15.12.1960
Neðri deild: 39. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (88)
4. mál, ríkisreikningurinn 1958
Jón Pálmason:
Herra forseti. Ég hélt nú, að hv. 4. þm. Norðurl. e. hefði fengið nóg af þeim orðaskiptum, sem hér fóru fram í gær, og séð það eins og aðrir þm., að hans aths. var þýðingarlaus og ástæðulaus, því að hvað var það, sem maðurinn var að mótmæla? Það var það eitt, að ég las upp nokkrar tölur um óinnheimtar útistandandi tekjur hjá ýmsum stofnunum og nefndi þar á meðal vélasjóð ríkisins, sem á útistandandi 5.9 millj. Þetta gat ekki þessi hv. þm. þolað. Það þurfti ekki annað en nefna þessa stofnun og þá rauk hann upp, eins og hér væri verið að sýna þessari stofnun fjandskap, sem náttúrlega kom ekki til neinna mála. En úr því að honum er þetta svona viðkvæmt og kemur hér aftur, þá þykir mér sönnu næst að lesa upp aths. okkar yfirskoðunarmanna og svarið, sem við fengum við henni. Annars vil ég líka ítreka það, svo að það valdi ekki neinum misskilningi hér hjá hv. alþm., að þessar aths. okkar yfirskoðunarmanna allar eru nú og raunar oftast þannig til komnar, að við verðum að vera allir sammála um að undirskrifa þær. Og það eru þess vegna jafnt aths. fulltrúa Framsfl. og Alþfl. eins og mínar, sem hér erum að ræða. En aths. um vélasjóð er á þessa leið.
„Samkvæmt reikningi vélasjóðs ríkisins fyrir árið 1958 eru útistandandi skuldir sjóðsins í lok ársins kr. 5.998.409,71. Vafalaust má telja, að meginhluti þessara skulda sé vegna skurðgröfuvinnu, enda bendir skuldalisti fyrirtækisins til þess, að svo sé. Allar tekjur fyrirtækisins fyrir skurðgröfuvinnu á árinu nema kr. 4.824.896,17. Útistandandi skuldir vélasjóðs í lok ársins eru því kr. 1.173.513,54 meiri en allar tekjur sjóðsins á árinu fyrir skurðgröfuvinnu. Hvaða ráðstafanir hefur stjórn sjóðsins gert til þess að innheimta þessar skuldir og koma þessum viðskiptum í betra horf?“
Þetta er nú öll aths., sem ég fór þó ekkert inn á í byrjun í gær, og sjá allir menn, að hún er hógvær og kurteisleg í alla staði, eins og yfirleitt er um allar aths. okkar yfirskoðunarmanna. En hvert er svarið? Það er bezt, að hv. alþm. athugi það. Já, hvernig er svarið, sem stjórnin gefur? Atvmrn. hefur svarað aths. með eftirfarandi grg. frá framkvæmdastjóra vélasjóðs:
„Hinn 8. marz s.l. skrifaði ég ráðuneytinu bréf, sem skýrir þetta mál að mestu leyti. Til viðbótar því, sem þar er sagt, skal það tekið fram, að allir skuldunautar hafa verið rukkaðir, sumir oft. Erfiðustu innheimturnar hafa verið faldar lögfræðingum til meðferðar.“
Það er komið svo langt, að það hefur verið talið nauðsynlegt að fela lögfræðingum innheimtu á þessum skuldum. Þó að bréf frá 8. marz fjalli um reikninga ársins 1959, gildir það jafnt um reikninga 1958. Grg. framkvæmdastjórans frá 8. marz 1960 er á þessa leið:
„Búnaðarsambönd, ræktunarsambönd og búnaðarfélög skulda skurðgröfuleigur, sem allar verða teknar af ríkisframlagi vegna framræslu. Bæjarfélög, ríkisstofnanir og fyrirtæki skulda flest varahluti og þjónustu, sem þeim hefur verið látið í té. Sum hafa þegar greitt skuldir sínar, önnur hafa haft góð orð um að gera það fljótlega. Skuldir skurðgröfumanna eru þannig til orðnar, að vélasjóður sér þeim fyrir skurðgröfuflekum og vírum, en þessa hluti eiga skurðgröfumenn að greiða. Allir eiga þeir mótreikning á vélasjóð fyrir eigin viðgerðarvinnu og ýmislegt, sem þeir hafa greitt fyrir vélasjóð á verkstæðum úti á landi. Í mörgum tilfellum eiga þessir menn hærri reikninga á vélasjóð en þeir eru taldir skulda á ársreikningum. Gangskór var gerð að því í janúar og febrúar s.l. að fá skurðgröfumenn til þess að gera reikningsskil. Erfitt hefur reynzt að ná til örfárra manna, vegna þess að þeir hafa horfið að öðrum störfum.“
Nú er það eðlilegt, að þeir menn, sem hafa ekki séð skuldalista þessa fyrirtækis, viti ekki um það, hvernig því er varið, en hann sýnir, að það er mjög ólíklegt, að vel gangi að ná þessu öllu saman inn, enda er reynslan sú, að samkv. reikningi ársins 1959 hafa útistandandi skuldir þessa sjóðs hækkað upp í 6.6 millj. Ég held þess vegna, að það hefði verið alveg óhætt fyrir hv. 4. þm. Norðurl. e. að spara sér þessa aths., sem var ekki nokkurt minnsta tilefni til út af þeim orðum, sem ég sagði í þessu sambandi í gær.