09.02.1961
Neðri deild: 58. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (423)
112. mál, ríkisreikningurinn 1959
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Það er sagt, að „sannleikanum verði hver sárreiðastur“. Þetta kom mér í hug, þegar ég hlustaði á ræðu hv. 4. þm. Norðurl. v., því að það mátti gerla heyra, að maður sá var reiður mjög. Ég vil víkja að því fyrst, að ég mun ekki hér í ræðu minni fara að gera upp um ræður manna, hvorki þessa þm., sem nú var að fara úr ræðustólnum, né annarra, hvort þeir fari með rugl, séu geggjaðir eða séu að gera sig að viðundrum. Slíkur málflutningur hæfir þeim, sem vilja hann nota, og þeir þurfa ekki að nota hann, sem rökum geta beitt.
Ég benti á það hér í minni ræðu, og það var tilefnið til þess, að ég tók hér til máls, að hv. þm. hefði sem trúnaðarmaður Alþingis ekki staðið svo á verðinum sem skyldi. Þetta kemur fram í hans eigin áliti með undirskrift athugasemdanna við ríkisreikninginn. Ég vil spyrja þennan hv. þm.: Af hverju er hann og hans samstarfsmenn að taka það fram nú, að það sé svo og svo mikið eftir óendurskoðað af ríkisreikningnum, ef þetta er venja? Og af hverju eru þeir kallaðir yfirendurskoðendur? Það er af því, að þeir eiga að endurskoða, þegar önnur endurskoðun hefur farið fram. Ég er sannfærður um það, þó að ég hafi ekki unnið á þeim bæ, að það er hin umboðslega endurskoðun, sem fyrst og fremst finnur athugasemdir og hún bendir yfirendurskoðendum á margt í því efni. Hún hlýtur að hafa til þess mun betri aðstöðu en þeir. Þess vegna ríður þeim á, að hún sé búin að fara fram, áður en þeir vinna sitt verk. Hvernig heldur hv. þm., að væri litið á það í sýslunefnd, ef þangað kæmi hreppsreikningur, sem væri endurskoðaður aðeins af endurskoðanda sýslufélagsins, en ekki af heimakjörnum endurskoðendum? Honum mundi verða vísað frá, vegna þess að eðlilegum undirbúningi væri ekki lokið. Þetta fann hv. þm., og hann fann það, að hann hafði að beiðni hæstv. fjmrh. farið í verkið með of miklum hraða og flaustrað því af, án þess að eðlilegum undirbúningi væri lokið. Það skiptir mestu fyrir hv. Alþ., að þegar ríkisreikningurinn kemur til þingsins, þá sé búin að fara fram sú athugun, sem á að vera búin að fara fram, og þingið byggir svo sína samþykkt á yfirendurskoðun og undirendurskoðun, sem á að vera búin að fara fram, þegar samþykktin er gerð, enda eiga yfirskoðunarmenn, eins og ég tók fram áðan, líka að hafa eftirlit með hinni umboðslegu endurskoðun, gera sér ljóst, hvort hún fer fram á eðlilegan hátt eða ekki. Þessu verður ekki á móti mælt, og af því að þetta var vanrækt, var hv. þm. svo reiður sem raun bar vitni um og flutti þá ræðu, sem hann flutti hér áðan.
Þá var það með þrotabúið, og nú var nokkuð skipt um skeið. Nú var ríkissjóður ekki neitt þrotabú. Það var allt annað, sem átti að vera þrotabú, þó að það væri ríkisreikningurinn, sem var verið hér að ræða um, þegar hv. þm. fór að tala um þrotabúið. Það, sem gerðist, þegar vinstri stjórnin fór frá, var einfaldlega það, að það var ekki samstaða í ríkisstj. hjá þeim flokkum, sem fóru þá með völdin í landinu. Það var brostinn grundvöllurinn um samstarf við stéttafélögin, sem þessi ríkisstj. byggði sína tilveru á, og þá gerði hún það eina, sem rétt var, hún sagði af sér. Hún átti ekkert að gera annað. Grundvöllurinn, sem hún byggði á, var samstaðan við stéttafélögin. Það var brostið, því hafði verið hafnað, samstaða var ekki til í ríkisstj. um það, sem átti að gera. Og hvað á ríkisstj. þá að gera? Hún á auðvitað að leggja málið fyrir Alþ. og vita, hvort Alþ, getur myndað aðra ríkisstj. Þetta á hver ábyrgur stjórnmálaflokkur að gera, og þetta er það, sem gerðist 1958, og annað ekki.
Þá talaði hv. þm. enn þá um gjöld ríkissjóðs og útflutningssjóðs. Hvað á þetta að þýða hjá hv. þm.? Ég skal gefa honum þessa bók, fyrst ríkisstj. hefur ekki verið svo rausnarleg að láta honum hana í té, svo að hann geti lesið um þetta og þurfi ekki hér á hv. Alþ. að vera að rugla með útflutningssjóð og ríkissjóð, sem voru tvær óskyldar stofnanir. Þar er sérstaklega tekið fram, að hvaða leyti niðurlagning útflutningssjóðs hafi áhrif á hækkun ríkisútgjaldanna 1960. Þetta vita allir þeir, sem vilja vita, og geta lesið um þetta í bókinni, og ég skal sannarlega gefa hv. þm. hana, því að ég á víst tvö eintök af þessu riti.
