19.01.1961
Neðri deild: 46. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í B-deild Alþingistíðinda. (953)

152. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Frv. þetta er til staðfestingar á brbl., sem forseti Íslands gaf út samkv. till. ríkisstj. hinn 5. jan. s.l. Meginatriði brbl. er að heimila stofnlánadeild sjávarútvegsins við Landsbanka Íslands að opna nýja lánaflokka í þeim tilgangi að bæta fjárhagsaðstöðu fyrirtækja, sem stunda sjávarútveg og fiskvinnslu og hafa ekki á undanförnum árum fengið nægilegt fjármagn til langs tíma til þeirra framkvæmda, er þau hafa ráðizt í. Er gert ráð fyrir því, að stofnlánadeildin afli fjár til þessara lána með því að stofna til skuldar við Seðlabankann, enda sé svo um samið við viðskiptabanka þeirra fyrirtækja, er lán fá, að staða þeirra banka gagnvart Seðlabankanum batni í samræmi við það, og skulu lán Seðlabankans til stofnlánadeildarinnar endurgreiðast jafnört og lán hennar innheimtast. Hér er því um það að ræða að breyta allmiklu af skuldum sjávarútvegsins til skamms tíma í löng lán, og var talið nauðsynlegt að gera slíkar ráðstafanir kleifar um leið og vertið hæfist.

Áður en ég rek einstök ákvæði brbl. nánar og skýri þau, er rétt að gera stuttlega grein fyrir þeim atriðum í fjármálum sjávarútvegsins, sem gera slíkar ráðstafanir nauðsynlegar og eðlilegar.

Um það getur varla verið ágreiningur, að fátt sé íslenzku efnahagslífi mikilvægara en að fjármál höfuðatvinnuvegar þjóðarinnar, sjávarútvegsins, séu í heilbrigðu horfi. Á það hefur hins vegar skort verulega um langt skeið undanfarið. Enginn íslenzkur atvinnuvegur býr nú við jafnóheilbrigt ástand í fjármálum sinum og einmitt sjávarútvegurinn.

Jafnframt því, sem hin nýja stefna núv. ríkisstj. í efnahagsmálum lagði traustan grundvöll að heilbrigðum rekstri og auknum afköstum í sjávarútveginum, var nauðsynlegt, að ráðstafanir væru gerðar til þess að koma fjármálum útgerðarfyrirtækja í heilbrigðara horf, þannig að óheilbrigð fjárhagsuppbygging útgerðarfyrirtækja torveldaði þeim ekki að hagnýta þau vaxtar- og framfaraskilyrði, sem hin nýja stefna leggur grundvöll að.

Það, sem fyrst og fremst hefur háð útgerðarfyrirtækjum á fjárhagssviðinu, er mikill skortur á lausafé. Hefur hann sumpart stafað af rekstrarörðugleikum, en þó í miklu ríkara mæli af mikilli fjárfestingu, sem hvorki hefur verið hægt að kosta af hagnaði né heldur afla til hæfilega langra lána. Í stað þess hafa fyrirtækin safnað lausaskuldum og þó einkum aukið afurðalán sin og bundið rekstrarfé fyrirtækjanna. Þá er þess og að geta, að mörg fyrirtæki í sjávarútvegi hafa of lítið eigið fé, en það veldur hins vegar því, að vaxtabyrðin verður óeðlilega þung. Verðbólga undanfarinna áratuga og rekstrarörðugleikar hafa smám saman eytt eigin fé í rekstri fyrirtækjanna, jafnframt því sem eigið fé bundið í fasteignum hefur aukizt vegna verðhækkana eignanna. Hins vegar hefur mat eignanna til skatts haldizt lágt og þar af leiðandi einnig lögleyfðar afskriftir. Fjármagnsmyndun í fyrirtækjunum verður lítil, jafnvel þótt afkoman sé góð, og afskriftir og ágóði að frádregnum sköttum nægja ekki til þess að viðhalda eignum og endurnýja þær. Að síðustu er þess að geta, að verðbólga undanfarna áratugi hefur ýtt mjög undir öra fjárfestingu og valdið því, að uppbygging fiskvinnslufyrirtækja hefur verið handahófskenndari en æskilegt hefði verið. Hafa örðugleikar á öflun lánsfjár til langs tíma stuðlað enn frekar að þessu. Þó að framleiðslugetan sé öðrum þræði meiri en hægt er að hagnýta, er að hinu leyti víða um að ræða ófullkomna aðstöðu og lélega skipulagningu.

