17.10.1960
Efri deild: 5. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

9. mál, verkstjóranámskeið

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði í þessu frv., sem mig langaði til þess að minnast á nú við þessa umr., áður en málið fer til n. Hæstv. ráðh. minntist á þetta atriði, en það er, að próf frá þessu námskeiði skuli ekki veita nein forgangsréttindi. Fyrir þessu er gert ráð í þessu frv., gagnstætt því, að mér skilst, sem verið hefur í fyrra frv. eða fyrri frumvörpum um sama efni. Nú er það athyglisvert, að það eru sett inntökuskilyrði til þessara námskeiða. Nemendur verða að fullnægja víssum skilyrðum, sem eru í 4 liðum. Í öðru lagi skulu haldin próf að loknu námskeiði og skipaðir prófdómendur, þ.e.a.s., það eru gerðar allmiklar kröfur til væntanlegra nemenda á þessum námskeiðum, en þar á móti virðast þeir engin réttindi eiga að fá.

Eins og hæstv. ráðh. tók fram, er þetta fyrst og fremst hugsað svo fyrst um sinn, en vel komi til mála síðar meir að breyta þessu. En ég verð að segja eins og er, að frá mínum bæjardyrum er það ófullkomleiki á þessu frv., að þannig skuli vera gengið frá hlutunum. Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, en vildi geta þess arna og beina því til hv. n., sem þetta mál fær nú, hvort hún muni ekki vilja athuga þetta sérstaklega og þá hvort ekki kæmi til greina, að einhver forgangsréttur gæti fylgt þegar frá upphafi, þannig að það kæmi fram í þessu frumvarpi.