17.10.1960
Efri deild: 5. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

41. mál, Listasafn Íslands

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Eins og hæstv. menntmrh. tók fram, er þetta frv. til laga um Listasafn Íslands ekki nýtt. Það var hér á ferðinni í fyrra og komst þá í nefnd, sem sýnilega hafði engan áhuga á að afgreiða málið, af hvaða ástæðum sem það nú var.

Mér sýnist þetta frv. í heild ekki illa úr garði gert. Ráðuneytið á að fara með yfirstjórn safnsins. Þá á að koma 5 manna safnráð, valið vísdómslega samkv. flóknustu reglum. Síðan er forstöðumaður af fínustu tegund, safnvörður og svo loks allt annað nauðsynlegt starfslið. Fyrir þessu er öllu vel séð í frv. og sömuleiðis því, að til listaverkakaupa skuli árlega varið a.m.k. hálfri milljón króna. En þótt þetta sé allt gott og blessað og frv. allt hið snoturlegasta að frágangi, þá á það að mínum dómi samt ekki brýnt erindi gegnum þingið að þessu sinni. Það má að vísu segja, að meinlaust sé að leggja það fram, en ég held, að frv. sé bezt geymt hjá nefnd einnig nú, að það verði lagt þar til hliðar að sinni eins og fyrra skiptið.

Ég efast ekki um, að hæstv. ráðh. leggur þetta frv. fram af áhuga fyrir velferð listasafns ríkisins. En mig undrar, að hann skuli ekki grípa annars staðar niður, að hann skuli leggja fram þetta frv., eins og það er úr garði gert, en gera ekki heldur annað, sem listasafninu er miklu brýnna og nauðsynlegra. Á þessa brýnu nauðsyn listasafnsins benti hæstv. ráðherra í niðurlagi sinnar ræðu, og ég hafði búizt við, að í samræmi við það hefði hann einbeitt sér að því verkefni, sem brýnast er, en ekki að því, sem síður liggur á.

Listasafn ríkisins er til, en gallinn er sá, að það á ekkert þak yfir höfuðið. Það hírist nú í húsakynnum þjóðminjasafnsins við mjög þröngan kost, bæði sjálfu sér og þjóðminjasafninu til mikils baga. Það er þannig húsnæðisleysið, sem mest háir listasafninu, en ekki skortur á lögum. Það mætti spyrja í því sambandi, hvar 5 manna safnráðið ætti að starfa og hvar ætti að koma fyrir forstöðumanninum, safnverðinum og öllu öðru nauðsynlegu starfsliði. Fyrir það er ekkert húsnæði. Nei, það er fyrst og fremst húsnæði, sem listasafn ríkisins vantar, en alls ekki lög. Úr húsnæðisskortinum þarf að bæta hið bráðasta, og þegar það hefur verið gert, má fara að tala um lög handa stofnuninni, ef þess þá yfirleitt gerist nokkur þörf. Það má á það benda, sem raunar má lesa í grg., að ríkislistasafnið í Kaupmannahöfn er í hinum glæsilegustu húsakynnum og hefur verið það í marga áratugi, en lög á það engin til enn í dag og virðist þó komast vel af þrátt fyrir það. Sama má segja um þjóðminjasafnið í Reykjavík. Það á sitt eigið húsnæði og hefur því fram að þessu getað dafnað. En það á engin sérstök lög, enda sjálfsagt enginn orðið til þess að falast eftir þeim.

Ýmsir aðilar hafa verið spurðir álits um þetta frv., og meðal þeirra er menntamálaráð. Menntamálaráð mælir ekki með þessu frv., en það bendir á, að sú sé brýnust nauðsyn safnsins, að húsnæðismálum þess verði komið í viðunandi horf, og að eftir að það hefur gerzt, kæmi til mála að setja sérstaka löggjöf safninu til handa. Kristján Eldjárn þjóðminja,vörður telur í sínu áliti lagasetningu um listasafnið lítils virði, á meðan ekki sé bætt úr húsnæðisþörfinni. Og hann segir orðrétt í álitsgerð sinni: „Lagafrv. um Listasafn Íslands er gott út af fyrir sig, en missir marks, ef ekki kemst mjög bráðlega skriður á byggingu þess húss, sem verður frumskilyrði þess, að lögin geti verkað eðlilega.“

