19.12.1960
Efri deild: 43. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (353)

134. mál, efnahagsmál

Frsm. 2. minni hl. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Eins og hér hefur komið fram, er í sjálfu sér ekki ágreiningur um efnisatriði þessa frv. Meðal stjórnarandstöðunnar hafa frá upphafi verið uppi sterkar grunsemdir um það, að þessi skattheimta, sem nú á að afnema af útflutningsframleiðslunni, hafi að meira eða minna leyti verið óþörf til þeirra þarfa, sem hæstv. ríkisstj. taldi að væru fyrir hendi og skattheimtunni var ætlað að uppfylla. Þessar grunsemdir hafa vissulega ekki reynzt eða verið ástæðulausar. Sú kynlega vissa er nú ekki einasta fengin, að enginn minnsti fótur hafi frá upphafi verið fyrir þeirri staðhæfingu, að útflutningssjóður þyrfti þessarar skattheimtu við, heldur er nú staðfest af hæstv. ríkisstj., að hann hefði getað staðið við allar skuldbindingar sínar án útflutningsskattsins og átt þá eftir nokkra tugi millj. til ráðstöfunar, eða allt að 40 millj. kr., þ.e.a.s. með gengishagnaði af vörum, sem framleiddar voru fyrir viðreisnina, en fluttar út eftir hana, og ákveðið var um samhliða þessum skatti.

En það má með sanni segja, að saga þessa skatts sé táknræn fyrir viðreisnina alla og þá ekki síður endalok hans en sjálft upphafið. Hann var byggður á fölskum forsendum um afkomu útflutningssjóðs. Það er fullyrt, að hann sé óhjákvæmileg nauðsyn til þess að bæta fyrir gamlar syndir, og það er fullyrt, að útveginum sé ekki aðeins kleift, heldur mjög auðvelt að standa undir honum í 1 eða 2 ár. Um hríð er skatturinn síðan krafinn og afkoma útvegsins og um leið kjör sjómanna skert sem skattheimtunni nemur. En svo kemur reynslan, — bölvuð reynslan, mundu viðreisnarmennirnir kannske segja, — og hún segir þetta: Allt saman tóm vitleysa, það þurfti aldrei að leggja skattinn á, aldrei að rýra kjör útvegsins og sjómannanna, sem honum nam. Og hún bætir raunar við: Útvegurinn gat ekki heldur borið þessa skattheimtu með öðrum þeim klyfjum, sem viðreisnin lagði honum á herðar. — Og hún segir enn þá: Útvegurinn átti inni hjá útflutningssjóði tugmilljónir án þessarar skattheimtu.

Í kjölfar viðreisnarinnar, þó ekki vegna hennar, þeirrar viðreisnar, sem átti að tryggja útveginum það, sem kallað var traustur, varanlegur og heilbrigður starfsgrundvöllur — og reyndar líka öðrum atvinnuvegum þjóðarinnar, kom ein fengsælasta vetrarvertíð bátaflotans, sem um getur. En þessari fengsælu vertíð var ekki fyrr lokið en ríkisstj. varð að viðurkenna, að útgerðin gæti með engu móti staðið undir 5% skatti af útflutningsframleiðslu sinni, og ríkisstj. varð að láta undan síga fyrir kröfum útvegsmanna og lækka skattprósentuna um helming og biðja þingið að breyta viðreisnarlögunum í þá átt, sama þingið og samþykkti, að hún skyldi vera 5%, og sama þingið sem talin var trú um, að slíkt væri rökstudd nauðsyn, sem auðvelt væri að fullnægja. Og nú kemur svo hæstv. ríkisstj. og verður að boða Alþingi þá staðreynd, að allt hafi þetta frá upphafi verið ein samhangandi flækja af reikningsskekkjum og misskilningi. Útvegurinn hefði aldrei verið skuldugur útflutningssjóði um grænan eyri og hefði aldrei átt að greiða honum neitt, heldur hafi þessu verið alveg öfugt farið. Það hafi verið útflutningssjóður, sem átti að greiða útvegsmönnum stóra fjárfúlgu. Menn eru nú orðnir ýmsu vanir, en ég efast um, að ríkisstj. hafi í annan tíma orðið að kyngja öllu betur sínum fullyrðingum en hæstv. ríkisstjórn verður nú að gera varðandi þetta mál. En það verður ekki sagt, að henni farist af neinni sérstakri karlmennsku í þessu sambandi, þegar talsmenn hennar eru að reyna að koma sökinni, sem hún sjálf ber ein og enginn annar, yfir á embættismenn sína. Hafi svo verið, sem taka má trúanlegt, að vafi hafi leikið á útkomunni hjá útflutningssjóði, þá var eðlilegra að bíða og sjá, hverju fram yndi, áður en gripið var til þessarar skattheimtu, — þessarar skattheimtu, sem nú hefur beðið endanlegt skipbrot, eins og nú blasir reyndar við, fyrir öðrum þáttum viðreisnarinnar. Og það er a.m.k. alveg víst, að það voru ekki stjórnendur útflutningssjóðs, sem reiknuðu út eða fullyrtu, að útvegurinn gæti borið þessar álögur. Það gerði ríkisstj. sjálf og þeir af sérfræðingum hennar, sem hún getur ekki á nokkurn hátt firrt sig ábyrgð af.

