þeir höfðu reiknað með þessu verðfalli. Það stendur þar, með leyfi hæstv. forseta, neðarlega á bls. 18: „Að því er síldarbræðsluafurðir og hvalafurðir snertir, hefur orðið mikið verðfall á mjöli á árinu 1959, og lýsisverð er einnig lágt. Vegur þetta á móti þeim áhrifum, sem breyting gengisskráningarinnar annars mundi hafa haft á afkomu þessarar framleiðslu.“ M.ö.o.: gengislækkunin hefur raunverulega átt að stórbæta síldarafurðirnar vegna þess, hve lágt í raun og veru þær voru skráðar í þeirri gengisskráningu, sem hér var áður, en þess njóta þær ekki nema normalt, vegna þess að lækkunin á mjöli og lýsi var orðin svo mikil, eins og þessir hagfræðingar ósköp vel vissu um, sem sé, síldarútvegurinn mundi ekki græða fram yfir þorskútgerðina á því. Þetta verðfall var vitað fyrir þá. Og þó að þeir séu vitlausir, þeir hagfræðingar, sem ríkisstj. velur, þá voru þeir ekki svo vitlausir, — ég verð þó stundum að taka málstað þeirra. Þess vegna var það alveg ótvírætt, að þetta vissu menn, út frá þessu var gengið, og með þessu var reiknað. Það er þess vegna eins og hver önnur vitleysa að vera að tala um 150 millj. kr. tekjutap í sambandi við þetta. Þetta var staðreynd, sem lá fyrir þá og þessir menn þá reiknuðu með.
Svo er annað, sem ég vil biðja hæstv. ríkisstj. og ekki sízt fjmrh. að athuga: Hver er stefnan viðvíkjandi verðlagi í því kerfi, sem ríkisstj. tekur upp? Stefnan er. sú að miða að verðfalli og vinna beinlínis að því, að það verði verðfall á íslenzkum afurðum. Við höfum reynt á nokkrum undanförnum árum að tryggja nokkuð verð á íslenzkum afurðum, með því m.a. að reyna að selja mikið til sósíalistísku markaðanna og gera jafnvel til nokkurra ára oft og tíðum samninga þar um. Og m.a. hefur verið hægt að fá hærra verð á fiskimjöli þar en hefur verið hægt á vesturmörkuðunum. En allan tímann hefur verið neitað að vinna þessa markaði fyrir íslenzka fiskimjölið. Og það keyrir oft svo um þverbak, að það hefur hvað eftir annað komið fyrir og hefur verið þvingað í gegn að selja bæði fiskimjölið og aðrar vörur á lægra verði á vesturmarkaðinum en var hægt að fá á austurmarkaðinum. M.ö.o.: sjálft kerfi ríkisstj, miðar að því að lækka verð á íslenzkum afurðum. Þar við bætist svo, að það er vitanlegt, að þeir kapítalistísku markaðir, sem við seljum á, eru kreppumarkaðir. Það eru markaðir, þar sem eru tíðar verðsveiflur, þar sem framboð og eftirspurn ræður, þar sem ekki er hægt að skipuleggja fyrir fram og til langs tíma verðlag og sölu á vörum. M.ö.o.: Það er verið að gera okkur háða verðsveiflum hins kapitalistíska markaðar með því að binda okkur meira og meira við þann markað. Það er verið að svipta okkur því takmarkaða öryggi, sem er í sósíalistísku mörkuðunum, með þessari stefnu. Það er verið að vinna markvíst að verðfalli, ef mönnum er ljóst, hvert þeir stefna. Ég veit ekki, hvort fjmrh. er þetta ljóst, hann hefur vafalaust verið einn af þeim trúuðustu á þetta kerfi, en ef honum er þetta ekki ljóst, þá veitti honum a.m.k. ekki af að hlýða á upplýsingar um það og taka þátt í umræðum.
