10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
9. mál, verkstjóranámskeið
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Varðandi prófskírteini vil ég taka það fram, að það hlýtur að vekja nokkra tortryggni, að þetta ákvæði, sem stóð í frv. 1959, skuli nú vera numið burt, án þess að nokkuð tilsvarandi komi í staðinn. Það gæti gefið tilefni til að ætla, að það hafi verið með vilja gert að nema það í burtu og að viðkomandi rn. gæti, ef svo bæri undir, neitað prófmönnum um skírteini. Ef þar við bætist svo nú, að þessi brtt. mín um, að menn, sem lokið hafi prófi, skuli eiga rétt á prófskírteini, skyldi verða felld, þá er það enn fremur staðfesting á því, að ástæða sé til að ætla, að það skoðist ekki skylda rn. að láta þetta í té. Ég vil þess vegna skjóta því til hv. n., hvort hún vilji ekki athuga þetta á milli umr. og þá jafnvel koma þessu fyrir t.d. í 4. gr. frv., þannig að þetta verði ótvirætt.
Hitt atriðið er auðvitað miklu stærra, eins og hv. frsm. n. tók fram, en ég tel það mjög illa farið, að þeir, sem sækja þessi námskeið og ljúka þaðan prófi, skuli ekki fá nein réttindi. Það verður ekki til þess að örva aðsókn að þessum námskeiðum. Það verður ekki til þess að örva góða menn til þess að sækja þessi námskeið, að þau veita nákvæmlega engin réttindi.
Í grg. frv. segir, að vafasamt sé að láta próf frá nokkurra mánaða námskeiði veita skilyrðislausan forgangsrétt til verkstjórnar. Í till. minni er langt frá því, að veita eigi skilyrðislausan forgangsrétt. Það væri að mínum dómi alveg fráleitt. Hitt er annað, að veita forgangsrétt að öðru jöfnu, eins og segir í minni brtt. og eins og stóð í frv. frá 1959. Það þýðir, að ef tveir menn standa að öllu öðru leyti jafnfætis að því að fá stöðu hjá opinberu fyrirtæki, en annar hefur námskeiðspróf, þá skal hann ganga fyrir.
Ég skil illa þá menn, sem eru andvígir því að veita þessi takmörkuðu réttindi, og ég held, að það verði ekki starfsemi þessa skóla eða þessara námskeiða til góðs. Vitanlega er hér, eins og fram er tekið, aðeins átt við þennan víssa takmarkaða forgangsrétt að opinberri vinnu, en ekki allri vinnu, þannig að öll einkafyrirtæki gætu eftir sem áður hagað þessu eftir sínu höfði.