Hæstv. sjútvmrh. hefur verið að reyna að fleyta sér, að ég vil segja á hundasundi, frá vandræðum sínum á þeirri staðhæfingu, að allt það versta, sem sagt hefur verið um afkomu útflutningssjóðs, hafi verið rétt og satt, en það hafi bara verið gengisfellingin eða gengishagnaðurinn, sem af henni leiddi, sem bjargað hafi því, að hún varð sú, sem nú er orðin raun á. Mér sýnist þó, enda þótt unnt væri að taka þetta sem góða og gilda vöru, að þá væri þetta alls engin afsökun. Gengisfellingin var sem sé staðreynd, þegar skattheimtan var ákveðin, og mátti því auðvitað reikna með afleiðingum hennar í þessu tilfelli eins og öðru. En hæstv. ráðherra gleymir vísvitandi öðru, sem hafa verður í huga, þegar staða útflutningssjóðs er metin að óbreyttu gengi og borin saman við stöðuna eftir gengisfellinguna. Hann gengur sem sagt fram hjá því, sýnilega í þeim tilgangi að villa um, að hefði gengið haldizt óbreytt, þá átti útflutningssjóður raunverulega inni tekjur af öllum útflutningsbirgðum, sem til voru í landinu. Vitanlega hefði komið innflutningur fyrir andvirði þessara birgða og þar með tekjur í útflutningssjóð. Og það skyldi nú vera, að jöfnuður hefði verið nálægt því að nást, ef með þessu hefði verið reiknað, og það þótt engin gengisfelling hefði orðið? Þetta dæmi ætti ekki að vera alveg útreiknanlegt, og þess vegna er það ekki heiðarlegt af hæstv. ráðherra að bera fram þær fullyrðingar, sem hann hefur margtekið í umræðunum, án þess að koma með glöggan útreikning á því, hverjar tekjur sjóðurinn hefði fengið af útflutningsbirgðum, sem til voru í landinu, að óbreyttu gengi. En þannig er allt á sömu bókina lært, hálfsannleikur eða þaðan af minna.

Enda þótt ekki sé, eins og ég hef áður sagt, ágreiningur um þetta frv., fer ekki hjá því, þar sem það er borið fram í sambandi við þau miklu vandamál, sem útvegurinn á nú við að etja, að í sambandi við það sé nokkuð athuguð sú staða, sem hann og atvinnuvegirnir almennt eru nú í, fyrstu áramótin eftir viðreisnina. Ekki mun um það þurfa að deila, jafnvel ekki við hæstv. ríkisstj., að afnám útflutningsskattsins nær harla skammt til lausnar á allsherjarvandamálum atvinnuveganna nú, og sú mynd, sem alls staðar blasir nú við, er vissulega allt annað en falleg og í heldur litlu samræmi við þær gyllingar um traustan grundvöll, heilbrigðan grundvöll og varanlegan grundvöll, sem hæstv. ríkisstj. reyndi að hafa hér uppi fyrir 10 mánuðum. Allar þær fullyrðingar, sem þá voru hafðar hér frammi, hafa reynzt byggðar á jafnfölskum forsendum og sá skattur, sem hér er verið að ræða um. Í hverju einasta atriði viðreisnarinnar hefur sama flækja af röngum forsendum, vitlausum útreikningum og vanhugsuðum aðgerðum endurtekið sig, og á flestum sviðum verður niðurstaðan sú, að engar leiðir sjást út úr vandræðunum, sem stofnað hefur verið til, aðrar en undanhald frá viðreisnaraðgerðunum. Þegar útvegurinn nú er kominn í þrot, þá kemur jafnvel stjórnarliðið ekki auga á neinar leiðir, til þess að hann geti flotið, aðrar en þær að slaka til á viðreisninni, hefja undanhald frá þeim aðgerðum, sem allt áttu að laga fyrir 10 mánuðum. Það má segja, að á þeim tíma, sem liðinn er frá gildistöku viðreisnarinnar, hafi hæstv. ríkisstj. verið á óstöðvandi undanhaldi frá aðgerðum sínum og fullyrðingum sínum um nauðsyn þeirra og gagnsemi. Sjávarútvegurinn átti að geta staðið á eigin fótum, án styrkja og án nokkurra tilslakana á vöxtum og lánum. En hver hefur reynslan orðið? Togararnir hafa þegar fengið 3/4 úr milljón hver fyrir sig í beinan styrk úr útflutningssjóði. Bátaflotinn hefur fengið 10 millj. kr. úr hlutatryggingasjóði umfram það, sem reglur og jafnvel lög heimila, og nú á hann að fá 80–90 millj. í greiðslu tryggingaiðgjalda umfram það, sem viðreisnin ætlaði honum. Allur flotinn hefur fengið fyrirheit um greiðslufrest á afborgunum og vöxtum af stofnlánum, það hafa verið gefin vilyrði fyrir 200–300 millj. kr. nýjum lánum til útvegsins umfram þau, sem lánareglur viðreisnarinnar ætluðu honum, það er látið skina í lækkanir á vöxtum, og fleira mætti telja í þessa átt. Auðvitað er allt þetta ekkert annað en undanhald frá viðreisninni og um leið óáfrýjanlegur dómur um hana.