Af því, sem nú hefur verið sagt, má vera ljóst, að það, sem sjávarútveginum ríður sérstaklega á, er, að greiðslutíma skulda hans sé breytt til samræmis við þann tíma, sem hann hefur fest fé til. Mjög mörg útgerðarfyrirtæki eru hlaðin lausaskuldum í bönkunum, og íþyngja þær rekstri þeirra verulega. Er hér sumpart um að ræða lán með veði í afurðum, rekstrarlán, sem eiga að greiðast af afla, og gamlar lausaskuldir vegna taprekstrar. Bæði afurðalánin og rekstrarlánin eru orðin óeðlilega há hjá fjölda fyrirtækja, vegna þess að peningar hafa verið teknir út úr rekstrinum til fjárfestingar eða vegna taprekstrar. Þetta veldur á hinn bóginn því, að peningatekjur fyrirtækjanna eru teknar jafnóðum upp í afurðalán bankanna. Fjármál fyrirtækjanna reyrast þannig í mjög þröngar skorður.

Það er megintilgangur þessarar lagaseiningar að létta þeim bagga af sjávarútveginum, sem í því felst, að óeðlilega hár hluti fjármagns fyrirtækjanna er lánsfé til skamms tíma, sem þó hefur verið fest í framkvæmdum til langs tíma. Skal ég nú gera grein fyrir því, hvernig framkvæmd þessarar lánabreytingar er fyrirhuguð.

Gert er ráð fyrir því, að fyrirtæki, sem stunda sjávarútveg og fiskvinnslu, geti sótt um nýja tegund lána hjá stofnlánadeildinni fyrir meðalgöngu viðskiptabanka síns og með ábyrgð hans. Lán þessi skulu aðeins veitt gegn veði í framleiðslutækjum. Í sambandi við þá veðsetningu skulu eignir allar metnar til endurkaupsverðs að frádregnum eðlilegum afskriftum, er miðist við rýrnun eignarinnar, frá því að hún varð til. Einnig skal við ákvörðun endurkaupsverðs taka fullt tillit til tæknilegs notagildis eignarinnar, t.d. hvort hún fullnægir nútímakröfum varðandi afkastagetu, rekstrarhagkvæmni o.fl. Mat þetta framkvæma þrír menn, einn tilnefndur af stofnlánadeildinni, einn af fjmrn. og hinn þriðji af viðskiptabanka Landsbankans og Útvegsbanka Íslands sameiginlega. Hámarkslán, að viðbættum öðrum lánum, sem á hinum veðsettu eignum hvíla, skulu vera 70% af matsverði. Gert er ráð fyrir því, að stofnlánadeildin geti lækkað þetta hlutfall, þegar matið er að hennar dómi of hátt, miðað við viðskiptalega aðstöðu fyrirtækis eða staðsetningu, t.d. að því er varðar öflun hráefnis eða rekstrarkostnað. Hámarkslánstíminn skal vera 20 ár fyrir lán út á fasteignir, 15 ár fyrir lán út á skip og 10 ár fyrir lán út á vélar, en innan þessara marka miðist lánstími við áætlaðan endingartíma hinna veðsettu eigna. Stjórn stofnlánadeildarinnar ákveður vexti, að höfðu samráði við ríkisstj. Er gert ráð fyrir því, að lántakandi greiði jafnan afborganir og vexti tvísvar á ári, 1. maí og 1. nóv. Gert er ráð fyrir fyrstu afborgun 1. maí 1962, en vaxtagreiðslur eiga hins vegar að hefjast strax á reglulegum gjalddögum.

Stofnlánadeildinni er ætlað að hafa náið samráð við viðskiptabanka lánbeiðanda varðandi athugun á lánbeiðni hans. Skal stofnlánadeildin, að fengnum tillögum frá viðskiptabönkunum, setja reglur varðandi það, hversu meta skuli fjárþörf fyrirtækja í því skyni að leysa úr lausafjárvandræðum þeirra.

