21.11.1960
Efri deild: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

85. mál, Bjargráðasjóður Íslands

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Hv. frsm. hefur staðfest það, sem ég hélt fram, að það sé venjan að hafa oddatölu í stjórn sjóða. Ég hygg, að það sé svo að segja algild regla. Hann svaraði því, að sjálfsagt félli það mál, sem fengi aðeins 2 atkv. En þetta er ákaflega óheppilegt fyrirkomulag, hvar sem það er, að mál eyðist, að mál falli, ekki hægt að afgreiða mál bara fyrir það, að það eru fjórir hafðir í stjórn sjóðsins. Þetta er nefnilega afturför frá því, sem var. Það voru þrír í stjórn sjóðsins. Ef það þarf endilega að bæta við forstjóra Sambands ísl. sveitarfélaga, þá er áreiðanlega hægt að finna einhverja hliðstæða stofnun við Fiskifélag Íslands og Búnaðarfélag Íslands, sem gæti nefnt einn mann, svo að það væri oddatala í stjórninni. Ég vil beina því til hv. n., hvort hún vilji ekki athuga þetta atriði frv. fyrir 3. umr, og bæta úr því.