14.12.1960
Neðri deild: 38. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (81)

4. mál, ríkisreikningurinn 1958

Jón Pálmason:

Herra forseti. Fyrst þannig hittist á, að ég er mættur hér á Alþ., þegar þessi ríkisreikningur er til meðferðar, þykir mér ástæða til að segja um hann nokkur orð.

Menn vita það, að á hverjum tíma eru reikningsskilin, hvort sem er hjá einstökum félögum eða stærri heildum eins og ríkinu, bezta sönnunin um það, hvernig hafi verið með málin farið á því ári, sem reikningsskilin eru gerð fyrir.

Þessi ríkisreikningur er þess vegna bezta sönnunin um það, hvernig stjórnarfarið var á því ári, sem hann er fyrir, á árinu 1958, og þó má segja, að reikningurinn gefi þar ekki fullnægjandi skýringar á, vegna þess að inn á hann vantar áreiðanlega eina allra stærstu stofnun ríkisins, sem er útflutningssjóður. Eins og kunnugt er, var ríkissjóðnum skipt í tvennt árið 1956 og annar hlutinn kallaður útflutningssjóður og inn á hann færð öll gjöld, sem eru og hafa verið til dýrtíðarráðstafana, niðurgreiðslu á vöruverði, útflutningsuppbóta o.s.frv. Nú er það svo, að við yfirskoðunarmenn gerðum um það athugasemd 1956 og 1957, að reikningur þessa sjóðs er ekki á ríkisreikningnum, eins og vera ber, en fengum þau svör, að það þætti ekki ástæða til að hafa hann þar með, enda þótt reikningshaldari, sem er okkar ríkisbókari, væri þeirrar skoðunar, að okkar skoðun í þessu efni væri rétt. Nú hefur það komið í ljós, þegar einstakir menn eru að bera saman ár, að þá tala sumir þeirra og skrifa á þá leið eins og þessi sjóður sé ekki til eða hafi ekki verið til. Útgjöld ríkisins á árinu 1958 eru, eins og menn sjá á reikningnum, samkvæmt sjóðsyfirliti 945 millj. kr., en útgjöld útflutningssjóðs voru á þessu ári 692 millj. kr., eða samtals útgjöld ríkisins að þessu samtöldu 1637 millj. kr.

Með þessu er þó sagan engan veginn öll sögð, því að í fyrsta lagi er þess að geta, að útflutningssjóður var lítil stofnun fram til þess, að lög voru sett, hin alþekktu lög 29. maí 1958, um gífurlega skatta á þjóðina til þessa sjóðs og uppbætur langt umfram það, sem áður hafði þekkzt. Þessi löggjöf hafði þess vegna ekki verið í gildi nema hálft árið 1958. En hún var í gildi allt árið 1959, og þá kom fyrst að fullu í ljós, hvaða þýðingu hún hafði árið allt. Auk þessa er þess að geta, sem ég hef oft vikið að áður, að reikningar ríkisins hafa verið lengi færðir þannig og eru, að útgjöld ríkisins eru í raun og veru mörg hundruð milljónum króna hærri en fram kemur í samlagningu reikningsins. Þetta stafar af því, að fjöldi af stofnunum, ríkisins er gerður upp þannig, að það er tekið inn í samtölu reikningsins aðeins mismunur á tekjum og gjöldum. Þannig er þetta með allar hinar stóru ríkisstofnanir, sem tilheyra 3. gr. fjárlaga. Þannig er þetta með öll sjúkrahús ríkisins og margar fleiri stofnanir, þar á meðal þrjár veigamiklar og dýrar stofnanir, sem eru raforkumálin, flugmálin og Tryggingastofnunin.

Hæstv. fjmrh. vék að því um daginn við fjárlagaafgreiðsluna, að þetta væri í athugun. En ég geri ráð fyrir því, að það muni engin ríkisstjórn jafnvei þora að breyta þessu í það horf að taka inn á ríkisreikning samtölu af öllum gjöldum og öllum tekjum, vegna þess að það þýddi í samlagningu geysilega hækkun á útgjöldum frá því, sem hefur verið, og það væri gott verkefni fyrir þá menn; sem hafa tilhneigingu til að blekkja með óraunhæfum samanburði.

Varðandi annað, sem hér kemur til greina og athugasemdir okkar yfirskoðunarmannanna varðandi þennan reikning beinast sérstaklega að, þá er það mjög svipað og verið hefur á undanförnum árum, að það eru aðallega þrjú meginatriði, sem við höfum gert athugasemdir um og við teljum að sýni óreiðu í stjórnarfari. Það eru í fyrsta lagi umframgreiðslur frá ákvörðun fjárlaga. Það eru í öðru lagi sífellt vaxandi óinnheimtar tekjur í árslok. Og það eru í þriðja lagi sívaxandi útlán hjá ríkisstj. til hinna og þessara hluta, sem hætt er við að innheimtist illa, og samfara því mjög vaxandi ríkisábyrgðir. Þetta þrennt er það, eins og menn geta séð, ef þeir lesa okkar athugasemdir, —þessir þrír flokkar eru það, sem okkar aðfinnslur beinast fyrst og fremst að.