Lán úr stofnlánadeild skal því aðeins veita, að deildin telji, að með því megi koma fjárhag lánbeiðanda á viðunandi grundvöll. Þegar stjórn stofnlánadeildarinnar telur, að fengnum till. viðskiptabanka umsækjanda, þörf á ýtarlegri athugun á fjárhag umsækjandans, áður en unnt sé að afgreiða lánbeiðni frá honum, getur hún tilkynnt það skiptaráðanda, og er þá hvers konar kyrrsetning eða aðför vegna skuldbindinga lánbeiðanda óheimil á hendur honum og ábyrgðarmönnum hans, þangað til lánsumsókn hefur verið afgreidd, en þó aldrei lengur en til ársloka 1961. Bú hans má ekki heldur taka til gjaldþrotaskipta á því tímabili. Hér er því aðeins um heimildarákvæði að ræða, sem ekki er gert ráð fyrir að þurfi að grípa til nema vegna tiltölulega fárra fyrirtækja, sem orðið hafa fyrir sérstökum rekstrarörðugleikum.

Gert er ráð fyrir, að Seðlabankinn láni stofnlánadeildinni það fé, sem hún þarfnast, til þess að kaupa þau skuldabréf, sem hér verður um að ræða. Hins vegar gangi andvirði skuldabréfanna að langmestu leyti til þess að greiða lausaskuldir lántakanda við viðskiptabanka sína eða aðra kröfuhafa, sem að sínu leyti eru einnig skuldunautar viðskiptabankanna, þannig að ekki verði um að ræða aukið lánsfé til handa fyrirtækjunum, heldur breytingu á skuldum til skamms tíma í langt lán. Jafnframt er gert ráð fyrir því, að Seðlabankinn fallist á að taka þessi nýju skuldabréf til greiðslu á lausaskuldum viðskiptabankanna við hann og til að bæta reikningsaðstöðu þeirra, enda ábyrgist bankarnir greiðslu bréfanna gagnvart Seðlabankanum. Þannig verði hér ekki um að ræða, að nýju fé sé veitt til viðskiptabankanna úr Seðlabankanum, heldur minnkar skuld viðskiptabankanna við Seðlabankann eða inneign þeirra þar vex um sömu fjárhæð og útistandandi lausaskuldir viðskiptabankanna hjá sjávarútveginum minnka vegna hinna nýju lánastofnana deildarinnar. Frá sjónarmiði Seðlabankans horfir málið þannig við, að kröfur hans á viðskiptabankana minnka, en hann öðlast hins vegar innstæðu hjá stofnlánadeildinni.

Á móti skuld stofnlánadeildarinnar við Seðlabankann koma hins vegar veðkröfur hennar á hendur lántakendum, ásamt ábyrgð viðskiptabankanna.

Frá sjónarmiði viðskiptabankanna horfir málið þannig við, að skuld þeirra við Seðlabankann minnkar eða inneignin hjá honum eykst jafnmikið og kröfur á sjávarútveginn minnka. Í lánamálum sjávarútvegsins hefur það hins vegar gerzt, að í stað stuttra skulda við viðskiptabankana er komið langt skuldabréfalán hjá stofnlánadeildinni.

Hluti af þeim lausaskuldum sjávarútvegsins, sem greiða verður, er ekki við viðskiptabanka, heldur við aðra aðila, svo sem verzlunar- og iðnaðarfyrirtæki, sem selja sjávarútveginum nauðsynjar eða framkvæma fyrir hann þjónustu. Lánabreytingin stuðlar mjög að því, að fyrirtæki geti greitt slíkar skuldir, þar sem breyting afurðalána og annarra stuttra lána í bönkunum í löng lán losar fé, sem hefði ekki farið til greiðslu þessara stuttu lána. Sú greiðslugeta, sem þannig skapast, á að gera fyrirtækjum kleift að standa í skilum við aðra aðila.