Þrátt fyrir þetta undanhald, sem þegar er orðin staðreynd, blasir við, að sjávarútvegurinn er nú að stöðvast og atvinnuleysi að skella yfir, bæði af þeim sökum og vegna almenns samdráttar í öðrum atvinnugreinum. Hverjum togaranum af öðrum er nú lagt, en þeir, sem enn þá er haldið úti, sigla allir með aflann á erlendan markað, en frystihúsin, sem eru í raun og veru einu fullkomnu fiskvinnslutækin, sem við eigum til, standa mörg starfslaus og önnur lítið starfandi og hlaða á sig töpum af föstum kostnaði, á meðan verkafólkið, sem unnið hefur við þau, gengur atvinnulaust unnvörpum að miklu eða öllu leyti. Þannig hefur t.d. slagbröndum verið slegið fyrir eitt fullkomið frystihús á Ísafirði nú um margra mánaða skeið, og í hraðfrystihúsinu á Akureyri hefur nær ekkert verið unnið í jafnlangan tíma, eða 3–4 mánuði, en starfsliðið, allt að 200 manns, gengur atvinnulaust að kalla.

Það er líka augljóst, að bátaflotinn kemst ekki á veiðar að óbreyttum rekstrargrundvelli. Fiskkaupendur krefjast lækkaðs fiskverðs, á sama tíma og Dátunum er brýn nauðsyn á hækkuðu verði til þess að standast vaxtaokrið og þær gífurlegu hækkanir, sem hafa orðið á öllum rekstrarvörum vegna gengisfellingarinnar.

Enn fremur er óhjákvæmilegt, að verkafólk í fiskiðnaðinum eins og annars staðar og sjómenn bæði á togurum og bátum fái verulegar launabætur fyrir þá dýrtið, sem nú er að draga lífskjör alls láglaunafólks niður í svaðið.

Ekki tekur betra við, þegar áhrif viðreisnarinnar á ýmsar aðrar atvinnugreinar eru athugaðar. Byggingar íbúðarhúsa hafa á þessu ári dregizt saman um helming hér í Reykjavík og í stærstu kaupstöðunum, en því sem næst þurrkazt út í sjávarþorpunum allt í kringum landið og einnig í sveitunum. Iðnaðarfyrirtæki eru að loka vegna sölutregðu af völdum kjaraskerðinganna, sem almenningur hefur orðið að þola, og verzlanir eru einnig að segja upp starfsfólki vegna minnkandi. vörusölu.

Í sem skemmstu máli: Allt það versta, sem við stjórnarandstæðingar sögðum hér á hv. Alþ. fyrir 10 mánuðum um viðreisnina, er nú að koma fram, er nú að verða að biturri staðreynd í lífi þjóðarinnar, verða að þeirri staðreynd, að það er verið að sigla henni inn í kreppuástand, sem kannske á ekki sinn líka síðan upp úr 1931, þegar atvinnuleysið var í algleymingi, með öllum þeim hörmungum, sem því fylgdu. Þessa siglingu hæstv. ríkisstj. verður að stöðva, áður en það er orðið um seinan. Þann glæp að koma hér á atvinnuleysi verður að hindra hæstv. ríkisstj. í að fremja, ekki hennar sjálfrar vegna, heldur vegna íslenzks almennings, sem verður að þola hann, og vegna íslenzkra hagsmuna. Þessi sigling hæstv. ríkisstj. verður ekki stöðvuð með neinum öðrum ráðum en þeim, að viðreisnaraðgerðunum verði hnekkt í mikilsverðustu greinum og þá fyrst með því að tryggja undirstöðuatvinnuveginum, sjávarútveginum, öruggan rekstrargrundvöll og verkafólki jafnframt verulegar kjarabætur til mótvægis við þá verðhækkunarskriðu, sem stjórnarflokkarnir hafa hleypt af stað.

Höfuðmarkmið viðreisnarinnar var auðvitað sjálf kjaraskerðingin. En til þess að hún gæti tekizt, vissi ríkisstj., að setja varð sjávarútveginn í svelti og gera hann ófæran um að standa undir lífskjörum fólksins, sem við hann vinnur. Þannig átti að sætta láglaunafólk við kjaraskerðinguna og drepa úr því kjarkinn til þess að berjast fyrir sínum rétti.

Þjóðsögur greina frá því, að kuklarar vektu upp drauga til forsendingar á óvini sína, en réðu síðan ekki við uppvakninginn, þegar hann hafði verið særður upp úr gröf sinni. Hæstv. ríkisstj. er nú að ýmsu leyti líkt komin og slíkur kuklari. Viðreisninni var ætlað að skapa sjávarútveginum mátulega slæman rekstrargrundvöll til þess, að það væri hægt að nota hann eins og svipu á verkafólk. Samdrátturinn átti að skapa mátulegt atvinnuleysi til þess að halda launabaráttunni niðri. En ríkisstj. gerði sér ekki og gerir sér kannske ekki enn grein fyrir því, að hún hefur leyst úr læðingi öfl, sem hún hefur ekki vald á. Þegar hún sér, að of langt hefur verið gengið, reynir hún að bjarga sér með undanhaldi, sem getur aðeins veitt henni stundargrið, en vill hins vegar ekki viðurkenna, að engin úrræða hennar duga til þess að beizla uppvakninginn eða koma honum fyrir, og hefur kannske enn þá reyndar takmarkaðan áhuga á því.

