17.12.1960
Efri deild: 42. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í B-deild Alþingistíðinda. (347)

134. mál, efnahagsmál

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður, hv. 5. þm. Austf., hefur sýnilega lagt sig í framkróka til þess að reyna að finna þá veiku punkta, sem unnt væri að finna á þeim efnahagsráðstöfunum, sem gerðar voru snemma á þessu ári, og þær veilur, sem hann gæti bent á í þeim útreikningum, sem því voru samfara. Í sjálfu sér fann ég ekki, að hann væri á móti þeim ráðstöfunum, sem felast í þessu frv., sem hér liggur fyrir. Hitt virtist vera aðalatriðið hjá honum, að reyna að sanna á ríkisstj., að henni hefði mistekizt allir sínir útreikningar og að þar hefði ein skekkjan rekið aðra, sem hann rakti í mörgum liðum og ég skal reyna að fara svolítið ofan í og sýna fram á, að þar eru ekki öll kurl komin til grafar, þegar hann hafði lokið sinni ræðu og skýrt málið frá sínu sjónarmiði.

Hann lagði höfuðáherzlu á, að það hefði verið erfitt að finna nokkurt samhengi á milli þeirra upplýsinga, sem komið hefðu um hag og afkomu útflutningssjóðs s.l. 2 ár, og það má vera, að frá hans sjónarmiði sé þetta rétt. En ég vil leggja áherzlu á, að allar þær upplýsingar, sem birtar hafa verið um hag og afkomu útflutningssjóðs, eru frá sjóðsstjórninni sjálfri komnar. Og hver hefur skipað þessa sjóðsstjórn, og hvaða menn mynda þessa sjóðsstjórn? Hefur núv. ríkisstj. skipt þar um menn og tekið menn í sína þjónustu í stjórn sjóðsins, sem ætla mætti að væru henni hliðhollari en hinir fyrri, sem þar áttu heima? Nei, það eru sömu mennirnir, sem fram til síðustu stundar sátu í stjórn sjóðsins, skipaðir af vinstri stjórninni, og það eru þeir, sem allar þessar upplýsingar hafa gefið. Og það er á þeirra ábyrgð, sem allar tölurnar, sem nefndar hafa verið, eru. Ég átti fyrir þremur dögum tal við núv. framkvæmdastjóra útflutningssjóðs, Árna Benediktsson, og hann undraðist í þessu viðtali við mig, hvernig með þessar tölur hefði verið farið, og hann sagði mér og dró ekkert úr, að allar þær tölur, sem fram hefðu komið um hag sjóðsins á undanförnum árum og m.a. tveim s.l. árum, sem hv. síðasti ræðumaður staðnæmdist þó sérstaklega við, væru frá sjóðsstjórninni og þeim komnar. Ég efast ekki um, að þessir menn hafi reynt að gera sér grein fyrir hag sjóðsins eins vel og unnt var á hverjum tíma.

Það, sem hv. þm. var að rekja hér um ýmis tímabil sjóðsins, 1958, 1959 og síðar, það er alveg út í hött, því að það eru ekki sambærilegar tölur, sem hann er að bera saman, og ekki sambærilegir hlutir, sem hann er að bera saman. Ég vil ekki ætla það, að hv. þm. geri það viljandi, en væntanlega þá vegna þess, að hann geri sér ekki grein fyrir því, að það eru ekki sambærilegir hlutir. Þegar við erum að tala um hag og afkomu sjóðsins 1958 og 1959, þá er það eingöngu möguleiki sjóðsins til þess að inna af hendi gjaldfallnar greiðslur. Fyrir og um ársbyrjun 1958 átti sjóðurinn í erfiðleikum með að standa í skilum og geta borgað það, sem hann átti að borga, og það, sem gjaldfallið var, það, sem búið var að gera gjaldeyrisskil fyrir af útflytjendum og sjóðurinn þess vegna var kominn í skuld fyrir, um leið og varan var flutt út og gerð höfðu verið skil fyrir greiðslum. Það hafði verið á fyrri tímabilum svo, að sjóðurinn gat ekki staðið í skilum á réttum tíma með það, sem hann átti að borga. Breytingin, sem verður 1958, er sú, að í staðinn fyrir að vera í skuld, getur maður sagt, eða eiga vangreitt af áföllnu nokkra verulega upphæð, þá á hann í sjóði í árslok lítils háttar upphæð, eða 5 millj. kr., eins og kom fram hjá hv. 5. þm. Austf. Það er rétt. En það þýðir ekki, að afkoma sjóðsins hafi verið orðin góð. Það segir ekkert um ógreiddar skuldbindingar sjóðsins, sem eru ekki fallnar í gjalddaga, ekki nokkurn skapaðan hlut. Og það, sem gerist á árinu 1959, er það, að formaður sjóðsstjórnarinnar, Haraldur Jóhannesson, upplýsir mig um æ ofan í æ, að á því ári hafi gengið betur en nokkru sinni áður að standa í skilum með áfallnar greiðslur. En það þýðir ekki, að það séu gerðar ráðstafanir til þess að afla sjóðnum fjár til þess að greiða allar skuldbindingar sjóðsins, sem eru ekki fallnar í gjalddaga. Þetta er sitt hvort, og þessu má ekki rugla saman.