Svo fór hæstv. fjmrh. að tala um afla togaranna og fór að tala um, hvað hann væri nú miklu minni. Jú, við erum veiðimenn Íslendingar, og við eigum ekki allt aðeins undir því, hvernig mennirnir stjórna. Við eigum mikið undir náttúrunni, hvað hún er gjöful, hvað veðrið er gott, hvað gæftirnar eru miklar, og annað slíkt. Sá dómur hins vegar, sem við komum alltaf til með að leggja á hverja ríkisstj. í þessu landi, er, hvort hennar ráðstafanir stuðli að því út af fyrir sig, að afli verði meiri eða minni, að svo miklu leyti sem það er á valdi mannanna að ráða við það. Þess vegna verður mælikvarði, sem er lagður á hverja ríkisstjórn, sá, að hve miklu leyti hennar ráðstafanir miði að því að draga úr afla og að hve miklu leyti að því að auka aflann, — og í öðru lagi, þegar maður á ekki aðeins við aflann, heldur líka hvað þjóðin fengi fyrir fiskinn, að hve miklu leyti ráðstafanir hæstv. ríkisstj, miði að því, að það sé unnið meira úr fiskinum og þjóðin fái meira fyrir hann, eða það sé unnið minna úr honum. Og hver er pólitík ríkisstj. í þessu efni? Við skulum taka dæmi. Þessi ríkisstj. hefur sett 12% vexti á í landinu. Hvað þýða 12% vextir, t.d. hvað togarana snertir? 12% vextir þýða það, að þegar einn togaraeigandi á að velja á milli þess að leggja upp sinn fisk og láta vinna hann í hraðfrystihúsi, láta hann ganga í gegnum alla þá geymslu og allt slíkt, sem í sambandi við slíkt stendur, og fá svo seint og síðar meir kannske uppgjör fyrir þetta og verða raunverulega að reikna sér af því kapítali, sem í það fer, 12% vexti, þá skoðar hann hug sinn mjög um, hvort hann eigi ekki heldur að fara með togarann á ísfisk, selja aflann gegn staðgreiðslu og sleppa þannig við þessa vaxtabyrði. M.ö.o.: 12% vextir þýða óhjákvæmilega það að ýta undir ísfiskssölu og draga úr því, að það sé lagt upp í hraðfrystihúsin, í skreið, saltfisk eða annað slíkt. Það er alveg óhjákvæmilegt, að 12% vextir verða þess vegna til þess, að togararnir, þessi stórvirku aflatæki, hvort sem er mikill eða lítill afli frá náttúrunnar hálfu, fara meira á ísfisk, að þau eru notuð sem flutningaskip miklu lengri tíma, að það er ýtt undir, að þau afli minna, að það séu færri dagar, sem þau séu á veiðum. 12% vextir, án tillits til þess, hvort það er góður eða slæmur afli yfirleitt frá náttúrunnar hálfu, hljóta að ýta undir það, að afli verði minni, svo að ég ekki tali um, að hve miklu leyti slíkir 12% vextir siðan ýta undir það, að aflinn verði verr hagnýttur, að það sé ekki unnið úr honum. Þess vegna liggur mér við að spyrja hæstv. ríkisstj.: Í hvaða tilgangi setur hún 12% vexti á? Sá hún fyrir þær afleiðingar, að slíkir 12% vextir hlytu frekar að draga úr afla og draga úr hagnýtingu, eða kemur slík afleiðing að óvörum? Ef hún kemur ekki að óvörum, ef hún sá það fyrir, að þessar hlytu að verða afleiðingarnar, þá eru þessir 12% vextir beinlínis settir á til þess að minnka afla, til þess að minnka hagnýtingu, til þess að gera atvinnurekstrinum erfiðara fyrir með rekstur, til þess að íþyngja honum. Þegar vextir eru t.d. hækkaðir á afurðunum með afurðavíxlunum úr 5% upp í 9%, þá er það gert til þess að íþyngja viðkomandi atvinnuvegi, til þess að ýta honum til þess að afla minna og selja aflann sem ísfisk í Englandi og losna þannig undan byrðum vaxtaokursins heima. M.