13.10.1960
Neðri deild: 3. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (599)
15. mál, hlutafélög
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki ræða efnislega þetta frv., það er liður í réttlætisákvörðunum, sem hæstv. dómsmrh. hefur lýst hér í sinni ræðu í sambandi við fyrsta frv. En ég vildi aðeins mega skjóta þeirri spurningu til hæstv. dómsmrh., hvort hann mundi hafa nokkuð við það að athuga, að sett yrði sem bráðabirgðaákvæði á eftir 3. gr., að hlutafélagalögin skyldu endurskoðuð í heild innan ákveðins tíma. Mér er ljóst, að það er hægt að bera slíka brtt. fram í sérstöku frv., en þá væri verið að bera fram frv. til breytinga á hlutafélagalögunum í tveimur frv. á sama þingi, en það er dálítið óviðkunnanlegt. Það væri auðvitað einnig hægt að bera slíkt fram í þingsályktun, sem þá hefur ekki jafnmikið gildi og lög, en vitað er, að það er bráðaðkallandi að endurskoða hlutafélagalögin í heild og það svo mjög, að það má helzt ekki líða langur tími, þar til það verður gert.
Að öðru leyti skal ég ekki ræða um frv., en ef hæstv. ráðh. hefur ekkert á móti þessu, vildi ég vænta þess, að n., sem fær þetta mál til athugunar, tæki upp þessa ábendingu mína til athugunar.