24.11.1960
Neðri deild: 27. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (531)
10. mál, almenn hegningarlög
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Allshn. hefur athugað og rætt frv. það, sem hér er til 2. umr., á nokkrum fundum sínum, og hafa nm. orðið sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. óbreytt.
Frv. þetta, sem er stjórnarfrv., felur í sér nokkrar breytingar og viðauka við 1., 2., 42., 65. og 68. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19 1940, og auk þess er lagt til í frv., að 64. gr. laganna verði með öllu felld niður, en í þessari grein er heimild fyrir dómstóla til að banna drykkjusjúklingum að kaupa eða neyta áfengis undir vissum kringumstæðum, en þetta ákvæði þykir hafa orðið til lítils gagns, sérstaklega nú upp á síðkastið.
Frv. nákvæmlega sama efnis og þetta var flutt af allshn. Nd. á Alþingi 1957–58 á þskj. 217, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Fylgdi frv. þá ýtarleg grg. og athugasemdir þeirra, sem annazt höfðu samningu þess, en það eru þeir hæstaréttardómararnir Jónatan Hallvarðsson og Þórður Eyjólfsson og Ármann Snævarr prófessor. Þessir þrír menn eiga sæti í svonefndri hegningarlaganefnd, en verkefni þeirrar nefndar er að endurskoða og gera tillögur um breytingar á hegningarlögum. Leyfi ég mér að vísa til þessarar grg. og aths. um efni þeirra breytinga, sem í frv. þessu felast og lagt er til að gerðar verði á almennum hegningarlögum.
Þá hefur allshn, einnig athugað frumvörp þau, sem lögð hafa verið fram með frv. þessu á þskj. nr. 11–28, að báðum meðtöldum, en frumvörp þessi eru einnig samin af hegningarlaganefnd og standa í nánu sambandi við þá breytingu á hegningarlögum, sem ég áður gat um. Mun ég ekki tala fyrir hverju þessu frv. sérstaklega, en allshn. leggur til, að þau verði öll samþ. óbreytt. Í öllum þessum frumvörpum er lagt til, að niður verði felld ákvæði um skerðingu ýmissa réttinda, svo sem lífeyrisréttinda, vegna þess að lífeyrisþegi hafi framið refsiverðan verknað, að óflekkað mannorð, sem kallað er, sé ekki lengur skilyrði fyrir kosningarrétti á safnaðarfundi, og kjörgengi í sóknarnefnd, fyrir kosningarrétti og kjörgengi við sveitarstjórnarkosningar, fyrir því, að menn geti öðlazt ýmis atvinnuréttindi, t.d. til að reka verzlun, veitingasölu og iðnað, og fyrir því, að menn geti verið löglegir stofnendur og stjórnendur hlutafélaga. Í öðrum þessara frumvarpa er að vísu lagt til, að felld verði niður ákvæði um, að umsækjendur um viss atvinnuleyfi, t.d. leyfi til að stunda lækningar, endurskoðun og fasteignasölu, svo að eitthvað sé nefnt, verði að hafa óflekkað mannorð eða hafi ekki verið dæmdir fyrir brot, sem er talið svívirðilegt að almenningsáliti, til þess að þeim verði veitt viðkomandi leyfi, en í stað þess er því stjórnvaldi, sem veitir slík leyfi, heimilað að synja þeim manni um það, sem hlotið hefur refsidóm, ef hinn refsiverði verknaður er talinn bera vott um, að umsækjandinn kunni að misfara með þau réttindi, sem honum eru veitt með leyfinu.
Í frv. til l. um breyt. á l. nr. 52 14. ágúst 1959, um kosningar til Alþingis, á þskj. 28, er lagt til, að dómur fyrir refsivert brot hafi ekki flekkun mannorðs í för með sér, nema sakborningur hafi verið fullra 18 ára, er hann framdi brotið, og refsing fyrir brotið sé 4 mánaða fangelsi óskilorðsbundið hið minnsta eða að öryggisgæzla sé dæmd. Þetta ákvæði nær einnig til forsetakosningar og þjóðaratkvgr. Í 33. gr. stjórnarskrárinnar frá 1944 er óflekkað mannorð skilyrði fyrir kosningarrétti og kjörgengi til alþingiskosninga, og verður því ákvæði þess vegna ekki breytt eða að neinu leyti haggað nema með stjórnarskrárbreytingu. Í frv. þessu er hins vegar skilgreint, hvað valdi hið minnsta mannorðsflekkun í þessu sambandi, en hingað til hefur það að mestu leyti verið á valdi dómstóla að ákveða það.
Um rök fyrir þeirri mildun og tilhliðrunarsemi, sem felst í öllum þessum frumvörpum í garð þeirra, sem gerzt hafa sekir við lög og hlotið refsidóm fyrir, leyfi ég mér að vísa til hinnar ýtarlegu grg. og athugasemda hegningarlaganefndarinnar, sem ég nefndi áður, á þskj. 217 frá 1957–58, svo og til ræðu hæstv. dómsmrh., er hann fylgdi frumvörpum þessum úr hlaði við 1. umr. þeirra.