Ég tel, að hv. Alþ. standi nú andspænis því verkefni, sem óumflýjanlega verður að vinna, ef forða á efnahagslegu hruni: að skapa sjávarútveginum slíkan rekstrargrundvöll, að hann geti starfað óhindrað og geti jafnframt veitt sjómönnum og verkafólki þau launakjör, sem þessar stéttir geti eftir atvikum sætt sig við. Þetta verkefni jafngildir riftingu viðreisnarinnar í grundvallaratriðum, að svo miklu leyti sem þar var um afturkallanlegar aðgerðir að ræða. Við þm. Alþb. skorumst ekki undan því að leggja okkar úrræði á borðið í þessu sambandi. Við gerum okkur að vísu ljóst, að grundvallarbreyt. þurfa að verða á allri stjórn þjóðarbúsins, ef um langa framtíð á að vera unnt að sækja fram á við, byggja upp efnahagslega traust atvinnulíf og bæta lífskjörin örugglega og stöðugt. En við teljum hins vegar, að unnt sé jafnvel án slíkra grundvallarbreytinga að ráða fram úr brýnustu vandamálunum nú þegar, að það sé unnt að bæta launastéttunum a.m.k. að verulegu leyti launarán viðreisnarinnar nú strax og tryggja um leið fullan rekstur framleiðslutækjanna, þeirra framleiðslutækja, sem nú eru stöðvuð eða eru að stöðvast.

Ein veigamesta till. okkar fjallar um afnám vaxtaokurs, — þess vaxtaokurs fyrst og fremst, sem viðreisnaraðgerðirnar sköpuðu og liggur nú eins og mara á öllum atvinnurekstri og framkvæmdum og reyndar einnig á þúsundum einstaklinga, en þó á engum aðila jafnþungt og á útveginum. Við leggjum til, að almennir vextir verði færðir niður í það sama og þeir voru fyrir viðreisnina, og við leggjum enn fremur til, að vextir af afurðalánum verði lækkaðir nokkru meira eða niður í 3% á móti 9%, sem þeir eru nú í, og á móti 5%, sem þeir voru fyrir viðreisn.

Það liggja ekki fyrir óvéfengjanlegar tölur um það, hve óheyrilegur gráði er soginn úr atvinnurekstrinum og sjávarútveginum alveg sérstaklega með vaxtaokrinu, sem nú er svo stórt í sniðum, að það á hvergi sinn líka í víðri veröld. Við bjuggum við of háa vexti fyrir viðreisnina, en samt voru þeir hækkaðir almennt um 50–60% og að því er afurðalánin snertir um 80%. Hve mikil er sú byrði, sem þannig er ofan á aðrar lögð á útveginn og fiskiðnaðinn, má nokkuð marka af einstökum dæmum. Ég hef t.d. athugað reikninga eins af stærri frystihúsum okkar fyrir s.l. ár, og þeir bera með sér, að það ár námu vaxtagreiðslur þess fyrirtækis 1.7 millj. kr., en á sama tíma voru öll vinnulaun 5.6 millj. Á þessu ári munu vaxtagreiðslurnar hins vegar verða nálægt 2.8 millj. kr., en vinnulaun munu á sama tíma hrapa niður í tæpar 4 millj. Þetta svarar til þess, að lækkun vaxta í það sama og gilti fyrir viðreisn mundi jafngilda 27.5% hækkun vinnulauna, ef vaxtabyrðin er umreiknuð í þau, og ef afurðalán væru enn lækkuð um 2%, mundi þetta frystihús spara sem svaraði til 4.2% af launahækkunum. Lækkunin alls, eins og við leggjum til að hún verði, mundi víst svara til 32% launahækkunar, ef henni væri allri varið í þá áttina. Ef hins vegar væri aðeins notaður helmingur lækkunarinnar til kauphækkunar, eða 16%, væru samt eftir milli 600 og 700 þús. kr., sem verja mætti til hækkunar á fiskverði.

Það skal tekið fram, að ýmis dæmi um hlutföllin milli vaxta og vinnulauna í öðrum frystihúsum og fiskvinnslustöðvum munu sýna miklum mun meiri hlut vaxta í framleiðslukostnaði en þetta dæmi gerir. Jafnvel mun auðvelt að finna dæmi þess, ef sundurliðaður er framleiðslukostnaður á ákveðið magn af fiski, að vextirnir séu nú nálægt því þeir sömu og vinnulaunin. Ég hef fyrir mér eitt dæmi um þetta, þar sem þetta hefur verið reiknað út, aðeins kostnaður við vinnslu á einum . farmi, sem var um tæp 100 tonn, og vaxtabyrðin af vinnslu þessa farms reyndist vera 35 þús. kr. á móti 45 þús. kr. í vinnulaun, og enn óhagstæðari dæmi um þetta mun þó vera hægt að finna.

Ég hygg líka, að í ýmsum öðrum tilfellum, t.d. að því er snertir togara og jafnvel fiskibáta, sem keyptir eru á viðreisnarverði og með viðreisnarkjörum, séu vaxtagreiðslurnar mun hærri en vinnulaunin. Ef við tökum nýjan togara, þá getur vaxtabyrðin vegna kaupa á honum varla verið undir 3.1 millj. kr. á ári, þó að reiknað sé með því, að langmestur hluti af stofnlánum sé erlent lánsfé með erlendum lánskjörum, en hins vegar geta vinnulaun á slíkum togara og í sambandi við slíkan togara varla farið fram úr 3 millj., svo að það er alveg öruggt, að í því tilfelli er vaxtabyrðin a.m.k. jafnmikil og trúlega nokkuð miklu meiri en öll vinnulaunin. Þessir vextir, þetta vaxtaokur, það er svo auðvitað eitt þeirra bókfærsluatriða, sem notað er til þess að blekkja almenning með, þegar verið er að reyna að telja honum trú um, að útvegurinn sé í raun réttri rekinn með botnlausu tapi og þoli engar nýjar byrðar, hvorki í formi kauphækkana né á annan hátt, þó að hið sanna sé, að gróðinn streymi frá honum í allar áttir.