Ég ætla, að þetta komi af því, að hv. þm. hafi ekki gert sér ljóst, að hérna er um tvo algerlega mismunandi hluti að ræða og tvo hluti, sem alls ekki má blanda saman. Hann segir, að fjmrh. í fyrrv. stjórn hafi í októbermánuði það ár sagt, að útflutningssjóðurinn hefði getað staðið í skilum með áfallnar skuldbindingar. Það er rétt. Hann segir líka, að núv. forsrh. hafi einum mánuði seinna sagt, að það vantaði 250 millj. í sjóðinn: Það er líka rétt. Hvort tveggja er rétt; ef rétt er lesið úr því, sem sagt er. Hv. þm. vildi setja þetta í samband við kosningar, sem þarna fóru fram í millitíðinni. Ég ætla, að báðar tölurnar séu komnar frá útflutningssjóði sjálfum og hreint ekki neitt í sambandi við neinar kosningar. En í öðru tilfellinu er verið að tala um það, sem áfallið er, en í hinu tilfellinu er verið að tala um það, sem þarf til þess að leysa úr öllum skuldbindingum sjóðsins, bæði áföllnum og ekki föllnum í gjalddaga. Það er raunverulegt, að í árslokin 1959, í nóvember og desember, var gerður upp hagur sjóðsins eins nákvæmlega og unnt var, þannig að það vantaði 270. millj.,. til þess að sjóðurinn gæti þá staðið undir sínum skuldbindingum. Þessa upphæð var gert ráð fyrir að greiða á þann hátt, að 150 millj. yrðu fengnar með gengishagnaði af útflutningi á vöru, sem framleidd væri fyrir gengisbreytinguna og seljendurnir fengju ekki gengishagnaðinn af, heldur útflutningssjóðurinn, og það, sem á kynni að vanta, yrði tekið með útflutningsskatti. Það kemur svo í ljós, þegar búið er að gera upp eða komið er fram yfir 15. febrúar. þegar gengislækkunin er framkvæmd, að minna hafði verið flutt út af okkar útflutningsvörum en gert hafði verið ráð fyrir. Ég skal ekki segja, af hverju þetta var. En það er staðreynd, það var minna flutt út á tímabilinu nóvember-desember 1959 og til 15. febr. 1960 heldur en gert hafði verið ráð fyrir og heldur en útflutningssjóður hafði reiknað með.

Við getum hugsað okkur, að það séu tvær ástæður fyrir þessu: Önnur sú, að á sumum afurðunum var fallandi verð, og menn biðu eftir því að selja, vita, hvort verðið rétti sig ekki af, t.d. eins og á mjöli og lýsi. Á hinu leytinu var svo sú hugsun sjálfsagt hjá einhverjum útflytjenda, að það væri ekki vitað, hvernig gengisbreytingalögin mundu verða, og kannske gætu þeir sjálfir, útflytjendurnir, hagnazt eitthvað á því að geyma söluna. M.ö.o.: hvað sem um það er og hver sem ástæðan er fyrir þessari sölutregðu á þessu tímabili, þá er hún staðreynd. það var flutt út minna á þessu tímabili, frá því í árslok 1959 til 15. febr. 1960, heldur en gert hafði verið ráð fyrir. Það þýddi, að meiri hluti af framleiðsluvörunni en gert hafði verið ráð fyrir kom í gengishagnað. Og hvað þýðir, að hún komi í gengishagnað? Það þýðir bókstaflega það, að í staðinn fyrir að útflutningssjóðurinn þyrfti að borga 80% með vöru, sem flutt var út fyrir gengisbreytinguna, þá fær hann eftir gengisbreytinguna 50% tekjur af þessari vöru. M.ö.o.: fyrir hverja milljón, sem út var flutt fyrir 15. febr., þurfti útflutningssjóður að borga að meðaltali 800 þús. kr. með hverri millj., sem út var flutt, en eftir 15. febr. fær hann 1/2 millj, í tekjur. Hann fær 133% gengisálag og sleppur við að borga 80%a uppbætur, þ.e.a.s. mismunurinn á þessu tvennu er í kringum 50%.

