02.03.1961
Efri deild: 68. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (858)

41. mál, Listasafn Íslands

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Síðasti ræðumaður, hv. 9. þm. Reykv. (AGl), spurði um það, hvort ekki hefði komið til umræðu í menntmn. að flytja brtt. við 13. gr. — ef ég tók rétt eftir — með afdráttarlausum ákvæðum í þó átt, að hafizt skyldi handa um byggingu yfir listasafn ríkisins. Ég get skýrt hv. þm. frá því, að í n. var hreyft brtt. í þá átt. Um þær varð ekki samkomulag, og þær eru ekki fluttar af n. í heild a.m.k. Um hitt veit ég ekki, hvað einstakir nm. hugsa sér um flutning slíkra till. eða annarra, en eins og fram kemur í nál., hafa allir nm. óbundnar hendur um það.