ö.o.: Það er til þess að draga úr atvinnunni, minnka atvinnulífið í landinu, hvaða orð sem einhverjir hagfræðingar kunna að nota um þetta. Þeir kalla það kannske að draga úr allt of mikilli veltu, draga úr allt of mikilli eftirspurn eftir vinnuafli eða annað slíkt. Mér er alveg sama, hvaða orð eru notuð um þetta, þetta eru ráðstafanir, sem draga úr þrótti atvinnulífsins til þess að minnka aflann, að svo miklu leyti sem ríkisstj. getur ráðið við það, hve lengi og hvað marga daga togararnir afla. Gerir fjmrh. sér þetta ljóst? Kann hann að leggja saman orsök og afleiðingu? Kann hann að leggja saman tvo og tvo, og það er hættulegt af fjmrh. að gera það ekki, eða er hann að fikta við þá margbrotnu vél, sem okkar efnahagslíf er, og styður svo á hringlandi vitlausa takka, svo að þegar hann ætlar að halda áfram, þá bakkar hann út í sjó. Þess vegna er maður eiginlega að fá sálfræðilegt dæmi um það í ræðu fjmrh., að hve miklu leyti þeir menn, sem að þessu standa og hrifnastir virðast af því, gera sér ljóst, hvert þetta leiðir.
Annað dæmi í sambandi við þetta er gengislækkunin sjálf. Þegar verð á einum togara er sett upp í 40 millj. kr., gerir ríkisstj. sér þá ekki ljóst, að það getur farið svo, að þeir menn, sem slíka togara eiga, leggja þeim upp, af því að þeir treysta sér ekki til þess að standa undir þeim, ekki aðeins þegar afli er slæmur, heldur líka meira að segja í meðalári? Við munum nú þá tíma, að togarar gengu hér á Íslandi að meðaltali 100 daga á ári. Það hefur þurft sérstakar ráðstafanir á undanförnum árum á Íslandi til þess að tryggja það, að togararnir gengju svo að segja hvern dag á árinu, og ef það hefur verið stefna, eins og stundum hefur verið lýst yfir, að draga úr þeirri miklu vinnu, sem verið hefur á Íslandi, þá er gefið, að það er ein eðlileg afleiðing, sem verður af gengislækkun og af því, að togarar kosti 40 millj., að þeim sé lagt upp mikinn tíma af árinu og að þeir séu ekki reknir, nema þegar afli er sem allra mestur. Og þegar togara er lagt upp, þá aflar hann ekki. Það að gera ráðstafanir til þess, að togarar, eins og ríkistogarinn, sem talað var um áðan, liggi hérna við hafnarbakkann, eða togurum einstaklingsframtaksins sé lagt upp, er það ekki til þess að gera ráðstafanir til þess að draga úr afla Íslendinga, hvernig svo sem sá afli væri frá náttúrunnar hendi? Eru það ekki ráðstafanir til þess að minnka þann fisk, sem við drögum úr sjó, jafnvel þótt náttúran vildi vera gjöful við okkur, hvað þá ef hún væri í dræmara lagi? Og hafa þær yfirlýsingar ekki komið fram, alveg sérstaklega frá hæstv, fjmrh., að ríkisstj. ætli yfirleitt ekki að skipta sér af þessu atvinnulífi, að atvinnureksturinn eigi að standa á eigin fótum? Jafnvel hæstv. fjmrh. gefur slíkar yfirlýsingar langharðvítugast, það komi honum ekkert við, þó að ríkustu menn landsins séu að leggja togurunum. Það sést af því frv., sem hér liggur fyrir, að hæstv. sjútvmrh. álítur, að sér komi þó eitthvað við, að sjávarútvegurinn gangi. En hæstv. fjmrh. aftur á móti gefur þessar yfirlýsingar hvað eftir annað. Og það að ætla ekki að skipta sér af atvinnulífinu á Íslandi, ætla ekki að skipta sér af því, hvort ríkustu menn landsins leggi dýrustu og stærstu togurum landsins, er það ekki ráðstöfun til þess að draga úr aflanum, er það ekki ráðstöfun til þess, að Íslendingar afli minna? Hingað til hafa þær ráðstafanir verið gerðar, þegar útvegurinn hefur verið styrktur, sem kallað hefur verið, að það hefur verið skuldbundið til þess að gera út árið um kring. Gengislækkunin var styrkur, sem útgerðin fékk án þess að taka neina slíka skuldbindingu á sig, og um leið var því lýst yfir, að menn mættu leggja upp togurum eins og þeir vildu, það skyldi enginn skipta sér af því.