Þessu frv. um afgreiðslu ríkisreikningsins 1958 fylgja, eins og hv. þm. vita, fjáraukalög upp á 140 millj. kr., og hefur svo verið um langa tíð, að fjáraukalög eru svo há, að það gefur ákaflega illa bendingu um það stjórnarfar, sem ríkt hefur og náði hámarki á árinu 1958.

Þau fjáraukalög, sem fylgja þessum reikningi, eru eins og venjulega í þremur flokkum.

Í fyrsta lagi eru það stofnanir á 3. gr. fjárlaga, og hækkunin þar frá fjárlögum er hvorki meira né mínna en 27 millj. kr., enda er það svo um sumar þessar stofnanir, eins og við yfirskoðunarmenn höfum margoft bent á, að þær haga sér þannig eins og engin fjárlög séu til og er þó ríkisútvarpið í því efni langverst.

Í öðru lagi eru svo umframgreiðslur á rekstrarreikningi, sem sé á 7.–19. gr., og umframgreiðslurnar á rekstrarreikningi, sem fylgja þessum ríkisreikningi, eru 63 millj., og sýnir það, að þar er margt nokkuð sukkkennt á því ári, sem hér er um að ræða. Ég skal ekki fara mikið út í það að rekja þetta, ef ekki er gefið til þess sérstakt tilefni, en menn geta séð það á reikningsfrv. sjálfu, á fjáraukalögunum og á þeim athugasemdum, sem við höfum gert varðandi þetta. Ég skal aðeins nefna eitt dæmi, og það er umframgreiðslan á 19. gr., sem er samkvæmt fjáraukalögunum hvorki meira né minna en 8.4 millj. Þar á meðal er, eins og við bendum á í athugasemd, greiðsla til 38 nefnda. sem er á milli 1200 og 1300 þúsund, og í þessari syrpu allri er að mínu áliti ljótasta sukkskýrsla, sem sézt hefur á ríkisreikningi frá því fyrsta, að ég fór nokkuð um þá að fjalla.

Varðandi óinnheimtar tekjur, þá eru þær sívaxandi, og því miður er það svo, að það er hjá flestum stofnunum meira og minna. Stærstu upphæðirnar samkvæmt þessum reikningi eru í fyrsta lagi 40 millj., sem eru óinnheimtar hjá embættismönnum ríkisins, sýslumönnum, bæjarfógetum og tollstjóra, og var þó niður fellt á þessu ári meira en nokkru sinni hefur áður þekkzt, sem sé á fimmtu milljón kr., sem ófáanlegt. Í öðru lagi eru það hjá símanum 8 millj., hjá tóbakseinkasölunni 12.6 millj., hjá, skipaútgerðinni 5.8 millj., flugmálunum 4.4 millj., vélasjóði ríkisins 5.9 millj., hjá sölunefnd setuliðseigna 7.6 millj. Og svo kemur stóra rúsínan, sem er langhæst af öllum þessum óinnheimtu tekjum, og það er hjá tryggingastarfseminni. Hjá Tryggingastofnuninni sjálfri eru óinnheimtar tekjur 48 millj., hjá atvinnuleysistryggingasjóði 17.2 millj. og hjá lífeyrissjóði togarasjómanna rúmar 4 millj. Það lakasta í þessu er, að það kemur í ljós, að það verður í þessu sambandi ákaflega mikil hlutdrægni á milli þeirra, sem skilvísir eru, og hinna, sem borga ekki, því að það er svo á þessu ári og hefur reyndar verið svo áður, að það eru mörg sýslu- og bæjarfélög, sem borga alltaf skilvíslega upp, en önnur standa ekki í skilum, eiga ógreitt kannske alveg ársframlagið og sum meira. Þetta hlýtur fyrr eða siðar að hafa það í för með sér, að þetta fer enn vaxandi og er mjög hættulegt atriði.

Þá er í þriðja lagi, sem ég skal aðeins víkja að, að það hefur verið sívaxandi og kannske aldrei meira en á þessum árum lánað út fé til hinna og þessara framkvæmda, — og mér skilst, að það haldi áfram enn, — sem fært er að vísu ríkinu til eigna, en hætt er við, að illa gangi að innheimta. Það er t.d. færð til eigna enn öll sú syrpa, sem kölluð hefur verið atvinnubætur, og ég geri ekki ráð fyrir, að gangi vel að innheimta þær upphæðir víðast hvar, enda hefur fjöldi manna skilið það svo jafnvel, að það þyrfti aldrei að borga sumt af því fé. Eins er um það, sem fært er á 20. gr. sem eignahreyfingar, þá er það allt saman — öll þau lán — fært sem eign hjá ríkinu, en er einskisverð eign margt þar og þar á meðal þær stóru upphæðir, sem á síðustu árum hefur orðið að greiða vegna vanskila á ábyrgðarskuldum.

Að lokum skal ég svo aðeins geta þess, að samkvæmt þessum reikningi er það eitt alvarlegasta atriðið, að ríkisábyrgðirnar hafa þotið upp mjög geigvænlega á þessum síðustu árum, og ég hygg, að svo sé enn.

Ég vildi nú rétt aðeins víkja að þessum atriðum hv. alþm. til skýringar, úr því að ég er hér staddur, en að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þennan reikning, nema eitthvert sérstakt tilefni gefist til.