23.02.1961
Efri deild: 65. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (482)

55. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):

Herra forseti. Frv. til laga um breyt. á lögum nr. 40 frá 16. maí 1955, um Fiskveiðasjóð Íslands, hefur sjútvn. haft til athugunar. Nefndin gat ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Meiri hlutinn, þrír nm., leggur til samkvæmt nál. á þskj. 391, að frv. verði samþykkt óbreytt. En minni hl., hv. 4. þm. Vestf., vill ekki samþykkja frv. óbreytt, og hefur hann skilað áliti og brtt. við það á þskj. 404 og 405. Björn Jónsson, hv. 5. þm. Norðurl. e., var ekki mættur á fundi nefndarinnar og tók því ekki afstöðu til málsins.

Frv. þetta felur í sér tvær efnisbreytingar á gildandi lögum um Fiskveiðasjóð Íslands. Fyrri breytingin, sem er samkvæmt 1. gr. frv., er um það, að hámarkið, sem nú er í lögunum, um þá upphæð, sem fiskveiðasjóður megi taka að láni með ábyrgð ríkissjóðs, hækki upp í 150 millj. kr. úr 50 millj. kr., eins og nú er. — Hitt atriðið, samkv. 2. gr., er ákvæði um það, að þegar fiskveiðasjóður endurlánar erlent lánsfé, sé heimilt að áskilja, að ný lán úr sjóðnum endurgreiðist með breytilegri fjárhæð og nemi það gengisbreytingu íslenzkrar krónu á lánstímanum, svo sem segir í 2. gr. frv.

Um fyrra atriðið, sem viðkemur því að hækka ríkisábyrgðina eins og greinir í frv., virðast menn á eitt sáttir. Nú eftir síðustu gengislækkun er svo komið, að erlendar skuldir sjóðsins nema um 64 millj. kr. eða nokkru harri upphæð en heimilt er. Þá er samkvæmt upplýsingum sjóðsstjórnar fiskveiðasjóðsins fyrirhugað, að sjóðurinn taki nú á næstunni fyrir milligöngu Framkvæmdabankans erlent lán. Og enn fremur segir sjóðsstjórnin, að líklegt sé, að sjóðurinn verði í framtiðinni að starfa með erlent lánsfé að verulegu leyti. Af þessum ástæðum er það augljóst, að ekki verður hjá því komizt að breyta löggjöfinni þannig, að ríkisábyrgðarheimildin hækki svo sem frv. gerir ráð fyrir.

Um 2. gr. frv. er hins vegar ágreiningur. Minni hl. nefndarinnar, hv. 4. þm. Vestf., hefur á þskj. 405 lagt fram brtt., þar sem gert er ráð fyrir, að ríkissjóður bæti, fiskveiðasjóði það tap, er sjóðurinn kann að verða fyrir vegna breytinga á gengisskráningu íslenzkrar krónu á allt að 50 millj. kr. erlendri lántöku á árinu 1961. Meiri hl. nefndarinnar leggur hins vegar til., að frv. í heild verði samþykkt óbreytt.

Eftir að lokið var útlánum úr stofnlánadeild sjávarútvegsins, sem sett var með lögum nr. 41 29. apríl 1946, má segja, að Fiskveiðasjóður Íslands sé eina lánastofnunin í landinu, sem veitt hefur ákveðin stofnlán út á fiskiskip og fiskvinnslustöðvar. Að því hefur verið stefnt og ber að stefna í framtíðinni að gera þessa mjög svo þýðingarmiklu lánsstofnun „sjávarútvegsins að traustri og fjárhagslega öflugri útlánastofnun, Heildarútlán fiskveiðasjóðs munu um s.l. áramót hafa numið 336.3 millj. kr. út á fiskiskip og 40 millj. kr. út á fiskvinnslustöðvar, eða heildarútlán um 376.3 millj. kr. Eigi sjóðurinn að vera fær um að veita nauðsynleg stofnlán í framtíðinni, er það upplýst, að eigi verður komizt hjá því að taka að láni stórar fjárupphæðir erlendis. Samfara þeirri nauðsyn kemur, og sú hætta, sem jafnan fylgir því að stofna til erlendra skulda um lengri eða skemmri tíma, en það er hættan af hugsanlegri gengisbreytingu íslenzku krónunnar, sem átt getur sér stað á lánstímabilinu. Um það segir stjórn sjóðsins, að vegna, þess að öll útlán sjóðsins hafi allt til þessa verið veitt í íslenzkum krónum án ákvæðis um gengisbreytingu, þá hafi sjóðurinn orðið fyrir 28 millj. kr. tapi vegna þessa erlenda lánsfjár, sem sjóðurinn skuldar og hefur endurlánað.

Nú er það hins vegar svo, að augljóst er, að eigi fiskveiðasjóðurinn að vera megnugur þess að veita til sjávarútvegsins nauðsynleg stofnlán, þá verður að grípa til þess að taka í stærri stíl en áður erlent lánsfé til framkvæmdanna. Það er því í alla staði óhyggilegt að girða ekki fyrir þá hættu, sem yfir sjóðnum hvílir, ef einhver slík ákvæði, sem í 2. gr. frv. eru, verða ekki sett.

Frv. þetta er flutt samkvæmt ósk stjórnar fiskveiðasjóðs, og um efni þess hefur verið leitað umsagnar stjórnar Landssambands ísl. útvegsmanna. Í þeirri umsögn segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Á stjórnarfundi þann 21. þ.m. var samþykkt að mæla með frv., þar sem telja verður víst, að slík breyting, sem frv. boðar, muni gera fiskveiðasjóð betur færan til að gegna sínu mikilvæga hlutverki í framtíðinni.“

Undir þetta sjónarmið vill meiri hl. sjútvn. taka og telur jafnframt, að höfuðáherzlu beri að leggja á það, að fjárhagur sjóðsins verði hverju sinni sem traustastur. Örugg efling Fiskveiðasjóðs Íslands er undirstaða þess, að sjóðurinn geti á ókomnum árum gegnt sínu mikilsverða hlutverki.

Varðandi framkvæmdina um gengisáhættuákvæði í veðskuldabréfum nýrra lána hefur sjóðsstjórnin upplýst, að gengisáhættuákvæðið verði miðað við það, sem svarar til þess erlenda lánsfjár, sem sjóðurinn starfar með á hverjum tíma, og með þeirri takmörkun. Telur meiri hl. sjútvn., að það sé það sjónarmið, sem eðlilegt sé að miða við.

Ég tel svo ekki ástæðu til að, orðlengja frekar um málið, legg til, að frv. verði samþykkt óbreytt og að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.