19.12.1960
Efri deild: 43. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (354)
134. mál, efnahagsmál
Jón Árnason:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., um breyt. á l. um. efnahagsmál, hefur gefið hv. stjórnarandstæðingum tilefni til þess að ræða á breiðum grundvelli um efnahagsmálin almennt og þau áhrif, sem lögin um efnahagsmál, er sett voru snemma á þessu ári, hafi haft á rekstrarafkomu atvinnutækjanna og þá sérstaklega sjávarútvegsins. Því hefur verið haldið fram af stjórnarandstöðunni að með þessu frv. sé á ný gripið til uppbótakerfisins. Þeir hafa sagt, að efnahagsráðstafanirnar hafi verið við það miðaðar, að bátarnir gætu sjálfir greitt sín vátryggingariðgjöld, og það er einmitt það og ekkert annað, sem skeður, verði frv, það, sem hér um ræðir, að lögum. Í upphafi var útflutningsskatturinn 5%, en síðan lækkaður um helming; niður í 21/2% á s.l. vori. Var þá um það rætt, að skattstofninn mundi þurfa að standa nokkru lengur en ella. Hitt er svo annað mál, og það var skýrt fram tekið í aths. með efnahagsfrv., að skatturinn skyldi úr gildi numinn, þegar eftir að nægilegt fé hefði aflazt, til þess, að útflutningssjóður gæti að fullu staðið við skuldbindingar sínar. Í aths. við efnahagsfrv. segir um, þetta, eftir að rætt hefur verið um greiðsluþörf útflutningssjóðs og áætlaðar þær tekjur, sem gert er ráð fyrir að sjóðnum mundu falla í skaut í sambandi við gengishagnað af óútfluttum afurðum, framleiddum fyrir 15. febr. 1960, með leyfi hæstv. forseta: .
,;Þessi upphæð mun þó ekki duga til — að greiða skuldbindingar sjóðsins. Er óhjákvæmilegt að afla meira fjár í þessu skyni, og er það tillaga ríkisstj., að það verði gert með því að leggja 5% skatt á allan útflutning. Er gert ráð fyrir, að þessi skattur gefi af sér um 120 millj. á árinu 1960 og að hann verði úr gildi felldur, þegar eftir að skuldbindingar útflutningssjóðs hafa verið að fullu greiddar, nema því aðeins að aðstæður hafi breytzt mjög verulega frá því, sem nú er.“
Er hér að sjálfsögðu átt við, að aðstæður hafi að verulegu leyti breytzt til batnaðar.
Nú hefur það komið fram í umr. um málið og þá sérstaklega í hv. Nd., að ekki hafi verið um neinn aflabrest að ræða á yfirstandandi ári, hvorki hjá bátaflotanum né togurunum. Þeir hafi aðeins skipt um veiðisvæði til þess að geta siglt með aflann á erlendan markað, þess vegna séu veiðiferðirnar færri og aflinn minni. Hér er að mínu áliti algerlega farið með rangt mál, þegar til þessa er vitnað í sambandi við aflabrestinn:
Það er alkunnugt, að á árinu 1958 var afli togaranna mjög góður og aflamagnið aldrei meira, en aðaluppistaðan í aflanum þá var karfi. Sá karfi var fiskaður á fjarlægum miðum, við Nýfundnaland og Vestur-Grænland. Héldust þau aflabrögð nokkuð. fram eftir árinu 1959. Var hér um gífurlega stór hafsvæði að ræða, svo að það þótti ósennilegt, að afli á þeim miðum gengi mjög fljótt til þurrðar. Það er skoðun fiskifræðinga, að sú aflatregða, sem .nú á sér stað á hinum fjarlægari miðum, eigi ekki eingöngu rót sína að rekja til ofveiði. Það er þeirra álit, að orsökin sé jafnvel enn þá fremur í því fólgin, að viss skilyrði hafi breytzt og að fiskurinn haldi sig því ofar og dreifðara í sjónum en hagkvæmt sé fyrir togarana. En hvað sem því líður, þá áttu þessi miklu aflabrögð togaranna á árinu 1958 sinn þátt í því, að á s.l. ári var samið um smíði á 4–5 nýjum. togurum af nokkru stærri gerð en Íslendingar höfðu áður átt. Hafði þá um árabil legið niðri öll endurnýjun togaraflotans og því ekki vanþörf á, að hafizt væri handa. Því miður hefur allt þetta ár átt sér stað mikil aflatregða hjá togaraflotanum, og í stærstu vélbátaútgerðarstöð landsins, Vestmannaeyjum, vantaði mikið á, að vertíðaraflinn gæti talizt