Seðlabankinn einn hirðir nú á þessu ári milli 50 og 60 :millj. kr. í hreinan gróða af vöxtum af afurðalánum einum,. á sama tíma og útgerðin er að stöðvast. Þegar við það er svo bætt gróða annarra banka og lánastofnana og einstaklinga, sem ráða yfir fjármagni, fer ekki hjá því, að samanlögð vaxtahækkun viðreisnarinnar sé einhvers staðar á milli 200 og 300 millj. kr., og af þeirri hækkun ber útvegurinn bróðurhlutann. Sú vaxtalækkun, sem við leggjum til að verði framkvæmd, gerir ráð fyrir að létta allri þessari hækkun, sem orðin er, af og lækka auk þess, eins og ég sagði áðan, afurðalánin verulega umfram það.

Í sambandi við vextina er vert að minna á það, að með Norðmönnum tíðkast vextir, sem eru 2–4%,og jafnvel nokkuð algengt, þar sem um stofnlán er að ræða, að það sé niður í 11/4%. Þetta er á móti 9–12% hér hjá okkur eða jafnvel 13%, þegar um hlaupareikningslán er að ræða, eða aldrei minna en 3–5 sinnum lægri en hér. Í þessum samanburði er svo auðvitað að finna einn mikilvægasta þáttinn í svarinu við þeirri spurningu, sem lengi hefur verið hér uppi, hvers vegna nokkur sjávarútvegur getur staðið undir því að bera nú uppi a.m.k. 20% hærri verkalaun alls verkafólks, sem við hann vinnur í landi, í fiskiðnaðinum og annars staðar, og hvers vegna vinnslustöðvarnar þar geta greitt allt upp í 50% hærra verð eða jafnvel meira fyrir fiskinn. Samanburður á vöxtunum er ein skýringin á þessu: Og þetta getur norskur sjávarútvegur gert, þó að hann sé rekinn að ýmsu leyti við miklu erfiðari skilyrði en hér, þar sem það er t.d. ekkert sambærilegt, eins og ég mun koma litillega að síðar, hvað íslenzkir sjómenn draga mikinn afla á land eða norskir, og ætti því kostnaður útvegs í heild að verða þar miklum mun meiri þegar af þeirri ástæðu.

Á fundi L.Í.Ú. fyrir skömmu lýsti Jónas Haralz, aðalefnahagssérfræðingur ríkisstj., að því er mér er. sagt, því yfir, að engir efnahagslegir örðugleikar væru á því að lækka vexti þá, sem sjávarútvegurinn býr nú við. Örðugleikarnir á því væru einungis stjórnmálalegs eðlis: Þannig stendur nú þessi maður, sem mestu réð um vaxtaokrið, algerlega rökvana gagnvart kröfum útvegsmanna og ég vil segja kröfum þjóðarinnar um það, að okrið verði afnumið og það án tafar.

Við þm. Alþb. leggjum til, að gerðar verði ráðstafanir til þess að létta af útgerðinni a.m.k. nokkru af þeim þungu byrðum, sem á henni hvíla .í formi tryggingariðgjalda. Það liggur fyrir, að öll iðgjöld fiskiskipaflotans á einu ári nemi 115–120 millj. kr. og að þau séu yfirleitt 5–9% af vátryggingarupphæð hvers skips. Svo að aftur sé tekið til samanburðar það, sem gerist í Noregi, þá eru hliðstæð iðgjöld þar af fiskibátum 2–3% af vátrygging. arupphæð. Mismunurinn í heild á tryggingum fiskiskipanna einna, þótt ekki sé tekin með trygging á afurðum, sem mun e.t.v. nema litlu minni upphæð en bátanna, — ég skal ekki segja nákvæmlega um, hvað það er, en það eru mjög miklar upphæðir, — þá mundi þessi munur svara til þess að vera ekki undir 50–60 millj. kr. á ári fyrir allan flotann. Og ég hygg, að þessi mismunur stafi fyrst og fremst af tvennu: Í fyrsta lagi því; að hér er að langmestu leyti um erlendar tryggingar að ræða, sem reknar eru í umboði íslenzkra tryggingafélaga, sem annast tryggingarnar á þann hátt að taka ákveðna prósentutölu og hafa þess vegna hagsmuni af því að hafa tryggingarnar sem hæstar og innheimta sem mest fé, Og í öðru lagi eru hinar háu,tryggingar að nokkru leyti bein afleiðing af lánahömlunum. Lánsfjárskorturinn hefur knúið eigendur: fiskiskipanna til þess í mjög mörgum tilfellum að vátryggja fyrir hærri upphæðir en ástæða er til, jafnvel miklu hærri upphæðir, gegn því að fá lán hjá viðkomandi tryggingafélagi, og þá um leið e.t.v. tryggja með lakari kjörum en annars hefði verið hægt að sæta. En alla vega hygg ég, að enginn vafi leiki á því, að það sé hægt að spara útveginum tugmilljónir með því að koma á fót ríkistryggingu fiskiskipa og fiskafurða og brjóta þannig af útgerðinni þau gróðatök, sem erlend auðfélög hafa á henni í gegnum skattfrjálsa tryggingastarfsemi sína hér. Við þetta bætist svo það, að reynslan hefur orðið sú og á e.t.v. eftir að verða enn sú, að ríkið greiði hvort eð er tryggingagjöldin með einhverjum hætti, og líka af þeirri ástæðu er ekkert eðlilegra en það taki trygginguna í sínar hendur og lækki kostnaðinn sem mest til sannvirðis, en hafi hins vegar aðeins lítinn hluta endurtryggðan erlendis. Fiskifloti okkar er orðinn svo stór, að hann á að geta verið nokkurn veeinn sjálfstæður aðili til að byggja á örugga tryggingastarfsemi.