Þær ráðstafanir, sem gerðar voru með gengislækkuninni, með vaxtaokrinu og slíku, það eru ráðstafanir til þess að draga úr afla Íslendinga án tillits til þess, hve náttúran væri gjöful eða naum við okkur, þær ráðstafanir, sem hafa þær þjóðfélagslegu afleiðingar að minnka okkar afla og gera okkur erfiðara fyrir að hagnýta hann. Og ef menn hafa ekki gert sér þetta ljóst fyrir fram, þá er bezt fyrir menn að fara að breyta til nú þegar með þá stefnu, sem þeir hafa tekið upp. Ég hélt því hér fram í gær, að þeir ráðunautar, sem ríkisstj. hefði, sæju fyrir þessar afleiðingar og þeir ynnu að þessum afleiðingum af ráðnum hug, þeir væru markvíst að koma á því, sem þeir með fallegum orðum kalla stundum jafnvægi, en því, sem þýðir á venjulegu alþýðumáli atvinnuleysi, jafnvel þótt það kostaði um leið minnkandi framleiðslu þjóðarinnar og vaxandi fátækt.
Þá kom hæstv. fjmrh. inn á það, að síldaraflinn hefði verið minni, og það er nú búið að taka það í gegn, hvernig liggur fyrir með síldaraflann. En ég býst við, að það sé eitt atriðið í því, sem hann hefði reynt að verja sig með, ef hann hefði haft vit á því, að það hafi verið meira af lélegri síld en áður, þess vegna höfum við ekki saltað eins mikið.
Ég hef áður sagt það hérna: Ef ein ríkisstj. sér fram á það, að við eigum í erfiðleikum út af saltsíldinni og að okkur komi til með að vanta upp í þann útflutning, sem við þyrftum að ná, hvað verðmæti snertir, þá er eitt ráð við því, og það er að vinna meira úr síldinni, að taka 20–30 þús. tunnur til að leggja niður, koma upp niðurlagningar- og niðursuðuverksmiðjum til þess. Það þýddi m.ö.o., að það var mjög handhægt með þeirri miklu aðstöðu, sem ríkisstj. hefur nú á Íslandi, að gera slíkar ráðstafanir og það í flýti. Það eru ekki nein ósköp, sem þarf til þess að koma upp slíkri verksmiðju til þess að margfalda þar með það fé, sem við getum fengið fyrir okkar síld með því að flytja hana út. Ríkisstj., sem álítur það einhverju skipta, hve mikið útflutningsverðmæti Íslands væri, og vildi bæta okkur upp það, sem henni fyndist annars vanta upp á, hvað saltsíld snertir, hún mundi hafa forgöngu um slíkt. En ríkisstj., sem hefur tekið að sér að stjórna kerfi, þar sem atvinnureksturinn á að láta lönd og leið, þar sem ríkið ætlar ekki að skipta sér af því, hvernig gengur yfirleitt með þetta, hún lætur þetta náttúrlega sigla og lætur þetta afskiptalaust. En þá þýðir ekki heldur að koma á eftir og vera að óskapast eitthvað út af þessu. Ef einkaatvinnurekendurnir eiga að vera þeir einu, sem öllu þessu stjórna, þá er líklega bezt að fara að hætta að ræða þessi mál hér á Alþingi. En ég er bara hræddur um, að það verði engri ríkisstj. vært hér á Íslandi, sem lætur ekki atvinnurekstur Íslendinga til sín taka, og mér sýnist það frv., sem hér liggur fyrir, þótt ekki sé stór greinin í því, sýna, að það eru þó einhverjir menn í ríkisstj., sem álíta, að atvinnurekstur Íslendinga sé ekki ríkisstj. óviðkomandi. En hæstv. fjmrh. talar eins og það sé nokkuð, sem ríkisstj. varðar ekki nokkurn skapaðan hlut um. En svo miklu hafa þeir menn, sem eru samvizkulausir og skilningslausir á íslenzkt atvinnulíf og sæti eiga í ríkisstj., a.m.k. áorkað, að sú stefna hefur