Samt má búast við því, að stundum verði óhjákvæmilegt, að hluti stofnlánadeildarlánanna fari til greiðslu lausaskulda utan bankanna. Þegar hin löngu lán eru notuð til greiðslu slíkra skulda, verður að gera ráð fyrir því, að viðskiptabönkunum geti yfirleitt tekizt að lækka skuldir þessara fyrirtækja við sig um jafnháa upphæð. Yrði þá um hreina lánabreytingu að ræða, alveg eins og þegar hin löngu lán eru notuð til greiðslu beinna skulda sjávarútvegsins í bönkunum. Þó má búast við, að þetta sé ekki alltaf mögulegt, þ.e., að í einstaka tilvikum þurfi að greiða með hinum löngu lánum lausaskuldir, sem séu þess eðlis, að samsvarandi lækkun á bankaskuldum geti ekki átt sér stað. Viðskiptabankinn verður eigi að síður að bæta stöðu sína gagnvart Seðlabankanum jafnmikið og nemur hinu nýja láni. Verður þá annað tveggja að eiga sér stað: að viðskiptabankinn leggi fram af eigin rammleik það fé, sem þarf til að greiða slíkar lausaskuldir, eða í öðru lagi, að Seðlabankinn með sérstökum samningi við viðskiptabankann geri honum kleift að leggja fram þetta fé, enda leyfi þróunin í viðskiptum bankakerfisins í heild við Seðlabankann, að það sé gert án nýrrar peningaþenslu.

Þetta eru aðalatriði þess kerfis, sem gert er ráð fyrir að koma upp á grundvelli bráðabirgðalaganna frá 5. jan. 1961, sem ríkisstj. vonar að hið háa Alþingi fallist á.

Á því getur varla leikið nokkur efi, að rekstraröryggi sjávarútvegsins eykst mjög við þá lánabreytingu, sem hér er gert ráð fyrir. Á hinn bóginn er hér ekki um að ræða neins konar styrk til sjávarútvegsins, sem inntur sé af hendi á kostnað nokkurs annars atvinnuvegar eða nokkurrar annarrar stéttar. Það er Seðlabankinn, sem ber byrðina af lengingu lánanna. Það er sterk aðstaða Seðlabankans, sem gerir þessa lengingu lánanna mögulega, og hin sterka aðstaða hans til þess að gera þessa ráðstöfun byggist fyrst og fremst á því, að gerðar hafa verið á s.l. ári ráðstafanir til þess að koma peningamálum þjóðarinnar í heilbrigt horf. Ríkisstj. er á hinn bóginn Ijóst, að öllum umbótaþörfum í fjármálum sjávarútvegsins er engan veginn fullnægt með þessum ráðstöfunum. Í kjölfar þeirrar endurskipulagningar á fjárhag útgerðarfyrirtækja, sem þessi lagasetning væntanlega leiðir til, er nauðsynlegt að sigli ráðstafanir til þess að sjá öllum greinum sjávarútvegsins fyrir nægilegu fjármagni til nauðsynlegra nýbygginga og endurbóta. Verður það eflaust ekki gert nema með erlendum lánum að verulegu leyti. Einmitt þess vegna er það gleðilegt, að þjóðin endurheimti nú það lánstraust, sem hún því miður var að glata.

Ríkisstj. hefur í undirbúningi samningu allsherjar framkvæmdaáætlunar fyrir nokkur næstu ár, og verður samræmd fjárfestingaráætlun fyrir sjávarútveginn að sjálfsögðu einn meginþáttur þeirrar framkvæmdaáætlunar. Þegar hún liggur fyrir, er nauðsynlegt að athuga skilyrði til öflunar erlends fjármagns til langs tíma til slíkra framkvæmda. Kæmi þá vel til greina, að slík lán færu að einhverju leyti um hendur þeirrar stofnunar, sem þetta frv. fjallar um, þ.e.a.s. stofnlánadeildar sjávarútvegsins. Jafnframt þarf að vinna að því, að sem fyrst komist á innlendur verðbréfamarkaður, þar sem hægt væri að afla lánsfjár til stofnlánadeildarinnar og annarra fjárfestingarlánastofnana. Væri þá t.d. hugsanlegt, að víðskiptabankar vildu kaupa verðbréf stofnlánadeildarinnar, sem síðan annaðist útlán til sjávarútvegsins, fremur en að lána sjávarútveginum beint til fjárfestingar. Ég get þessa hér einungis til þess að undirstrika, að ríkisstj. er ljós nauðsyn þess að bæta skipulag á lánveitingum til fjárfestingar í sjávarútvegi og hefur fullan hug á að koma þeim málum á traustan grundvöll í sambandi við framkvæmd þeirrar framkvæmdaáætlunar, sem í undirbúningi er að semja.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að þessu frv. verði vísað til 2. umræðu og hv. fjhn.