Það hefur lengi leikið á því sterkur grunur, að farmgjöld íslenzkra flutningaskipa fyrir flutning útflutningsframleiðslunnar séu mikils til of há, miðað við það, sem eðlilegt getur talizt. Víst er, að þau eru miklum mun hærri en þau farmgjöld, sem ýmsar aðrar þjóðir búa við. Og það mun vera hægt að benda á ýmis dæmi þess, að aðrar fiskveiðiþjóðir flytji sína framleiðslu miklu lengri vegalengd en við fyrir lægra gjald en útvegurinn verður hér að greiða til þessarar starfsemi. Það virðist a.m.k. einsætt, að það beri að rannsaka nákvæmlega, hvort skipafélögunum sé nauðsyn á svo háum farmgjöldum sem þau nú taka, og ef svo reynist, sem telja má líklegt, þá verði sett með reglugerð sérstök verðlagsákvæði um farmgjöld fyrir útflutningsframleiðsluna og útveginum léttur sá kostnaðarliður, sem hér um ræðir, um jafnmikið og oftekið kann að vera. Hér er vissulega ekki um neina smámuni að ræða, þar sem farmgjöldin aðeins fyrir freðfiskinn einan munu vera a.m.k. 70–80 millj. kr. á ári — fyrir freðfiskinn einan. Og það gæti því vissulega munað mjög miklu fyrir útveginn, þó að hann fengi ekki nema jafnvel fárra prósenta lækkun á þessum mikla kostnaðarlið.

Það mun ekki vera fjarri því að áætla, að sá tími, sem útvegurinn verður að standa undir afurðalánum sínum, sé nú um 9 mánuðir a.m.k. Það er víst, að meginástæðan til þess, að þessi tími er svo langur og vaxtabyrðin þyngist svo verulega sem raun er á vegna þessa, er sú, að sölusamlögin eða söluhringarnir skila ekki andvirði hinna útfluttu vara fyrr en 5, 6 og jafnvel 7 mánuðum eftir að varan er flutt úr landi. Samhliða vaxtalækkun mundi það því hafa mjög verulega þýðingu og jafnvel úrslitaþýðingu fyrir rekstur útvegsfyrirtækja, ef hægt væri að stytta þennan tíma. Með hliðsjón af þessari þörf útvegsins fyrir lækkun á vaxtabyrðinni og líka með hliðsjón af því, að vitað er, að útflutningsfyrirtæki taka mjög ríflega þóknun fyrir sína starfsemi, eða a.m.k. allt upp í 6%, kannske meira í sumum tilfellum, — með hliðsjón af þessu hvoru tveggja höfum við flutt till. okkar um hað, að söluhringunum verði skylt að skila andvirði útfluttra vara eigi síðar en einum og hálfum mánuði eftir að varan er flutt úr landi. En það er kunnugt, að fisksöluhringarnir nota þennan biðtíma fyrst og fremst til þess að skapa sér rekstrarfé til þess að reka verzlun og atvinnufyrirtæki í þremur af markaðslöndum okkar. En í flestum eða öllum öðrum markaðslöndum fer greiðslan fram a.m.k. mjög fljótlega eða jafnvel samtímis og útflutningurinn fer fram, og þess vegna er algerlega ástæðulaust að veita hringunum nokkrar ívilnanir í þessu efni. Það er enginn vafi á því, að þetta, eins og ég sagði áðan, mundi hafa mjög mikla þýðingu til lækkunar á kostnaði útvegsins, við hliðina á þeirri sjálfsögðu ráðstöfun að hækka nú hluta afurðalána upp í svipaða upphæð og var fyrir viðreisnina, eða upp í 2/3 af áætluðu framleiðsluverði.

Ég er ekki í neinum vafa um, að þessi fjögur atriði, sem þær tillagna okkar, sem sérstaklega varða útveginn, fjalla um, eru einmitt þau atriði, sem mestu ráða um það, að t.d. sjávarútvegur Norðmanna getur risið undir, eins og ég sagði áðan, allt að 50% hærra fiskverði en hér og a.m.k. 20% hærri launakjörum í almennu kaupgjaldi. Þetta ásamt með betri nýtingu á hráefnum og framleiðslutækjum, að útvegurinn þar er a.m.k. ekki eins mergsoginn af okurvöxtum, ekki jafntröllriðinn af tryggingafélögum, farmskipaeigendum, útflutningshringum og olíufélögum, veldur því, að norskur sjávarútvegur býr sínu verkafólki og útvegsmönnum um leið betri kjör en hér, þó að Norðmenn eigi við að stríða slíkt aflaleysi á heimamiðum sínum, að hér yrði áreiðanlega engin fleyta hreyfð við svipaða aflavon.