hagstæður, enda þótt ræðumenn hafi haldið því fram aftur og aftur, að s.l. vertíð hafi verið mjög góð og langt fram úr meðallagi alls staðar á landinu. Á síldveiðunum var afkoma svo bág, að hlutatryggingasjóður varð að hlaupa undir bagga, og talar það skýrustu máli. Á meðan aflinn hjá togaraflotanum er svo rýr, sem raun ber vitni, hafa togararnir freistazt til þess að sigla með aflann á erlendan markað og hagnýta sér á þann hátt hagstætt söluverð, sem nú hefur verið erlendis og á vissulega rætur sínar að rekja til almennrar aflatregðu, sem fleiri þjóðir en Íslendingar einir eiga við að búa. Samhliða aflabrestinum hefur svo enn fremur átt sér stað, svo sem hér hefur verið margoft bent á, geysilegt verðfall á öllu fiskimjöli og lýsi, og það er svo stórkostlegt, að miklar líkur eru fyrir því, að til framleiðslustöðvunar hefði komið hjá togaraflotanum hvað viðkemur karfaveiðunum, enda þótt ekki hefði komið til sá aflabrestur, sem átti sér stað. Það má telja nokkurn veginn fullvíst, að það verðfall, sem varð á afurðunum í sambandi við mjöl og lýsi, hafi verið svo tilfinnanlegt, sérstaklega fyrir karfaveiðarnar, að það eru mjög mikil líkindi til, að þrátt fyrir það, að afli hefði verið sæmilegur á hinum fjarlægari miðum hvað karfaveiðar snerti, þá hefði komið til stöðvunar á veiði þeirrar fisktegundar. Svo mikill þáttur er nýting á úrgangi karfa, bæði hvað snertir mjölvinnslu og lýsi, að það er einmitt mjög sennilegt, að það hefði ekki verið hægt að halda úti togaraflotanum á þeim veiðum.
Það hefur verið á það bent, að samkv. grg. efnahagsfrv. hafi hagfræðingarnir reiknað með umræddu verðfalli. Þetta er rétt, svo langt sem það nær. En því er við að bæta, að verðfallið var alls ekki að öllu leyti komið, þegar gengið var frá efnahagslöggjöfinni, eins og fram kom hér hjá síðasta ræðumanni, snemma á þessu ári, því að verðfallið hélt áfram langt fram á árið, og í því sambandi má benda sérstaklega á, að þær áætlanir, sem stjórn síldarverksmiðja ríkisins gerði í júnímánuði um áætlað söluverð þessara afurða, stóðust ekki. Verðlækkunin hélt þá enn áfram ásamt mikilli sölutregðu, því að það er kunnugt, að löngu eftir að farið var niður í þetta lægsta verð, sem afurðirnar komust, þá var þrátt fyrir það slík sölutregða, að markaðir fundust ekki fyrir vöruna.
Það, sem hér um ræðir og frv. þetta felur í sér, er sú ákvörðun, að eftirstöðvum útflutningssjóðs skuli varið til greiðslu á vátryggingariðgjöldum fiskiskipaflotans og að innheimt verði sem svarar um 80 millj. kr. meira en ráðgert hafði verið. Það er áður fram komið, að skatturinn skyldi niður falla, þegar upphæðin nægði til þess að greiða að fullu skuldbindingar útflutningssjóðsins. Það, sem til álita gat komið um útflutningsskattinn, var í fyrsta lagi að fella hann niður þegar í stað, þar sem hann hafði fullnægt hlutverki sínu, og endurgreiða síðan framleiðendum eftirstöðvarnar, eða þá að verða við óskum útvegsmanna, sem hér eiga langstærstan hlut að máli, og verja eftirstöðvunum til greiðslu á vátryggingariðgjöldunum og innheimta til viðbótar óbreyttan skatt af allri framleiðslu ársins 1960. Ríkisstj. hefur orðið við óskum útvegsmanna í þessu efni. Það er enn fremur þegar fram komið, að hv. þm. eru almennt málinu hlynntir. Landssamband útvegsmanna hefur nú samþykkt að óska þess, að slíkt útflutningsgjald sem hér um ræðir verði innheimt af framleiðslu ársins 1961, enda renni skatturinn í sérstakan vátryggingarsjóð fiskiskipaflotans. Útvegsmenn óska ekki eftir þessari ráðstöfun til þess að viðhalda uppbótakerfinu, enda á þetta ekkert skylt við uppbætur, heldur er það ráðstöfun á hluta af heildarandvirði afurðanna til að tryggja þýðingarmikinn þátt og til þess að tryggja á vissan hátt rekstraröryggi útvegsins.