10.03.1961
Neðri deild: 73. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (916)
179. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Frv. þetta hefur verið til meðferðar í fjhn. d. Það hefur ekki orðið samkomulag um afgreiðslu málsins, og skilar minni hl., 1. þm. Norðurl. v., séráliti.
Þetta frv. er hluti af heildarendurskoðun á bankalöggjöf landsins, sem hæstv. ríkisstj. hefur látið framkvæma á liðnum vetri. Þegar hafa nokkur lög verið samþykkt í sambandi við þessa heildárendurskoðun, svo sem lög um Verzlunarbanka Íslands og lög um Búnaðarbanka Íslands. Önnur frumvörp, sem enn liggja fyrir þinginu til afgreiðslu sama efnis, eru frv. þetta um Landsbanka Íslands og einnig frv. um Útvegsbanka Íslands og Framkvæmdabankann. Ef þessi frumvörp ná samþykki þessa þings, hefur farið fram allgagnger endurskoðun á bankalöggjöf landsins og þá aðeins eftir að semja lög um almenna bankastarfsemi, um réttindi og skyldur banka og hvaða skilyrðum þurfi almennt að fullnægja, til þess að til banka sé hægt að stofna.
Minni hl. fjhn. hefur fært þau rök fram, að frv. þetta sé óþarft. Við í meiri hl. teljum, að hér sé um misskilning að ræða, því að fyrst og fremst er það öllum kunnugt og einkum þeim, sem starfað hafa að bankamálum, og er mér persónulega kunnugt um, að það er enginn ágreiningur um það í bankaráði Landsbanka Íslands, að lögin um Landsbankann muni hafa þurft endurskoðunar við að mörgu leyti. Liggja til þess ýmsar ástæður, m.a. þær, að þegar lögin voru siðast endurskoðuð og umsamin, var því starfi hraðað svo mjög, að nokkrar misfellur áttu sér þar stað. Í öðru lagi gefur það og auga leið, að ef frv. það um seðlabanka, sem nú er hér til umr. í hv. d., nær fram að ganga,er auðvitað brýn nauðsyn að endurskoða landsbankalögin sjálf.
Ég mun ekki hafa fleiri orð um þetta mál. Meiri hl. n. hefur lagt fram brtt. á þskj. 419, sem er sama eðlis og hlíðstæð brtt., sem borin var fram við frv. um seðlabanka, og lýtur að kjöri varamanna og aðalmanna í bankaráð, ef þeir falla frá á kjörtímabilinu, og hefur orðið samkomulag í n. um þessar tillögur. Ég vil fyrir hönd meiri hl. fjhn. leyfa mér að mæla með því við hv. d., .að frv. verði samþ. svo breytt, sem gert er ráð fyrir i þessari brtt.