14.10.1960
Neðri deild: 4. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

6. mál, heimild til að veita Friedrich Karl Lüder atvinnurekstrarleyfi á Íslandi

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Með þessu litla frv. þarf ekki langa framsögu. Ég vil aðeins geta þess, að nokkur undanfarin ár hafa farið fram rannsóknir af hálfu þýzks byggingarvöruverzlunarfirma á því, hvernig möguleikar væru á að hagnýta sér hraungjall það, sem finnst í milljónum tonna hér suður á Reykjanesskaganum, til byggingarvöruframleiðslu.

Þetta efni, þetta hraungjall, sem þarna liggur, hefur lítið verið notað til annarra hluta en til ofaníburðar á vegum og reynzt þó þar heldur illa, því þó að vel vinnist úr því í fyrstu, þá rýkur það mjög greiðlega í burtu, því að,það er svo létt. Hins vegar hafa verið byggðar úr því nokkrar plötur, steinar og plötur, og reynzt, að því er ég ætla, vel, enda hafa athuganir þessa þýzka firma staðfest það, að tekniskt sé þetta efni mjög heppilegt til byggingarhlutaframleiðslu, t.d. til framleiðslu á byggingarsteinum og einangrunarplötum o.þ.h. En það, sem máli skiptir í þessu sambandi þar að auki, er, að flutningar á því eru dýrir, og þess vegna hefur það verið nokkrum vafa bundið, hvort takast mætti að framleiða þetta til útflutnings, svo að arðvænlegt væri.

Nú hefur hins vegar þetta firma komizt að þeirri niðurstöðu, að þetta mundi vera hægt og auk þess unnt að greiða nokkurt fjármagn fyrir leyfi til að taka efnið og svo náttúrlega vinnulaun til þeirra manna, sem við þetta vinna, hafnargjöld fyrir að koma því út í skip og ýmislegt annað þess háttar, þannig að á s.l. vori var gerður samningur á milli Hafnarfjarðarkaupstaðar og þessa firma um það, að firmað fengi rétt til að hagnýta sér þessi efni innan takmarka bæjarlands Hafnarfjarðar gegn þóknun, sem þar er ákveðin.

Skilyrði fyrir því, að þetta yrði gert, var það, að firmað sjálft hefði flutninginn með höndum, vegna þess að það taldi sig eiga flutningatæki, sem hentuðu og geta komið flutningskostnaðinum neðar en aðrir mundu geta gert. En þá er það, að þessi flutningur á efninu til sjávar verður starfræksla, sem útlendingur framkvæmir, og til þess að mögulegt sé að veita leyfi til slíkrar starfrækslu, þarf sá, sem leyfið fær, að vera búsettur hér á landi.

Efni þessa frv. er eingöngu það að undanþiggja þennan mann, sem þennan atvinnurekstur ætlar að stunda, því skilyrði laganna, að hann sé búsettur hér á landi. Þetta er, að því er mér er tjáð, stórt verzlunarfirma, sem hefur mörgum hnöppum að hneppa og um ýmsa hluti aðra að hugsa en þó að í þetta væri ráðizt, og þess vegna ekki sanngjarnt að gera það að skilyrði, að maðurinn hafi fasta búsetu hér á landi.

Það varð þess vegna úr, að félmrn. gaf út brbl., sem eru birt sem fskj., um það, að atvinnuleyfi skyldi veitt firmanu í þessu skyni, til þess að hagnýta þetta efni og koma því til sjávar og jafnframt, ef það teldist heppilegt, að stunda einhvern iðnað, eftir ,að efnið væri komið saman á einn stað, jafnvel þilplötugerð og steinagerð eða eitthvað þess háttar, ef heppilegra þætti að gera það hér á landi, og einnig til útflutnings.

Ég tel svo ekki, að um þetta þurfi að hafa fleiri orð. Mér finnst þetta liggja í augum uppi, og svo fannst einnig þeim, sem samband hefur verið haft við um þetta mál.

Ég vil leyfa mér að leggja til, að að umr. lokinni verði málinu vísað til hv. iðnn.