15.12.1960
Neðri deild: 39. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (89)

4. mál, ríkisreikningurinn 1958

Garðar Halldórsson:

Herra forseti. Út af fsp. hæstv. landbrh. um, hvort eitthvað hafi staðið á ríkissjóði að greiða skurðgröfuframlagið og hvort mögulegt væri að hefja greiðslu á framlaginu fyrr en úttekt hefði farið fram, vildi ég aðeins segja þetta: Já, því miður. Mér er persónulega kunnugt um, að það gekk svolítið erfiðlega að fá ríkisframlagið á s.l. sumri, því miður. En ég hef ekki áfellzt það. Ég svo sem gizka á, að hæstv. landbrh. hafi átt þar í örðugleikum, og ég hef ekki gefið nokkurt tilefni til umr. um það, En um það, hvort mögulegt væri að hefja greiðslu fyrr en úttekt hefur farið fram, er svarið auðvitað eitt nei. Það er ekki mögulegt. En úttekt er ætíð lokið fyrir áramót. Það liggur þess vegna alltaf fyrir um áramót, hvað það er. Það getur dregizt einhverja daga, máske einhverjar vikur, að það sé gerð grein fyrir því, vegna úrvinnslu gagna, en slíkt skiptir að jafnaði ekki mörgum mánuðum.

Þá var það hv. 2. þm. Norðurl. v. Ég skal nú ekkert fara að metast um það við hann, hvor okkar hefur fengið meira af þessu orðaskaki í gærdag. Hann taldi, að hann hefði ekkert annað gert en að lesa upp nokkrar tölur og ég hefði ekki þolað, að þessi stofnun væri nefnd. Þetta var alls ekki það, sem gaf mér tilefnið, heldur það, að þó að hann nú segði, að hann hefði verið með hógvær og kurteisleg orð, þá voru orð hans um vélasjóð þau, að þetta væri komið út í óefni, sem gæti ekki gengið. Það voru þau orð, sem komu mér til að hlusta ekki á þetta alveg þegjandi. Nú skýrir hann frá því, að það sé búið að afhenda skuldirnar við vélasjóð lögfræðingum. Ég skal ekki bera brigður á, að það sé rétt. En ég vildi biðja hv. endurskoðanda að upplýsa, hvort það væru skuldir við ræktunarsambönd, því að það er eins og hann sjálfur upplýsti áðan, þá hefur það atvikazt svo, að vélasjóður hefur skipt við ýmsa fleiri, svo sem ríkisfyrirtæki og bæjarfélög. Skyldu ekki liggja þar þessar skuldir, sem hefur þurft að fá lögfræðing til að innheimta? Það er náttúrlega landbúnaðinum óviðkomandi.

Þá endurtók hann það enn, að útistandandi væri meira en tekjur af leigu, og þótti það óskaplegt. Ég tel, að á því sé nokkuð full skýring það, sem ég sagði áðan, að vélasjóður selur varahluti og vinnu fyrir nálega 3 millj. kr., umfram skurðgröfuleiguna, og ég skýrði, hvernig háttað væri viðskiptum hans við þessa aðila, sem að landbúnaðinum snúa. En svo eru eftir skýringum hv. endurskoðanda viðskipti við aðra, og það vissi ég raunar um áður og vissi, að vanheimturnar eru einmitt þar á ferðinni, en ekki hjá þeim fyrirtækjum, sem snúa að landbúnaðinum.