10.02.1961
Neðri deild: 59. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (435)
186. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1961
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég hef fyrir hönd ríkisstj. leyft mér að bera fram frv. á þskj. 356 um, að reglulegt Alþingi 1961 skuli koma saman þriðjudaginn 10. okt. 1961, hafi forseti Íslands ekki tiltekið annan samkomudag fyrr á árinu. Þetta er gamall kunningi Alþingis, þetta frv. Það, sem um það er að segja, er tilgreint í grg. Ég sé þess vegna ekki ástæðu til þess að segja annað eða meira um það en þar stendur og vænti þess, að að lokinni þessari umr. verði málið nefndarlaust látið ganga áfram, annaðhvort nú þegar; þegar þessari umr. er. lokið, eða þegar þær atkvæðagreiðslur hafa farið fram, sem eru á dagskrá dagsins í dag.