verið upp tekin, þessi glæfrastefna, sem nú er framkvæmd, með þeim afleiðingum, sem nú þegar blasa við. Og það er ekki til neins að ætla að reyna að telja okkur trú um, að það sé náttúrunni að kenna, aflaleysi að kenna eða einhverju öðru slíku. Sjálf þessi stefna miðar að því að draga úr atvinnulífi Íslendinga. Hún miðar að því að koma á atvinnuleysi á Íslandi. Hún miðar að því að verðfella útflutningsvöru Íslendinga. Hún miðar að því að skapa öryggisleysi um markaði í staðinn fyrir markaðsöryggi. Og þegar menn eru að reyna að blekkja bæði aðra og jafnvel sjálfa sig með ræðum um þetta, þá er svo sem ekki nema von, að menn fari líka að reyna að blekkja viðvíkjandi afkomu fólksins, viðvíkjandi lífskjörunum. Þar hefur þó allra greinilegast verið ráðizt á af ráðnum hug og kaupmátturinn minnkaður og atvinnutekjurnar rýrðar. En hæstv. fjmrh. lét sig hafa það hér áðan að reyna að snúa út úr því, sem ég sagði, og reyna um leið að telja mönnum trú um, einmitt á sama tíma og hver einasti kaupmaður f Reykjavík, hvað þá aðrir, finnur til þess, hvernig afkoma fólks hefur versnað, — reyna að telja mönnum trú um, að þetta sé allt í stakasta lagi.
Og svo segir hann, hæstv. fjmrh., að það sé algerlega villandi, það sem ég hafi sagt, að vísitala vöru og þjónustu skipti mestu máli um rétta mynd vísitölunnar. Ég er hræddur um, að það skipti mestu máli um rétta mynd vísitölunnar, hvernig þar er með vöru og þjónustu, og það af tveim orsökum. Í fyrsta lagi: Hvernig er það með vöru og þjónustu? Hvað kostar vara og þjónusta fyrir vísitölufjölskylduna núna? Hún kostar núna í nóvember, þ.e. matur, kjöt og fiskur, mjólk, mjölvara, brauðvörur, nýlenduvörur og ýmsar matvörur, hiti og rafmagn, fatnaður og álnavara, ýmis vara og þjónusta, þetta kostar 56 þús. kr. Og þetta er útreikningur þess opinbera, að þetta þurfi fjögurra manna fjölskylda til þess að lifa mannsæmandi lífi, til þess að hana skorti ekkert. Laun Dagsbrúnarmanns, sem hefur vinnu árið um kring 8 tíma á dag og á að sjá fjölskyldu sinni farborða, eru 48 þús. kr. Þessi Dagsbrúnarmaður hefur ekki einu sinni efni á að veita sér þá vöru og þjónustu, sem er lágmark þess, sem ríkisstj. og ríkisvaldið álítur að fjögurra manna fjölskylda þurfi að veita sér til þess að lifa sæmilegu lífi. Svo kemur fjmrh., sem er búinn að hækka sín laun með skattaráðstöfunum, þegar þau eru lækkuð hjá öllum öðrum, og segir við mig, hvernig ég dirfist að álíta, að þessi vísitala fyrir vörur og þjónustu gefi rétta mynd af lífskjörunum. Dagsbrúnarmaðurinn, sem skv. ráðstöfunum ríkisstj. héðan af fær ekki einu sinni 8 tíma vinnudag hvern einasta dag ársins, getur ekki veitt sér alla þessa vöru og þjónustu. Eftir útreikningum ríkisstj. getur hann ekkert húsnæði veitt sér, hvað þá eitthvað annað. Svo undrast fjmrh., hálaunaður fjmrh., sem hækkar sín laun, þegar hann lækkar þau hjá þeim lægst launuðu, að ég leggi þetta til grundvallar. Þetta í fyrsta lagi: Það vantar 8 þús. kr. upp á, að þessi Dagsbrúnarmaður geti veitt sér þessa vöru og þjónustu á ári. Það liggur nokkurn veginn í augum uppi, hvort það er ekki nokkurn veginn réttur mælikvarði á, hvernig hans lífskjör standa, hve mikið af þessu hann getur veitt sér.
