06.12.1960
Neðri deild: 33. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 787 í B-deild Alþingistíðinda. (738)
25. mál, atvinna við siglingar á íslenskum skipum
Gunnar Jóhannsson:
Herra forseti. Í sambandi við fram komna brtt. á þskj. 176, við frv. til l. um breyt. á l. nr. 66 17. júlí 1946, um atvinnu við siglingar á íslenzkum skipum, vil ég leyfa mér að óska þess við hæstv. forseta, að hann fresti afgreiðslu málsins um sinn, svo að þeirri n., sem hafði haft þetta frv. til athugunar, gefist tækifæri til að athuga fram komnar tillögur. Ég sé það við að athuga málið, að hér er farið fram á allmiklar breytingar á þeim lögum, sem hér um ræðir, sérstaklega viðvíkjandi vélstjórum á þar til tekinni stærð vélskipa. Ég tel það alveg óforsvaranlegt að hespa þetta mál af hér í deildinni, án þess að nefndinni sé gefinn kostur á að athuga fram komna till. og hafa samráð við þá menn, sem málið aðallega heyrir undir. Á ég þar við stéttarfélög viðkomandi vélstjóra.