Ég held, að hver, sem vill athuga þetta mál af sanngirni og skynsemi, og ég vil ætla þessum hv. þm., að hann vilji beita hvoru tveggja, — ég hef ekki reynt annað af honum, — hljóti að viðurkenna, að þessi aukning gengishagnaðarins veldur því, að það þarf ekki á eins miklum útflutningsskatti að halda og gert hafði verið ráð fyrir, vegna þess að útflutningurinn færist meira en gert hafði verið ráð fyrir yfir á tímabilið eftir 15. febr. s.l. Hann getur kennt ríkisstj. um þetta, og hann getur kennt útflutningssjóðsstjórninni um þetta, eftir því sem hann langar til, en það breytir engu um það, að þetta er ástæðan. Og það er ekki af neinni tilhneigingu til þess að falsa tölur eða gera þetta skakkt upp, að þetta hefur orðið svona. Þetta er bara staðreynd, sem gerir það að verkum, að hagur útflutningssjóðs hefur batnað um tugi millj. kr. fram yfir það, sem gert var ráð fyrir, þegar efnahagslögin voru sett, vegna dráttar á útflutningi. Þetta er ekki af því, að hagur útflutningssjóðs hafi í nóvember–desember 1959 ekki verið eins og sagt var, að það vantaði 270 millj. Nei, vissulega ekki, en þetta er ein afleiðing af þeim efnahagsráðstöfunum, sem gerðar voru 15. febr. 1960. Þessi batnandi hagur útflutningssjóðs er fyrst og fremst orðinn til vegna gengisbreytingarinnar.

Hv. þm. sagði, að nú væri svo komið, að nú ætti sjóðurinn orðið þrátt fyrir allt 88 millj. kr. til þess að deila út eða 40 millj. meira fé en sem næmi innheimtum söluskatti, ef ég hef skilið hann rétt. Og þetta er ekki fjarri því að vera rétt. En þetta er allt saman vegna þess, að gengishagnaðurinn hefur orðið hærri en gert var ráð fyrir og þess vegna hefur ekki þurft á eins miklum útflutningsskatti að halda og gert hafði verið ráð fyrir í upphafi. Hv. þm. vildi halda fram, að hér væri um hið furðulegasta ósamræmi að ræða, eins og hann orðaði það, og glöggt dæmi um þá reikningslist, sem núv. stjórnarstefna væri grundvölluð á. Hér er ekki um neina reikningslist að ræða. Hér er um að ræða afleiðingu af stjórnarstefnunni. Batnandi hagur útflutningssjóðs hefur orðið til vegna gengisbreytingarinnar og eingöngu vegna hennar.

Það hefur reynzt erfitt oft og tíðum að gera sér nákvæma grein fyrir hag útflutningssjóðs. En ég æt]a, að þeir, sem þessar aðstæður hafa metið, — sem er stjórn sjóðsins frá upphafi, stjórn, sem vinstri stjórnin skipaði og bar ábyrgð á allt sitt stjórnartímabil, stjórn, sem hefur verið fátin halda áfram síðustu ár, allt þangað til sjóðurinn var leystur upp, — að sú stjórn hafi ekki gefið aðrar upplýsingar, þó að ný ríkisstj. hafi tekið við, heldur en hún taldi rétt. Ég efast ekkert um, að hún hafi alltaf á hverjum tíma leitazt við að finna réttar tölur og það sé alltaf hægt, ef maður vill beita skynsemi og sanngirni, sem ég var að vona að þessi hv. þm. mundi gera, að finna skýringu á þeim tölum, sem bornar hafa verið fram, þó að það megi líka snúa út úr þeim, ef maður vill gera það.

