13.02.1961
Neðri deild: 62. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (429)

112. mál, ríkisreikningurinn 1959

Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vildi koma hér á framfæri dálítilli aths. út af einu atriði, sem fram kom í ræðu hv. 4. þm. Norðurl. v. (JPálm) við 2. umr. Ég ætla ekki .að fara að gera að umtalsefni hans löngu ræðu; sem kalla mátti eldhúsdagsræðu og hana ekki af fínasta tagi, sem hann flutti hér. Hann hefur að líkindum flutt hana vegna þess í umr. um þetta mál, að hann hefur talið vafa leika á því, að hann gæti komið henni að síðar. En henni hefur þegar — verið svarað af hv. 3. þm. Vesturl., svo að ég læt það alveg hjá líða að minnast nokkuð á þann reiðilestur.

En viðkomandi ríkisreikningnum var eitt atriði, sem ég vildi gera aths. við., Ég hafði á það bent, að í aths. yfirskoðunarmanna við ríkisreikningana árið 1951, 1953–1956, að báðum meðtöldum, hefði engin aths. verið um það, að ólokið væri hinni umboðslegu endurskoðun, sem svo er nefnd. En í þessari ræðu sagði hv. þm., sem er yfirskoðunarmaður ríkisreikninganna, að það mundi hafa verið skýrt frá þessu í umr. um reikningana hér á þingi, þó að engin skrifleg aths. hefði verið um það gerð. Nú hef ég athugað umr. um ríkisreikningana frá þessum árum, og þar sést, að ekki hefur komið nokkurt orð frá þessum hv. þm., sem þó hefur ætíð eitthvað látið til sín heyra, þegar ríkisreikningurinn var á dagskrá, — ekki eitt orð um það, að honum væri áfátt að þessu leyti. Þannig liggur það fyrir, að á þessum árum, sem ég nefndi, hefur ekkert komið fram um það hér á þingi, að endurskoðun reikningsins væri að nokkru leyti ólokið. Þm. hafa þess vegna samþ. hann í góðri trú, að endurskoðun hans væri lokið. Viðkomandi reikningnum 1957 hef ég áður gert grein fyrir því, að þar höfðu yfirskoðunarmenn gert aths. um það, að nokkuð virtist skorta á, að umboðsleg endurskoðun hafi farið fram, eins og til er ætlazt. En þar er birt svar frá endurskoðunardeild fjmrn., þar sem segir, að heita megi, að endurskoðun þeirra reikninga, sem ríkisendurskoðunin hefur fram til þessa talið sér skylt og hefur komizt höndum undir að annast endurskoðun á, sé nú að fullu lokið. Ef það hefði legið fyrir um þann reikning, sem hér er til umr., eitthvað slíkt frá endurskoðunardeildinni, að heita mætti, að endurskoðun hans væri að fullu lokið, þá hefði enginn hreyft neinum aths. hér út af afgreiðslu þessa frv: Það er þannig ekki rétt, sem hæstv. fjmrh. hélt fram, að það hefði aldrei komið fyrir, að ríkisreikningur hefði verið fullendurskoðaður, þegar hann var samþykktur á Alþingi. Það fær ekki staðizt, því að ég geri ekki ráð fyrir því, að yfirskoðunarmenn Alþingis hafi brugðizt svo skyldum sinum, að þeir hafi látið hjá líða að minnast á þetta, ef endurskoðuninni hefði verið að meira eða minna leyti ólokið. Ég vil ekki reikna með því.

Ég vildi láta þetta koma fram, mótmæla þessu. Það er einmitt það, að drátturinn, sem hefur orðið á samþykkt ríkisreikningsins á Alþingi, stafar af því, að það hefur verið beðið eftir endurskoðuninni. Þm. hafa samþykkt reikninga allra þessara ára, 1951, 1953–1956, að báðum meðtöldum, og reikninginn fyrir 1957, eftir þessa yfirlýsingu frá endurskoðunardeildinni, sem ég gat um áðan, samþykkt reikningana og í þeirri trú, að endurskoðun þeirra væri að fullu lokið, því að það hefur ekkert komið fram á Alþ. um, að henni væri að einhverju leyti ólokið. Hér stendur hins vegar allt öðruvísi á, eins og ég hef gert grein fyrir, þar sem stórkostlega mikið vantar á, að endurskoðuninni sé lokið.

Ég sé svo ekkí ástæðu til að ræða frekar um þetta; að svo stöddu að minnsta kosti.