10.03.1961
Neðri deild: 73. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í B-deild Alþingistíðinda. (834)

178. mál, Framkvæmdabanki Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ekki er það ætlan mín að fara að hefja hér deilur um þessa till. um hækkun á ábyrgðarheimild fyrir Framkvæmdabankann. Eins og ég held, að ég hafi vikið að í minni fyrri ræðu áðan, má vel vera, að það sé ástæða til að hækka þessa ábyrgðarheimild. Ég hins vegar tel æskilegt, að hæstv. ríkisstj. gefi þinginu eitthvað nánari upplýsingar um það, til hvers ætlunin sé að nota þau lán, sem kunna að verða tekin af Framkvæmdabankanum gegn ríkisábyrgð. Hæstv. fjmrh. talaði hér áðan, en gaf engar upplýsingar um þetta. Hins vegar sagði hann, að áður, þegar Alþingi hefði veitt slíka heimild Framkvæmdabankanum eða aukið við hana, þá hefðu ekki verið gefnar upplýsingar um það, hvernig ætti að nota þær heimildir, til hvaða framkvæmda ætti að nota þau lán, sem ríkið gengi í ábyrgð fyrir samkv. þessum heimildum. En mér sýnist, að þetta geti ekki staðizt alveg hjá hæstv. ráðh. Ég hef hér fyrir framan mig Alþingistíðindi frá 1953, en þar er einmitt stjfrv. á þskj. 546 um breyt. á l. um Framkvæmdabankann. Lagt er til, að 9. gr. l. sé breytt eða sett ný ákvæði um ábyrgðarheimild, og samkv. þessu frv. var lagt til, að heimildin yrði hækkuð úr 80 millj. í 175 millj. kr., og í aths. með þessu frv. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Síðan lögin um Framkvæmdabankann voru sett, hefur hann tekið þrjú erlend lán, samtals rúmar 27 millj. kr. Þá er nú ráðgert, að bankinn annist um lántöku erlendis til fyrirhugaðrar sementsverksmiðju. Fjárhæð þess láns mun væntanlega verða 40–50 millj, kr. Enn fremur mun bankanum verða falið að leita eftir erlendum lánum til raforkuframkvæmda þeirra, sem ráðizt verður í samkv. — ákvörðun ríkisstj. í raforkumálum: En það var einmitt um þessar mundir, sem gerð var hin svonefnda tíu ára áætlun um framkvæmdir i raforkumálum, og þá þegar vitað, að til þess þurfti mikið fé. Þá segir einnig í athugasemdunum: „Rétt er að geta þess, að með lögum nr. 92 1952 er ríkisstj. heimilað að taka 22 millj. kr. lán handa stofnlánadeildum Búnaðarbanka Íslands, byggingarsjóði og ræktunarsjóði. Þetta lán tók Framkvæmdabankinn með ábyrgð ríkissjóðs samkv. 2. mgr. 9. gr. l. um Framkvæmdabanka, og fellur því heimild laga nr. 92 1952 niður ónotuð. Enn fremur mun falla niður lántökuheimild ríkisstj. að fjárhæð 46 millj. kr. í l. nr. 35 1948, um sementsverksmiðju, sbr. l. nr. 57 1950, ef Framkvæmdabankinn annast þá lántöku með ábyrgð ríkisstj. samkv. 9. gr. l. nr. 17 1953. Samanlagðar eldri lántökuheimildir, sem þannig falla niður, nema því 68 millj, kr.“

Í umr. um þetta frv. kom þetta sama fram, t.d. í ræðu frsm. fjhn. í Ed., hv. þm. Seyðf., Lárusar Jóhannessonar, þar sem hann talar einmitt um lán til sementsverksmiðjunnar og lánsheimild í öðrum lögum falli þá niður. Nokkru meiri umr. urðu um þetta í Ed., og einnig var nokkuð rætt um málið í Nd. Þar gerði þáv. hæstv. fjmrh. grein fyrir málinu mjög á sama veg og gert er í aths., sem ég nú hef vitnað til. Og þar segir hann frá ástæðum fyrir því, að frv. er lagt fyrir, það er fyrst og fremst fyrirhuguð lántaka til raforkuframkvæmda og sementsverksmiðjunnar og til stofnlánasjóða landbúnaðarins, og í ræðu í Nd. um málið fer þáv. fjmrh. fram á það, að fjhn. taki upp till. um að hækka ábyrgðaheimildina enn úr 175 millj. upp i 225, eða um 50 millj. frá því, sem gert var ráð fyrir, og segir, að það sé nauðsynlegt að gera þetta, vegna þess að búast megi við, að tekið verði meira lán til sementsverksmiðjunnar en áður hafði verið gert ráð fyrir, segir, að það geti farið svo, að þess gerist þörf. Frsm. fjhn. þessarar deildar var þá núv. hæstv. forseti, Jóhann Hafstein, og gerði hann í framsöguræðu sinni einnig grein fyrir þörfinni fyrir þessa heimildarhækkun þá. Síðan gerðist það, að eftir till., sem fram kom hér í hv. Nd., var frv. afgreitt þannig, að þessi hækkun var samþykkt, en sett inn í frv. grein, sem er þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Ef Framkvæmdabankinn annast lántöku til að koma á fót sementsverksmiðju samkv. lögum þessum, fellur niður lántökuheimild ríkisstj. samkv. 2. gr. l. nr. 35 1948, um sementsverksmiðju.“

Þá féll niður þarna ábyrgðarheimild úr öðrum lögum einmitt á móti þessu, og önnur breyting mun hafa verið gerð einnig á frv. samkv. tilmælum þáv. fjmrh., þannig að við endanlega afgreiðslu var ábyrgðarheimildin ákveðin 225 millj. í staðinn fyrir 80, en felldar niður í staðinn eldri ábyrgðarheimildir úr öðrum lögum.

Ég hef hér sýnt fram á það, að einmitt þegar þessi aðalbreyting var gerð á l. og ábyrgðarheimildin hækkuð úr 80 upp í 225 millj., var gerð grein fyrir aðalástæðunum fyrir því, að farið var fram á þessa hækkun, og mér virðist, að það hafi verið gert frá hálfu stjórnarinnar fyrir fram, án þess að nokkur óskaði eftir slíku hér á hv. Alþingi.