Ég skal svo hverfa frá þessu atriði um hag sjóðsins. En hv. þm. sagði í lok sinnar ræðu, að það virtist svo sem grundvöllur framleiðslunnar hefði ekki reynzt eins traustur og talið var og þess vegna þyrfti útflutningsframleiðslan á því að halda að fá þetta fé endurgreitt, sem hún hefði að vissu leyti að óþörfu greitt inn í útflutningssjóðinn. Ég er alveg sammála hv. þm. um þetta, að grundvöllur framleiðslunnar hefur ekki reynzt eins traustur og talið var. Það er alveg hárrétt. En af hverju hefur hann ekki reynzt eins traustur? Er það vegna þess, að það sé einhver skekkja í útreikningunum? Þessi grundvöllur framleiðslunnar 1960 var við það miðaður frá upphafi, að sjávarútvegurinn bæri sama eða svipað úr býtum og hann hefði gert árið áður að óbreyttum aflabrögðum og verðlagi. En það, sem hefur skeð á þessu ári, er tvennt, að bæði hefur aflinn minnkað og það svo herfilega t.d. hjá togurunum, að þeir hafa ekki aflað nema 2/3 af því, sem þeir fengu árið sem leið, og það hefur líka skeð, að það hefur orðið verðfall mikið á mjög þýðingarmiklum útflutningsvörum sjávarútvegsins, bæði á mjöli og lýsi, sem hefur hvort tveggja valdið þessum atvinnuvegi ekki neinum smávegis töpum, heldur hundruð milljóna kr. töpum. Og það er þetta, sem gerir það að verkum, að það er nauðsynlegt fyrir þennan atvinnuveg að leitast við a.m.k. að endurheimta það; sem hann hefur ofgoldið í útflutningssjóð eða ekki verið ástæða til þess að hann þyrfti að gjalda. Ég held, að þó að hv. 5. þm. Austf. sé það mjög í mun að sanna á ríkisstj. einhverja vankunnáttu í reikningslist, eins og hann vildi nú helzt orða það, þá er það ekki reikningskunnáttan, sem hefur bilað í þessu tilfelli, heldur hafa bilað þau skilyrði eða þau grundvallaratriði, sem þessi reikningur var byggður á, sem var aflinn og söluverðmætið, og það er vissulega ekki hægt að kenna ríkisstj. um, þó að það sé mikil tilhneiging til þess að reyna að kenna henni um allt, sem miður fer.

Hv. þm. sagði, að ráðstafanirnar og nýja gengið hefði verið við það miðað, að sjávarútvegurinn gæti sjálfur greitt sitt vátryggingaiðgjald, og það er líka rétt. Það var við það miðað. En hvað þýðir það, þegar á einu og sama árinu gerist það, að afli togaranna níu fyrstu mánuðina er 100 millj. kr. minna virði en hann var 1959? Það er skjalfest, að aflinn á togarana níu fyrstu mánuði ársins er 40 þús. tonnum minni en hann var á árinu 1959 og með hvert kg á kr. 2.50 þýðir það í kringum 100 millj. kr. Því hefur líka verið haldið fram og ekki vefengt, að tekjumissir sjávarútvegsins vegna verðfallsins á lýsi og mjöli nemi um 150 millj. kr., og þarna eru komnar á einu ári í þessum tveim atriðum 250 millj. kr. eða kannske upp undir tvísvar til þrisvar sinnum öll vátryggingagjöldin af öllum fiskiskipaflotanum, og eru þá ótaldir erfiðleikarnir, sem þessi atvinnuvegur hefur átt við að stríða af síldveiðunum, sem vissulega hafa einnig verið verulegir. Ég held þess vegna, að hv. þm. megi taka það til greina, að þessir erfiðleikar, sem hér hafa átt sér stað, eru ekki vegna þess, að það hafi skort nokkuð á þá útreikninga, sem gerðir voru í upphafi ársins; heldur eingöngu vegna þess, að utanaðkomandi áhrif, sem voru öllum ósjálfráð, urðu til þess, að afkoman varð lakari en reiknað hafði verið með í upphafi. Ef hins vegar aflabrögðin og verðlagið hefðu orðið eins og í upphafi var reiknað með, þá efast ég ekki um, að sjávarútvegurinn hefði sjálfur getað borgað sín vátryggingagjöld.