Ef við tökum svo áframhaldið af vísitölunni, hvað kemur þá næst? Þá kemur b-liður og heitir húsnæði. Hvað er hann? Hann er 10 300 kr., og ég ætla að biðja Gunnar Thoroddsen fjmrh., og kannske skilar hæstv. sjútvmrh. því til hans, hvort hann vilji útvega öllum þeim Reykvíkingum, sem biðja hann um það, húsnæði á þessu verði, 10 300 kr. á ári, mannsæmandi húsnæði.
Ætlar fjmrh. svo að fara að halda því fram, að þessi vísitala, þó að ég læsi hana áfram og tæki c-liðinn, opinberu greiðslurnar, sem bætt hefur verið inn í núna 1. okt., — ætlar hann að halda því fram, að þessi vísitala, ef þetta er tekið með, gefi einhverja rétta mynd? Ef fjmrh. þyrði að standa hér fyrir máli sínu, þá þætti mér gaman að sjá hann lýsa húsnæðinu, sem menn fá fyrir 10 þús. kr. á ári hér í Reykjavík. Og svo dirfist þessi hæstv. fjmrh. að koma hér og fara að tala um, að ég sé að gefa hér skakka mynd. Ég er hræddur um, að það sé hér plagg, sem gefur skakka mynd, og að 1. okt. hafi verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að falsa það meira en það var falsað fyrir. Og þó að ég tæki alla vísitöluna og þó að ég drægi frá, eins og ríkisstj. vill láta draga frá, hvað er það þá, sem kemur út í heildinni? Þá kemur út, að einn maður þarf til þess að framfleyta fjögurra manna fjölskyldu að hafa 67 937 kr. tekjur á ári, eða um 68 þús. kr. tekjur. Dagsbrúnarmaðurinn hefur 48 þús. Héðan af á hann ekki að vera viss með einu sinni að hafa vinnu hvern einasta dag ársins, sinn 8 tíma vinnudag. Nú þegar er hér niðri við höfnina atvinnuleysi. Nú þegar hverfa tugir manna frá á hverjum morgni, og Dagsbrúnarmaðurinn er samt á meðal verkamanna í Reykjavík, sem eru betur launaðir en t.d. margir hverjir þeir, sem vinna í iðnaðinum. Dagsbrúnarmanninn vantar 20 þús. kr. á ári í að hafa það, sem þær opinberu skýrslur álíta að þurfi, svo að heimilið skorti ekki, þótt maður reikni með öllum frádrætti ríkisstj. Það er skiljanlegt, að fjmrh., sem talaði eins og vitleysingur hér áðan, þori ekki að standa fyrir máli sínu, þegar rökin hans eru svona.
Hingað til hefur verið séð um meira eða minna á Íslandi, að menn gætu bætt sér upp þau of lágu laun, sem þeir höfðu, með því að vinna lengur. Nú er það afnumið. Nú er það alræði atvinnurekendanna innleitt í íslenzkan þjóðarbúskap, sem gerir það að verkum, að þeir leggja reikningsmælikvarðann á hlutina og afnema eftirvinnu. Þess vegna er nú ekki um neitt að tala, sem heitir að reikna með, eins og jafnvel hagfræðingarnir voru að gera stundum, þegar þeir voru að blekkja með 8 tíma vinnudegi plús 1 tíma í eftirvinnu eða eitthvað slíkt. 8 tíma vinnudagurinn er sá dagur, sem er ætlazt til að menn lifi af með því kerfi, sem nú hefur verið tekið upp.
