21.11.1960
Efri deild: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (370)

85. mál, Bjargráðasjóður Íslands

Friðjón Skarphéðinsson:

Herra forseti. Frsm. heilbr.- og félmn., Unnar Stefánsson varaþm., er vikinn af þingi, en ég hleyp í skarðið fyrir hann, til þess að gera með fáum orðum grein fyrir afstöðu n., en málinu var á sínum tíma til hennar vísað og hún hefur síðan um það fjallað.

N. var sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. með lítils háttar breytingum, sem greint er frá á þskj. 120.

Þegar málið var til 1. umr. í þessari hv. d. hinn 8. nóv. s.l., fylgdi félmrh. því úr hlaði og rakti efni þess allrækilega og gerði m.a. grein fyrir þróunarsögu bjargráðasjóðs. Ég tel ekki efni til að endurtaka neitt af því né ræða frekar einstakar greinar frv. en í heild sinni miðar það að því að efla sjóðinn, þannig að hann verði betur því hlutverki vaxinn, sem honum er ætlað.

Hin fyrri brtt. á þskj. 120, sem heilbr.- og félmn. ber fram, þarf ekki skýringa við. Hún er ekki efnisbreyting, en einungis til þess að hugsunin verði skýrar orðuð. Hin síðari brtt. þarf raunar ekki heldur skýringar, en í henni felst það, að lögin skuli öðlast gildi hinn 1. jan. 1961, í stað þess að frv. ráðgerir, að það skuli öðlast gildi þegar í stað. Með frv. er ráðgerð nokkur skipulagsbreyting á sjóðnum og aukning á skyldum þeirra aðila, sem leggja sjóðnum fé, og er því eðlilegt að miða gildistökuna við áramót, enda hefst þá nýtt reikningsár sjóðsins.

Ég legg til, herra forseti, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.