10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í B-deild Alþingistíðinda. (862)

41. mál, Listasafn Íslands

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Á þskj. 455 flyt ég brtt. við 13. gr. þessa frv. Í 13. gr. segir, að reisa skuli sérstakt hús fyrir listasafnið, þegar nægilegt fé sé veitt til þess í fjárlögum eða á annan hátt. Þetta er allt og sumt, sem ákveðið er í frv. um sérstakt listasafnshús. Eins og ég benti á hér við 2. umr., er þetta álíka óákveðið ákvæði og var sett inn í lög fyrir rúml. 30 árum. Hins vegar er það viðurkennt af öllum, sem til þekkja, að það, sem listasafn ríkisins vantar sérstaklega, er húsnæði, og er það brýnasta þörf listasafnsins í dag. Það má segja með réttu, að ef listasafn ríkisins fengi húsnæði, væri þörfum þess í bráð fullnægt og allar aðrar greinar þessa frv. næsta óþarfar í samanburði við þessa þörf.

Ég hef nú leyft mér að gera brtt. við þessa grein, og er hún þó ekki sérlega róttæk, en í brtt. minni segir, að reisa skuli sérstakt hús fyrir listasafnið í Reykjavík. Skuli safnráð þegar hefja undirbúning þeirrar byggingar með því m.a. að velja húsinu stað og láta gera af því teikningu. Enn fremur skuli safnráðið gera till. um öflun fjár til byggingarinnar umfram það, sem veitt er til hennar í fjárlögum. Ég held, að ef þessi brtt. yrði samþykkt, mundi það ýta undir og örva til framkvæmda í þessu efni. Það er að mínum dómi fyllilega tímabært að fara að velja listasafnshúsinu stað, útvega því lóð, og þegar það væri gert, mætti gjarnan láta gera teikningar að húsinu, og siðan trúi ég því, að framkvæmdir gætu bráðlega hafizt og haldið áfram. Mér er ekki kunnugt um, hve mikið fé er nú til í byggingarsjóði listasafnsins, en það munu þó vera nokkrar milljónir. Með þessu fé mætti hefja framkvæmdir, strax og nauðsynlegum undirbúningi væri lokið, og að öðru leyti teldi ég mjög æskilegt, að safnráðið væntanlega hefði frumkvæði um að afla fjár fram yfir það fé, sem veitt verður árlega í fjárlögum, en það er nú 1/2 millj. kr. á ári. Það eru ýmsar leiðir hugsanlegar til þess að afla fjár til viðbótar, sérstaklega með stuðningi almennings, og ég trúi ekki öðru en að ef góð öfl, listamenn og aðrir, legðust á eitt, þá mundi veitast auðvelt að safna fé á þann hátt, hvort sem það yrði gert með happdrætti eða á annan hátt. Er ég sannfærður um, að þessi leið væri fær.

Ég vil nú biðja hv. þdm. að athuga þessa brtt., sem — eins og ég tók fram — er í sjálfu sér ekki neitt róttæk, fer ekki fram á neinar auknar byrðar á hendur ríkissjóði, en hins vegar gæti orðið til þess að flýta því, að framkvæmdir þessa þarfa máls færu að geta hafizt nú í náinni framtíð.