Ég held, að hæstv. ríkisstj. ætti ekki og sízt fjmrh. að reyna að afsaka sig neitt í augum þjóðarinnar út af erfiðleikum sjávarútvegsins. Ég held satt að segja, að ef menn skyggnast nógu langt í þessum efnum, þá sé greinilegt, að sú stefna, sem er tekin upp, miðar að því að drepa sjávarútveginn. Það, sem byrjað er á hér núna með því að leggja togurunum, og annað slíkt, það eru aðeins fyrstu sporin í þá átt. Þetta er ekki nýtt, og það veit hæstv. sjútvmrh. manna bezt. Í hvert skipti sem amerískar lánsstofnanir hafa haft einhver verulega mikil afskipti og áhrif á fjárfestinguna í atvinnuvegum hér á Íslandi, hafa þau sýnt sinn fjandskap gagnvart sjávarútveginum. Hæstv. núverandi sjútvmrh. var, ef ég man rétt, sjútvmrh. líka 1948. Er það ekki rétt? Hver var þá? Var það Jóhann? (Gripið fram í: Já.) En hann a.m.k. var sá, sem hélt sjómannadagsræðu þá, — var það ekki rétt? (Gripið fram í: Jú.) Hann hefur líklega verið sá, sem hafði með flotann að gera? Og hæstv. núverandi sjútvmrh., ég a.m.k. hélt alltaf, að hann hefði verið aðalmaðurinn í þeirri ríkisstj., ríkisstj. Stefáns Jóhanns, sem beitti sér fyrir því, að það voru keyptir 10 nýir togarar í viðbót við gamla nýsköpunarflotann. Og ég veit, að sú ríkisstj. keypti þá togara í trausti á að fá Marshalllán til þess að greiða þá. Hún fékk ekki Marshalllán, vegna þess að það var „prinsip“ Bandaríkjamanna að veita ekki lán til Íslendinga til þess að kaupa fyrir togara. Og ríkisstj. varð að slá lán í Englandi, sem hún varð að borga tiltölulega fljótt upp. Og það er sama nú, þegar þeir þar vestra eiga að fara að stjórna okkar fjárfestingarmálum og slíku, þá er sami fjandskapurinn gagnvart sjávarútveginum.
Sjávarútvegurinn hefur verið settur sem númer eitt á Íslandi hingað til í öllum okkar efnahagslegu ráðstöfunum, vegna þess að við höfum alltaf álitið, að fyrst og fremst þyrftum við að geta byggt á því að hafa eitthvað til þess að flytja út og til þess yrði sjávarútvegurinn að ganga. Nú er sjávarútveginum vikið til hliðar, og það er enginn Íslendingur, sem mundi hafa gert það. Það eru áhrif annars staðar frá. Nú er sjávarútveginum vikið til hliðar og hagsmunir þess alþjóðlega og sumpart íslenzka verzlunarauðvalds settir sem númer eitt. Þess vegna hefur það kerfi, sem nú er tekið upp, óhjákvæmilega þær afleiðingar, sem ég veit ósköp vel að þeir þar vestra sjá fyrir, að drepa smátt og smátt íslenzkan sjávarútveg, fórna hagsmunum hans fyrir það, sem stundum er kallað frjáls verzlun, og annað slíkt, enda var það engin tilviljun, að það kom fram í leiðara í Morgunblaðinu í vor, að það yrði að hafa það, þó að lífskjör Íslendinga versnuðu, það yrði að taka upp þessa svokölluðu frjálsu verzlun, hvað sem það kostaði, bara hennar sjálfrar vegna. Það var ekki til þess að þjóna þjóðinni eða í hennar þágu, heldur sem eins konar skurðgoð, sem átti að blóta heill þjóðarinnar — lífskjörum þjóðarinnar — á þess stalli.