Hv. þm. var einu sinni enn að tala um viðskilnaðinn hjá vinstri stjórninni. Hann þarf að kaupa sér Morgunblaðið frá 19. des. 1958. Þar stendur, hvað þurfti að gera til þess að koma því í lag, sem þeir telja að þurfi lagfæringar við. Það var að lækka kaupgjaldið um 6%, sem sjálfstæðismenn ásamt hluta úr Alþfl. og Alþb. börðust fyrir sumarið 1958, og hv. 3. þm. Reykv. lýsti yfir hér á hv. Alþ. í vetur, að hann hefði staðið í samstarfi við hæstv. núv. forsrh. um að koma því fram. Þetta töldu sérfræðingar Sjálfstfl., að þyrfti að gera, þá yrðu hlutirnir í lagi og þeir gætu farið að stjórna. Svo kemur hv. þm. nú og talar um eitthvert þrotabú og vandræði, sem þeir hafi þurft að basla við núna, þegar þeir eru að fást við sína eigin drauga.
Næst kom hv. þm. að því, að það hefði hækkað dýrtíð og ríkisútgjöldin áður fyrr. En hvað hefur gerzt nú? Fjárlög hafa hækkað frá því 1958 yfir 80%, eða um 700 millj. kr. á þessum tíma, sem liðinn er frá því, að vinstri stjórnin fór frá völdum, svo að núverandi stjórnarliðum hefðu ekki blöskrað þær tölur; sem áður voru. Þeir hafa a.m.k. dyggilega unnið að þessum hækkunum.
Hv. þm. var að tala um það hér áðan, að útgjöldin hefðu hækkað á 10 ára tímabili, 1949–1959, um einar 700–800 millj., ef ég man rétt. En ég benti á það hér í vetur í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, að kaupgjald í landinu hækkaði á sama tíma álíka að prósenttölu og ríkisútgjöldin hafa hækkað. En það, sem hefur gerzt núna, er, að kaupgjald í landinu hefur lækkað á sama tíma og ríkisútgjöldin hafa hækkað. Það er sá munur, sem á er, að afkoma almennings í landinu fór batnandi áður, en nú versnandi. Þess vegna er hér líka enn þá um nýjan samanburð að ræða, sem er ekki núverandi ríkisstj. og stjórnarliðum hagstæður.
Þá er það dýrtíðin. Hún hefur lækkað hjá núv. ríkisstj. — eða hvað? Aldrei hefur hún tekið annan eins fjörkipp og síðan núverandi ríkisstj. kom til valda. Það eina, sem hefur staðið í stað, er kaupgjaldið. Allt annað hefur hækkað stórkostlega. Stefna núv. ríkisstj. er þessi. — Henni blöskraði ekki dýrtíðin, sem áður var, heldur jók hún hana og það myndarlega.
Þá kom hv. þm. að því að tala um óreiðustefnu Framsóknar. Það var ljóta stefnan, sem Framsókn hafði haldið uppi. Í því sambandi vil ég minna þennan hv. þm. á það, að fyrir kosningarnar í fyrra gáfu þeir sjálfstæðismenn út bækling einn, sem hét „Kjördæmamálið“. Í upphafi þess sögðu þeir, að með fyrri kosningunum lyki því tímabili á Íslandi, sem staðið hefði þá í síðustu 30 ár og kennt er við Framsfl. En hvað hefur skeð á þessum árum? Hvernig hafa þessi ár verið fyrir íslenzku þjóðina? Aldrei hefur verið um stórstígari framkvæmdir að ræða á Íslandi heldur en einmitt á þessum árum, aldrei meiri uppbygging, aldrei blómlegra atvinnulif, aldrei hafa fleiri menn á Íslandi átt eigin íbúðir en nú, og allt er eftir þessu. Þetta tímabil er tímabil Framsfl., og hann er stoltur af því. Svo kemur hv. þm. og kallar þetta óreiðutímabil, blómlegasta tímabilið í sögu íslenzku þjóðarinnar. Og það er annar svipur á atvinnulífinu á Íslandi, það er annar svipur úti um hinar breiðu byggðir Íslands nú en var á tímabili vinstri stjórnarinnar. Þá var í landinu blómlegt og uppbyggjandi atvinnulíf, sem nú er að dragast saman. Þetta veit hv. þm., og þess vegna er hann svo sár, sem kemur út í hans reiði, þegar hann stendur frammi fyrir þessum hlutum.