Fyrir hv. Nd. liggur nú frv. til laga um fræðslumyndasafn ríkisins. Það er líka stjórnarfrv. og raunar i þessu keimlíkt hinu. Þar er prýðilega séð fyrir yfirstjórn, fjölmennri undirstjórn og mætu starfsliði, en með öllu gengið fram hjá húsnæði handa safninu, sem nú mun vera á götunni í bókstaflegri merkingu svo að segja. Þannig er þetta. Það, sem öllu öðru fremur háir þessum söfnum, er húsnæðisskorturinn, en úr honum er ekki hirt að bæta með þessari löggjöf, heldur reynt að breiða yfir ósómann áferðarfalleg lög. Á sama hátt var farið að við náttúrugripasafnið. Það fékk á sínum tíma sinn ágæta lagabálk, en ekkert húsnæði, og hefur þess vegna aldrei getað þrifizt. Mér hefði fundizt meira til um áhuga hæstv. menntmrh., ef hann hefði nú á þessu þingi viljað beita sér fyrir að bæta úr þessari þörf, þessari brýnustu þörf listasafnsins, og leitazt við í framkvæmd að leysa það vandamál. Það hefði verið sómasamlegra og gagnlegra að beita sér fyrir byggingu húss handa listasafninu en að kasta fram þessu frv. hvert árið eftir annað.

Ég vakti máls á því fyrir nærri tveimur árum á fundi í Sþ., hvort ekki mundi tilhlýðilegt að minnast 150 ára afmælis Jóns Sigurðssonar með því að reisa listasafni þjóðarinnar verðug heimkynni. Þeirri málaleitun svöruðu stjórnarvöldin með þögninni, nema pappírslög um þetta efni eigi að skoðast sem þeirra svar. Þótt til lítils muni vera, ætla ég að endurtaka það, sem ég lagði til fyrir nærri tveimur árum.

Á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar, 17. júní 1911, var stofnaður Háskóli Íslands. Það var vel til fundið og verðug minning hins merka manns. Með þeirri stofnun var iðkendum fræða og vísinda á Íslandi tryggður sess í framtiðinni, og var það vel í anda Jóns Sigurðssonar. En með þennan minnisvarða í huga virðist ekki fjarri lagi að renna augum nú, er líður að árinu 1961, 150 ára afmæli Jóns Sigurðssonar, til annars veigamikils þáttar í menningarlífi þjóðarinnar, listanna. Áður vanhagaði þjóðina um háskóla. Nú skortir hana sómasamleg húsakynni listasafni sínu til handa. Væri það ekki tilhlýðilegur vottur ræktarsemi og virðingar að reisa þau heimkynni af grunni á 150 ára afmæli Jóns Sigurðssonar? Vísindi og listir, skóli og listasafn eru greinar á sama meiði, en menning þjóðarinnar er bezta tryggingin fyrir sjálfstæði hennar um alla framtíð, sjálfstæðinu, sem Jón Sigurðsson barðist fyrir allra manna bezt hér á landi.

Bygging Listasafns Íslands ætti að helgast minningu Jóns Sigurðssonar. Það er enn ekki of seint. Fjár verður tæpast erfitt að afla, þar koma frjáls framlög almennings til, fyrirtækja og sveitarfélaga, auk þess sem ríkissjóði væri gert að láta af mörkum.

Á þessa leið var hugmyndin, sem ég hreyfði fyrir tæpum tveimur árum hér. En hún féll ekki í smekk hæstv. ráðh. Þeir kusu að minnast þessa afmælis með öðrum og að mínum dómi lágkúrulegri hætti, en út í það skal ég ekki fara hér.

Ég vil að lokum undirstrika þetta: Hús handa listasafninu er brýnasta nauðsyn þeirrar stofnunar. Þetta viðurkenndi einnig hæstv. ráðh. Henni liggur ekkert á lagabálki þeim, sem henni er nú fyrirhugaður. Hann getur beðið öllum að skaðlausu. En húsnæði þarf listasafnið að fá og það sem allra fyrst. Það séu mín tilmæli til hæstv. ráðh., að hann beiti sér að því verkefni, sem brýnast er, en láti það bíða, sem frekar má bíða í þessu efni.