Ég hef gluggað ofur lítið í norskar aflaskýrslur, og ég hef m.a. séð það, að í vetrarvertíðinni við Lófóten á s.l. ári tóku þátt um 10 þús. norskir sjómenn, og þessir 10 þús. menn drógu afla að landi á 10 vikum upp á 44 þús. tonn, eða innan við 41/2 tonn á hvern mann. Hér mundi það þykja lítið, ef afli á sama tíma næmi ekki 20–30 tonnum á hvern sjómann. En svo koma hér menn, jafnvel hæstv. sjútvmrh., og telja lítilfjörlegan aflabrest, litilfjörlegan aflabrest, ef á heildina er litið, — vera einhverja allsherjar afsökun fyrir öllum, bókstaflega öllum vandræðum, sem útveginum og um leið þjóðinni hefur verið stefnt út í. Sömu mennirnir sem lögleiddu vaxtaokrið og lánahömlurnar, sömu mennirnir sem hafa ofurselt útveginn okri á tryggingum og leyft án takmarkana hækkanir á farmgjöldum, sömu mennirnir sem felldu gengið og hækkuðu allar rekstrarvörur útvegsins um hundruð millj., en létu fiskverðið standa svo til óbreytt, þær einu tekjur, sem bátaflotinn hefur, — þessir sömu menn eru vissulega ekki kjarklausir, þegar þeir koma fram fyrir hv. Alþingi og fram fyrir þjóðina og segja, að hér væri allt, bókstaflega allt í bezta gengi, ef afli hefði ekki brugðizt svo hrapallega og mjölið hefði ekki fallið svona óskaplega, síðan viðreisnin tók gildi.

Ég tel. að sagan um verðfallið á mjölinu síðan um viðreisn sé einhver allra ósvífnasta blekking, sem við höfum heyrt hér lengi, og er þó af ýmsu þar að taka. Það sanna í því máli er það, að á haustnóttum á s.l. ári var heimsmarkaðsverð á síldarmjöli komið niður fyrir 11 shillinga á prótein-einingu, og þetta heimsmarkaðsverð á síldarmjölinu hélzt lengi og stöðugt. Ég hygg, að það sé mjög auðvelt fyrir hvern þann hv. þm., sem vill hafa það, sem satt reynist í þessu, að hafa tal af einhverjum af þeim, sem flytja út fiskimjöl og starfa hér í höfuðstaðnum sem umboðsmenn erlendra mjölkaupenda, og fá staðfestingu á þessu. Hitt er rétt, að það fóru ekki fram miklar sölur á þessu verði, vegna þess að útflutningsyfirvöld hér synjuðu mjölframleiðendum um að selja á svo lágu verði — synjuðu um það. En afleiðingin af því varð svo aftur sú, að Suður-Ameríkumennirnir, sem buðu þá um sama leyti mjölið á þessu verði, þessu heimsmarkaðsverði, tóku af okkur markaðinn. En til samanburðar má svo seta þess, að á þessu ári hefur verðið hins vegar hækkað upp í yfir 12 shillinga á prótein-einingu. Nei, þessir herrar, sem nú eru að bisa við að telja manni trú um, að verðfallið á fiskimjölinu og síldarmjölinu hafi ekki legið fyrir, þegar gengisfellingin var ákveðin, þeir höfðu ekki aðeins haft þetta verðfall fyrir augum, þegar rekstrargrundvöllurinn fyrir útveginn var ákveðinn, eins og þeir reyndar taka fram í greinargerð fyrir efnahagsmálafrv. í fyrra, þeir höfðu ekki aðeins orðið varir við þetta verðfall, þeir höfðu haft það fyrir augunum í a.m.k. sex mánuði. Og það þýðir auðvitað ekkert, hvorki fyrir hæstv. sjútvmrh. né aðra, að ætla sér að fleyta sér frá þessari staðreynd með því að segja, að heildarverðmæti mjölsins á þessu ári sé minna en ífyrra, vegna þess að það er auðvitað rétt, að fyrri hluta árs 1959 var verðið hærra. En um það leyti sem viðreisnin var framkvæmd, eða rétt skömmu áður, þá var mjöl hér selt á því lægsta verði, sem það hefur nokkurn tíma farið í, síldarmjölið.

