10.03.1961
Neðri deild: 73. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (830)
178. mál, Framkvæmdabanki Íslands
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég ræddi um það við 1. umr. þessa máls, að ég hefði álitið heppilegra í sambandi við þær breyt., sem gerðar voru á Seðlabankanum, þegar verið væri að reyna að steypa bankalöggjöfina í nýtt form til frambúðar, að það hefði líka verið gerð sú breyt., að Framkvæmdabankinn hefði orðið hluti úr Seðlabankanum, sérstaklega úr hans hagskýrsludeild. Nú hefur hins vegar orðið samkomulag hér í þinginu að afgreiða þetta öðruvísi, og ég mun ekki gera neinar till. um slíkt.
Hvað snertir hins vegar sjálfa 1. gr. um að kjósa bankaráðið á þann hátt, sem þar er lagt til, þá er ég því fylgjandi.
En tilefni mitt til þess að taka til máls var fyrst og fremst sú brtt., sem flutt er um að auka þær heimildir, sem hæstv. fjmrh. er veitt til ríkisábyrgðar til handa bankanum. Ég held, að það sé alveg sérstök ástæða til þess að aðgæta nokkru betur, áður en slíkar heimildir eru samþ. í fyrsta lagi hefur það verið nokkur siður á Alþingi, áður en heimildir til erlendra lántaka eru samþ., að því væri yfir lýst, a.m.k. ef það væri þá þegar ákveðið, til hvers skyldi nota slíkar heimildir, og að svo miklu leyti sem slíkar hugmyndir væru nú þegar uppi hjá hæstv. ríkisstj. eða stjórn Framkvæmdabankans, þá væri þess vegna æskilegt að fá nú þegar að vita um það. Sé það hins vegar meiningin að hafa þarna bara nokkuð til að hlaupa upp á svo að segja, þá væri gott, að það kæmi líka skýrt fram.
Ég segi þetta m.a. alveg sérstaklega vegna þess, að það er farið að bera á vítaverðri ógætni í sambandi við ráðstafanir um lán erlendis og notkun þeirra innanlands. Það er sérstaklega eitt, sem veldur þessari ógætni. Það er, að það tíðkast nú upp á síðkastið hér á Íslandi, sem tíðkast ekki í nokkru öðru landi, að sjálf gengisskráningin er notuð sem vopn af hálfu yfirstéttarinnar í stéttabaráttunni. Gengisskráning og launabarátta eru með öllum nágrannaþjóðum okkar tveir gersamlega óskyldir hlutir, og það mundi engri atvinnurekendastétt í Englandi, Danmörku eða annars staðar láta sér detta í hug að fara að beita gengisskráningunni, skráningunni á gengi myntar landsins, sem vopni í sambandi við t.d. launabaráttu verkamanna. Hins vegar er það svo, að hér tala menn og það í valdastöðum alveg óhikað um það, að svo framarlega sem verkamenn t.d. hækki sín laun, sem er sjálfsagður og óhjákvæmilegur hlutur, þá verði að fella gengi krónunnar. Slíkir menn eru til og það jafnvel í ráðherrastólum. Í raun og veru mundu í hverju einasta öðru landi slíkir menn vera teknir sem glæpamenn. Ef einhver maður i Englandi núna, í enskri ríkisstj., léti í ljós, við skulum segja t.d. enskur fjmrh., að það væri meining hans, ef laun yrðu hækkuð í Englandi, að lækka gengið, þá yrði hann ekki stundinni lengur, alveg án tillits til flokkanna, í fjármálaráðherrasessi. Meira að segja þó að ríkisstj. í Englandi væri búin að ákveða að lækka gengi pundsins, þá mundi hún fram á þá mínútu, að hún tilkynnir það, þverneita því. En hér er farið öfugt að. Hér er hvað eftir annað verið að hóta með því að lækka gengi krónunnar, og þegar svo ógætnir menn eða samvizkulausir um fjármál þjóðarinnar hafa einhver völd hjá þjóðinni, verða menn og sérstaklega Alþingi að gá að sér, þegar verið er að samþ. erlend lán.
Það að fella gengi krónunnar, þegar við höfum tekið erlend lán til ýmissa nytsamra framkvæmda hér innanlands, hefur, eins og öllum hlýtur að vera ljóst, alveg ægilegar afleiðingar. Þegar við fellum gengi krónunnar nú t.d. og höfum áður tekið stór lán til góðra fyrirtækja eins og áburðarverksmiðju, sementsverksmiðju, Sogsvirkjunar og annars slíks, þá hækka öll þessi lán, og öll þessi fyrirtæki verða að hækka stórkostlega sína vöru, og slíkt veldur þess vegna alveg stórkostlegu róti á öllu efnahagskerfi þjóðarinnar.
Enn þá ægilegra verður þetta, þegar um er að ræða lán, sem hafa verið tekin í það, sem maður mundi kalla framkvæmdir, sem standa ekki undir sér. Við skulum segja, að það sé þó sök sér með fyrirtæki eins og áburðarverksmiðju, það hefur verið tekið erlent lán í hana, hún framleiðir áburð. Hefðum við haldið áfram að kaupa þann áburð erlendis frá, hefði hann hækkað. Hins vegar ef við tökum lán og verjum t.d. því láni til vegagerða, hafnargerða og annarra slíkra hluta, þá fer þetta bókstaflega að þýða, að vegagerð eða hafnargerð, sem við erum að gera, verður kannske þrem, fjórum, fimm árum seinna tvöfalt dýrari en það, sem við upphaflega höfðum reiknað með.
Ég held þess vegna, að það sé alveg óhjákvæmilegt, að Alþingi sýni meiri gætni í veitingu slíkra heimilda, a.m.k. þegar ástæða er til að óttast, að farið sé með gengisskráningu þjóðarinnar jafnvel af fullkomnu samvizkuleysi af þeim, sem völd hafa um það. Þess vegna vildi ég mjög eindregið óska þess, að hæstv. fjmrh., ef honum er það þegar kunnugt, segði, til hvers ætti að nota þá auknu heimild, sem hér er um að ræða, að svo miklu leyti sem það væri þegar fyrirhugað, og hins vegar, ef það er ekki þegar ákveðið, til hvers á að nota hana, þá hefur það verið siður hingað til að fara ákaflega gætilega í slíka hluti. Það hefur verið siður hingað til á Alþingi að veita heldur slíka heimild jafnóðum. Og það er ekkert óeðlilegt, að það sé heldur skorið við nögl sér, það sem lánað er í slíku sambandi. Það mætti segja t.d., að þótt Framkvæmdabankinn sé alls góðs maklegur, þá segi ég t.d., ef verið væri að hugsa um einhverja nýja glerverksmiðju, þá er ekkert fyrir fram vitað, að Alþingi væri mjög hrifið af því. Það er ekki alveg víst, þannig að það gerði þess vegna ekki til, þótt Alþingi víssi um svona hluti fyrir fram.