14.12.1960
Neðri deild: 38. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

4. mál, ríkisreikningurinn 1958

Garðar Halldórsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að svara hv. síðasta ræðumanni mörgum atriðum, en ég hef ástæðu til að ætla, að það kunni að vera líkt með farið fleiri atriði eins og eitt, sem ég þekki nokkuð vel og veit, að hér var illa sagt frá. Hann leyfði sér, hv. þm., að tala um sukk og óreiðu í sambandi við óinnheimtur og nefndi til dæmis um það vélanefnd ríkisins. En hann lét það ógert að skýra, hvernig þessu er og hefur verið farið. Þessar óinnheimtur þar eru einfaldlega það, sem skurðgröfur vélasjóðs hafa unnið úti um sveitir landsins, og það er margra ára gömul venja, sem hefur skapazt með samkomulagi, að greiðslur fyrir slíka vinnu hafa verið inntar af hendi með greiðslu jarðræktarframlags, þegar það hefur fengizt greitt eftir áramót, venjulega komið nærri vordögum. Að tala um sukk og óreiðu í sambandi við svona færslu á milli ára, það tel ég ekki eiga erindi hingað. Eins og ég sagði áðan, gæti ég látið mér detta í hug, að með fleiri atriði, sem hv. þm. nefndi, væri farið á líkan hátt, en ég læt þetta atriði nægja, af því að ég þekki það og veit, hvernig þessu er varið.