23.02.1961
Efri deild: 65. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (484)
55. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):
Herra forseti. Út af ræðu hv. 4. þm. Vestf. (SE) tel ég ástæðu til að taka lítils háttar til máls aftur, og vil ég þá koma að því, sem felst í till. hans um það, að ríkissjóður taki að sér að bæta fiskveiðasjóði upp það áfall, sem hann kynni að verða fyrir af lántöku 1961, sem nemur 50 millj. kr. láni. Í því sambandi vil ég benda á, að erlend lán, sem fiskveiðasjóður tekur, eru jafnan tekin til að endurlána til skipakaupa og fiskvinnslustöðva, og þegar gengislækkun á sér stað, þá er það eðlileg afleiðing af því, að verðmæti skipanna og fiskvinnslustöðvanna hækka í verðgildi íslenzkrar krónu að sömu krónutölu og gengislækkunin felur í sér, og það er eðlilegt að meta það, sem við á, jafnan með tilliti til þess, hvað kostar að endurbyggja það, og með hliðsjón af þeirri hækkun, sem þá hefur átt sér stað á hverjum tíma.
Þegar gengislækkanir eiga sér stað í þjóðfélaginu, er það yfirleitt vegna þess, að atvinnuvegum þjóðfélagsins hefur verið íþyngt það mikið, að þeir fá ekki rönd við reist. Gengislækkun á því venjulega, ef ekki alltaf, sér stað einmitt af þeim ástæðum. Þess vegna hlýtur að vera tekið tillit til þess hverju sinni, þegar gengi íslenzkrar krónu er lækkað, að það sé gert í samræmi við það, hver þörf atvinnuveganna er, og að krónan verði þá skráð með hliðsjón af því.
Það má því gera fyllilega ráð fyrir því, að þegar gengislækkun á sér stað, þá verði fullt tillit tekið til atvinnutækja sjávarútvegsins, sem er undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar: Þess vegna ætti að vera óhætt fyrir sjávarútveginn að taka lán með slíkum ákvæðum, sem lögin gera ráð fyrir, hvort heldur sem er til fiskvinnslustöðva eða skipabygginga, þá ætti það að vera áhættulaust, því að ég fæ eigi betur séð en það verði að gerast og athugast hverju sinni, þegar gengislækkun á sér stað, að þá sé miðað við, hvaða byrðar sé fært að leggja á aðalatvinnuvegi þjóðarinnar.