Og svo er það aflabrestur. Í október s.l., eða þegar liðnir voru 3/4 hlutar af árinu, var allur afli annar en síld orðinn kringum 6% meiri en á sama tíma í fyrra, — allur samanlagður afli togara og báta orðinn nokkru meiri en á sama tíma í fyrra. Það, sem þar kom til, var fyrst og fremst það, að þorskvertíðin var sérstaklega fengsæl og gaf meira í hönd, eða kringum 14% meira en nokkur dæmi eru til í sögunni áður. Minni afli togaranna dregur þetta aukna aflamagn niður, eins og ég áður sagði, en þó ekki svo, að samanlagður heildarafli af öðrum fiski en síld var meiri fyrstu þrjá fjórðunga ársins en í fyrra. En það er satt, að síldaraflinn var þá kringum 50 þús. tonnum minni en á sama tíma 1959. En þá var, eins og alkunnugt er, algert metár í sögu íslenzkra fiskveiða og síldarár jafnframt það bezta, sem orðið hafði í 15 ár samfleytt. Árið 1958 hefur verið talið og það með réttu gott ár, mjög gott aflaár, og það ár gaf heildaraflamagn upp á 520 þús. tonn. 1959 gaf okkur aftur á móti 560 þús. tonn, — hafði aukizt um nálægt 40 þús. tonnum á árinu 1959. Ég get auðvitað ekki fullyrt um það, hvert heildaraflamagnið verður núna í ár, þegar öll kurl eru komin til grafar, m.a. síldveiðin núna í haust, bæði fyrir norðan og sunnan, og allur afli til áramóta kominn fram. En ég hef fyrir mér skoðanir kunnugra manna um, að það sé a.m.k. mjög ólíklegt, að aflinn fari niður fyrir það, sem hann var 1958, að hann verði ekki a.m.k. kringum 520 þús. tonn. Við skulum jafnvel reikna með því, sem hæstv. ráðh. hefur látið hér liggja að eða jafnvel fullyrt, að aflinn í ár verði 40 þús. tonnum minni en í fyrra. En þá verður hann samt jafnmikill og hann var 1958, og sá munur verður þá allur á síldinni, en ekki öðrum fisktegundum. En við þessar tölur er þó ýmislegt að athuga. Siglingar togaranna hafa t.d. dregið úr afla þeirra, sem svarar a.m.k., þó að reiknað sé af fyllstu samvizkusemi, 10–12 þús. tonnum, og togurum hefur verið lagt, t.d. tveimur togurum allt árið, þ. á m. þeim togurum, sem hæstv. ríkisstj. rekur eða hafa verið reknir á hennar vegum, og öðrum togurum um lengri eða skemmri tíma. Það er því óhætt að fullyrða, að verri nýting togaranna til veiða á sök á a.m.k. helmingi af þeim mismun, sem hér kann að verða á árinu í ár og árinu í fyrra. Það er auðvitað alveg rétt, sem tekið hefur verið fram, að nokkur aukning hefur orðið á flotanum, sérstaklega á þessu ári. En þess er þá líka að geta, að mörg skip hafa gengið úr. Það er nefnilega þannig með íslenzka flotann, að skipin ganga ekki endalaust, og það hafa gengið mörg skip úr flotanum, svo að aukninguna, sem orðið hefur, ber ekki nálægt því að miða við þá rúmlestatölu, sem inn er flutt af skipum. Og við það er líka þá aths. að gera um aukninguna, sem orðið hefur á þessu ári, að þar hefur ekki verið um að ræða veiðar allt árið, heldur aðeins hluta úr árinu.

Nú er okkur sagt, að þessi trausti og varanlegi grundvöllur, sem hér átti að leggja fyrir rekstri atvinnuveganna og ég hef áður minnzt á, hafi allur byggzt á því, að aflabrögð yrðu ekki lakari en í fyrra, þ.e.a.s. heldur en í mesta aflaári, sem orðið hefur í sögu íslenzkra fiskveiða. Ég kalla þetta tíðindi. Hingað til hefur rekstrargrundvöllur báta og togara alltaf verið miðaður við meðalafla í nokkur ár, — aldrei miðað við eitt ár, þegar frá rekstrargrundvellinum hefur verið gengið, heldur meðalveiði svo og svo margra ára, venjulega 5 ára. Og ég vil bara segja: Hvers konar skynskiptingar eru þeir menn, sem ætla að byggja traustan grundvöll atvinnulífsins á því, að aldrei geti orðið neinar sveiflur í aflabrögðum, það sé tekið bara bezta árið og sagt: Svona verður það áfram? Slíkir útreikningar þola ekki nokkurn minnsta andbyr, sem við hljótum þó alltaf að þurfa að búa okkur undir að mæta. Ég held raunar, að talsmenn hæstv. ríkisstj. séu hér að gera sig aumari en efni standa til. Ég rengi það, að þeir hafi gert sig seka um svo augljósa fásinnu og þeir eru hér að saka sjálfa sig um. En hitt mun svo aftur vera nær sanni, að allir útreikningarnir hafi veríð gerðir af álíka skarpskyggni um afleiðingar og á álíka traustum forsendum og þeir útreikningar, sem lágu til grundvallar útflutningsskattinum, sem stjórnin verður nú að játa að aldrei hefði þurft að leggja á og hafi verið byggður á algerum misskilningi og röngum útreikningum.

Ég sagði hér áðan, að svelti sjávarútvegsins að yfirlögðu ráði annars vegar og kjaraskerðing launamanna hins vegar væri grundvallaratriði í viðreisnarráðstöfununum. Framkvæmd þessara grundvallaratriða er nú að leiða af sér kreppu í atvinnulífinu, samdrátt á öllum sviðum, og það getur engum dulizt, að voði er fyrir höndum, ef svo heldur fram sem nú horfir. Það er þess vegna höfuðnauðsyn, ekki aðeins fyrir verkalýðsstéttina, heldur fyrir alla þjóðina, að þessar tvær grundvallarástæður fyrir .hinu geigvænlega- ástandi, sem nú er að skapast, séu afmáðar og brotnar á bak aftur. Ef sjávarútveginum yrðu sköpuð góð starfsskilyrði og launakjörin bætt í kjölfar þeirra, þá margfaldast líka líkurnar fyrir því, að siglt verði fram hjá öðrum boðum samdráttax og kreppu, sem nú sést brjóta á. Um leið og við þm. Alþb. berum fram till. okkar um betri afkomuskilyrði útvegsins, leggjum við þess vegna til, að verkalýðssamtökunum séu á ný tryggð þau mannréttindi, sem núv. hæstv. ríkisstj. svipti þau með efnahagsmálalöggjöf sinni; þ.e.a.s. að þau, megi á ný gera frjálsa samninga um það við atvinnurekendur, að þau megi mæta hækkuðu verðlagi, ef þau telja sér hagkvæmt að gera um það samninga, með hækkuðum launum. Við teljum, að samþykkt þessaran till. okkar sé algert lágmark aðgerða í þá átt að tryggja vinnufrið í landinu og að látið sé af svo augljósri mannréttindaskerðingu sem hér er um að ræða.