Þá talaði hv. þm. um óábyrga stjórnarandstöðu. Það eru slæmir flokkar, sem standa að því. Man hv. þm. nokkuð eftir stjórnarandstöðunni 1956–58? Man hann nokkuð um kaupgjaldsbaráttu þá? Man hann nokkuð eftir frásögn í Morgunblaðinu af ræðu Jóhanns Sigurðssonar á Dagsbrúnarfundinum, þegar hann var að brýna kommana fyrir aðgerðaleysið? Þeir sætu bara og héldu að sér höndunum og gerðu ekki neitt. Iðja, þar sem sjálfstæðismenn stjórna, var búin að hækka kaupið, og þar buðu atvinnuveitendurnir upp á kauphækkun. Það var gert vafalaust til þess að styrkja þáv. ríkisstj. Eða heldur hv. þm. það? Nei, 1958 var hækkað kaup í pólitískum tilgangi, og það er aldrei betri sönnun fyrir kauphækkun í pólitískum tilgangi en einmitt þá, vegna þess að flokkarnir, sem stóðu að þeirri kauphækkun, tóku hana aftur, þegar þeir komu til valda. Þeir tóku hana aftur, þegar þeir komu til valda, þá þurfti fólkið í landinu ekki kauphækkunina. Þegar þeir voru komnir til valda, var hún tekin til baka, því að hún var búin að gera sitt gagn.
Kauphækkun þarf ekki að vera neitt óábyrg afstaða. Fólkið í landinu þarf að hafa eðlilegar tekjur, til þess að viðskiptalífið og framkvæmdalífið í landinu geti gengið með eðlilegum hætti.
Þá kom hv. þm. að því, að hann þekkti ekki samdráttarstefnuna hjá núv. ríkisstj., hann hefði aldrei orðið var við hana. Ég tók það fram í ræðu minni hér í dag, að hæstv. ríkisstj. hefði sent sína þingmenn heim haustið 1958, til þess að þeir gætu ekki gert sér grein fyrir viðreisninni. Þetta kemur eins greinilega fram og vera má, því að hv. þm. kemur hér aftur á Alþingi og segir: Ég þekki ekki þessa stefnu. Hann þekkir ekki stefnuna, sem núv. hæstv. ríkisstjórn er mynduð til að framkvæma og stendur að. Til hvers heldur hv. þm., að vaxtahækkunin sé gerð? Hún er gerð til þess, að almenningur í landinu sé ekki að taka lán. Til hvers heldur hv. þm., að það séu gerðar skorður um útlán til atvinnuveganna og um heildarútlán hjá bönkunum? Það er líka gert til þess, að uppbyggingin í landinu verði sem minnst, til þess að sem minnst fjármagn verði í veltunni.
Til hvers heldur hv. þm., að hafi verið að stytta lánstímann? Það var líka gert til þess, að minna væri um framkvæmdir en ella. Allt þetta er á eina og sömu lund. Og svo heldur hv. þm. því fram, að hann þekki ekki stefnu hæstv. ríkisstj. Þeir vissu, hvað þeir voru að gera, hæstvirtu ráðherrarnir, þegar þeir sendu þm. sína heim, enda er árangurinn nú kominn fram. Heldur hv. þm., að það sé verið að draga féð frá landsbyggðinni hingað inn í Seðlabankann nema til þess að draga úr uppbyggingunni úti um landið? Þetta er allt á eina bókina lært. Og heldur hann, að það sé varið sömu upphæðum til framkvæmda yfirleitt í landinu nú og áður var, nema af því, að það er í samræmi við stefnu núv. ríkisstj.? Það má ekki auka neinar fjárhæðir til framkvæmda í landinu, því að það er brot á samdráttarstefnu ríkisstj. Þess vegna sést það greinilega, hvað hæstv. ríkisstj. hefur tekizt vel með heimsendingu hv. þm. sinna, að þeir hafa ekki komizt að því, sem raunverulega hefur gerzt.
Hv. þm. talaði um, að það væri ekki hægt að tala um stefnu hjá núv. ríkisstj. Það er misskilningur. Hæstv. núv. ríkisstj. hefur stefnu. Hennar stefna er gamla íhaldsstefnan, samdráttarstefnan, það eru góðu gömlu dagarnir, sem hæstv. forsrh. lýsti fyrir okkur hér í fyrravetur. Þeir voru hér fyrir 30 árum. Það er sú stefna, sem þeir vilja stefna að, og þess vegna hafa þeir stefnu. Þeir hafa íhaldsstefnuna, sem var hér, áður en umbótatímabil Framsfl. kom til. Þetta veit almenningur í landinu, og hv. þm. veit þetta líka, þó að hann vilji láta líta svo út, að hæstv. ríkisstj. hafi enga stefnu. En þessi stefna leiðir til samdráttar. Hún á að skapa fáa ríka og marga fátæka. Þetta er mergur málsins, þó að ýmislegt kunni að fara á annan veg, þegar til framkvæmdanna kemur.
Ég ætla ekki að fara út í umr. um utanríkismál við hv. þm., því að hér vorum við aðallega að tala um fjármál, en þau ekki, — eða þá spá hans um framtíðina. Ég held, að hann muni hvorki í þeim efnum né öðrum reynast sannspár.