Þess vegna er það ekkert undarlegt, þó að í hvert skipti, sem þessi mál eru til umræðu, reynum við að einhverju leyti að koma vitinu fyrir þá menn, sem ef til vill væri eitthvað hægt að tala við um þessi mál. Og ég verð að segja það, að ef það skyldi vera svo í kollinum á sumum hæstv. ráðherrunum, að útvegurinn hafi orðið fyrir verðfalli, sem nemi 150 millj. kr., sem hagfræðingarnir voru búnir að reikna með, en þeir hafi ekki gert sér ljóst, eða þeim finnist, að sumpart ráðstafanir þeirra kerfis til aflaminnkunar og sumpart vegna óheppni, þá höfum við haft minni afla upp á 100 millj. kr., þá fæ ég ekki skilið þá pólitík af mannanna hálfu, ef þetta stendur svona í kollinum á þeim, að skella þá endilega þeim byrðum ofan á útveginn í viðbót og láta hann raunverulega borga 70–100 millj. kr. í gróða til Seðlabankans í sambandi við öll þau lán, sem framlengd eru, og hækkanirnar á vöxtunum, sem að lokum hvíla allar saman á sjávarútveginum, þó að þær séu fyrst innheimtar af vörum. Það verður 100 millj. kr. meiri gróði, sem bankarnir koma til með að hafa í ár, heldur en þeir höfðu í fyrra, og ekki hvað sízt Seðlabankinn. Það hefði þó verið nær, ef mönnum fannst, að sjávarútvegurinn yrði fyrir einhverjum skakkaföllum, að létta af honum, að setja vextina ekki úr 5% upp í 9% á endurkaupavíxlunum, heldur úr 5% og niður í 2%. Er það „prinsip“ kerfisins, að ef það gengur illa frá náttúrunnar hálfu, þá skuli það ganga helmingi, helmingi verr frá ríkisstj. hálfu? Ef náttúran íþyngir sjávarútveginum, á þá ríkisstj. að íþyngja honum helmingi meira? Ef aflabresturinn er vágestur fyrir sjávarútveginn, á þá Seðlabankinn að vera enn þá meiri vágestur fyrir hann? Er þetta kerfið? Þetta er kerfið í framkvæmd. Þannig hefur það verið. Hvers á sjávarútvegurinn að gjalda? Látum vera, þó að Bandaríkjamenn hati hann, af því að hann er undirstaðan undir okkar efnahagslega sjálfstæði, en að Íslendingar séu að vega svona að honum, það kemur úr hörðustu átt.
Fyrst hæstv. fjmrh. fór að óska sérstaklega eftir því með ræðu sinni í kvöld, að hér yrðu langar og ýtarlegar umr., atkvgr. og annað slíkt, þá vil ég leyfa mér, til þess að gefa honum tækifæri til þess að átta sig eitthvað á þeim hlutum, sem eru að gerast, og ég ætla nú sérstaklega að hugsa dálítið meira um vísitöluna, að leggja fram brtt., sem ég er með hér skriflegar, um það í fyrsta lagi, að á eftir 1. gr. þessa frv. komi þrjár nýjar greinar; Hin fyrsta af þeim, sem verði 2. gr., verði svo hljóðandi: „23. gr. laganna falli niður.“ Það er greinin, sem núna er um vísitöluna og bannið við að reikna eftir henni. Í öðru lagi, að þar á eftir komi grein, sem verði 3. gr. þessara laga, svo hljóðandi: „25. gr. laganna falli niður.“ Það er greinin, sem lögbindur bátasjómennina. Og enn fremur þriðja greinin, sem verður 4. gr.: „26. gr. laganna falli niður.“ Það er það, sem bindur aflaverð togarasjómannanna.
Það er rétt, að þær ráðstafanir, sem voru gerðar til þess að lögbinda samninga í febrúar þ.á. og sérstök atriði í þeim, eins og vísitöluna, að þessar greinar falli burt. Og ég vil leyfa mér að biðja hæstv. forseta, af því að þessar brtt. eru skriflegar og of seint fram komnar, að leita afbrigða.