23.01.1961
Neðri deild: 48. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (961)
152. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég held, að þær umr., sem urðu hér í hv. deild s.l. fimmtudag og föstudag í sambandi við þetta frv., hafi orðið gagnlegar. Ég held, að þær hafi brugðið nokkurri birtu á atriði, sem oft hefur verið talað um með allt of óljósum hætti og að þær eigi að geta stuðlað að því, að í framtíðinni ræðist hvorki þm. né aðrir við um mikilvæg atriði í efnahagsmálunum þannig, að almenningur fái tilefni til þess að misskilja veigamikil atriði og fá rangar hugmyndir um staðreyndir. Þessu tel ég, að tvímælalaust beri að fagna.
Í ræðum hv. stjórnarandstæðinga, málsvara hv. Framsfl. og hv. Alþb., 1. og 4. þm. Austf., voru nokkur atriði s.l. föstudag, sem ég sé ástæðu til að gera að nokkru umtalsefni. Ég skal láta alveg vera að lengja þessar umr. með því að víkja að því, sem mér finnst mega telja aukaatriði í málinu, minni háttar atriði, heldur ræða atriði, sem snerta grundvallaratriði í þeim deilum, sem uppi eru milli ríkisstj. annars vegar og stjórnarandstæðinga hins vegar um kjarnann í stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum. Um þetta atriði var málflutningur þessara tveggja hv. þm., hv. 1. þm. Austf. og 4. þm. Austf., svo líkur, að í raun og veru er ekki ástæða til þess að greina þar sérstaklega á milli. Það var sami kjarninn í ádeilum þeirra beggja, ekki aðeins á þetta frv., heldur í því, sem þeir vildu í framhaldi af umr. um það gera að kjarnaádeilu á ríkisstj. Þeir gerðu það báðir að aðaluppistöðu máls síns s.l. föstudag að segja, að í þeim skýrslum, sem ríkisstj. hefði birt um heildargreiðsluhallann í grg. sinni fyrir frv. um efnahagsmál veturinn 1960, væru fólgnar miklar blekkingar, mjög alvarlegar blekkingar, og þó kannske öllu heldur, að út af þessum upplýsingum hefði verið lagt þannig, að þjóðinni hefðu verið gefnar alrangar hugmyndir um staðreyndir málsins. Þeir héldu því báðir fram, að fram til þess tíma, þangað til í febrúar 1960, hefðu bæði hagstofan og hagdeild Landsbankans birt upplýsingar um greiðslujöfnuðinn þannig, að þær hafi snert aðeins greiðslujöfnuðinn í vörum og þjónustu, en síðan hefði ríkisstj. tekið upp nýja skilgreiningu á hugtakinu greiðslujöfnuður og bætt þar við afborgunum af erlendum lánum, fengið þannig út miklu hærri heildargreiðsluhalla, notað hann til þess að segja þjóðinni ranglega, að hún hefði lifað um efni fram, og reynt þess vegna með röngum og fölskum forsendum að fá þjóðina til þess að trúa því til þess að sætta sig við kjaraskerðinguna, þótt til þess hafi engin ástæða verið. Til sönnunar þessum kjarna í málflutningi sínum vildu þeir síðan benda á, að nú væri það upplýst, bæði í grein, sem komið hafi í Morgunblaðinu eftir framkvæmdastjóra Verzlunarráðsins, og tölum, sem ég skýrði frá s.l. fimmtudag, að enn á árunum 1953 og 1960 hefði verið mikill greiðsluhalli í sama skilningi og stjórnin hefði lagt í orðið, þegar hún lagði fram frv. um efnahagsmál, og væri þetta hinn þyngsti dómur á viðreisnina, að á þeim tíma, síðan þessir flokkar fóru úr stjórn, hafi haldið áfram að vera mikill heildargreiðsluhalli á þjóðarbúskap Íslendinga, þannig að við sjálfir hefðum fellt dóm um okkar eigin stefnu með því að birta upplýsingar um áframhaldandi mikinn greiðsluhalla á árunum 1959 og 1960.
Hér er í raun og veru um að ræða mjög veigamikið grundvallaratriði í orðaskiptum í umr. stjórnarsinna annars vegar og stjórnarandstæðinga hins vegar um efnahagsmálin, svo að það er full ástæða til þess að gera þessum atriðum nokkur skil.
Að því er það snertir fyrst, að ríkisstj. hafi tekið upp einhverja nýja merkingu í orðinu greiðsluhalli í grg. fyrir frv. um efnahagsmál í febrúar 1960, er það hinn mesti misskilningur. Svo vill til, að ég var alveg nýlega að lesa grein í alþjóðlegu fjármálatímariti, sem gefið er út af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, um efnahagsmál Norðmanna á árinu 1960. Þetta er ritið International Financial News Surway, og stendur í þessari grein um efnahagsmál Norðmanna þessi setning, með leyfi hæstv. forseta:
„Hallinn á greiðslujöfnuðinum á vörum og þjónustu verður væntanlega upp undir 400 millj. norskra kr. árið 1961 eða um það bil 100 millj. kr. hærri en hann var á árinu 1960. Afborganir af skuldum eru áætlaðar 400 millj. norskra kr., og veldur það heildargreiðsluhalla að upphæð um það bil 800 millj. norskra kr.“
Ég get þessa dæmis hér einungis til þess að taka af öll tvimæli um, hvernig um svona mál er hugsað og skrifað á alþjóðlegum vettvangi. Og þar verður þess ekki vart, að nokkur sjái ástæðu til þess að rangtúlka slíkar upplýsingar eða telja þær þýða allt annað en þær raunverulega þýða. Hér er gerður í ljósu máli greinarmunur á greiðsluhalla á vörum og þjónustu annars vegar og síðan rætt um afborganir af erlendum lánum og í framhaldi af því talað um heildargreiðsluhalla svo og svo mikinn. Þetta er nákvæmlega sama aðferðin og ríkisstj. hafði í grg. sinni fyrir efnahagsmálafrv. Þar var skýrt frá greiðsluhalla á vörum og þjónustu fyrir næstliðin fimm ár og spáð um hann fimm ár fram í tímann, síðan gerð grein fyrir afborgunum af lánum fyrir sama tímabil og loks rætt um heildargreiðsluhallann. Hitt er rétt hjá hv. þm., að það yfirlit, sem hagstofan og Landsbankinn hafa gert um greiðslujöfnuðinn um mörg undanfarin ár, hefur verið um greiðsluhalla á vörum og þjónustu, enda ávallt tekið skýrt fram, enda augljóst fyrir hvern þann, sem skýrslurnar les, að það er um greiðsluhallann á vörum og þjónustu. Hagstofan og Landsbankinn hafa hins vegar aldrei gert skýrslur um heildargreiðsluhallann við útlönd, ekki tekið afborganir af erlendum lánum og aðrar fjármagnshreyfingar inn í þessar skýrslur sínar. Þessi skýrsluform eru orðin mjög gömul, og það er mjög eðlilegt, að Landsbankinn og hagstofan hafi ekki gert þetta, einfaldlega vegna þess, að það er ekki fyrr en alveg nú nýlega, eins og ég vék nokkuð ýtarlega að í ræðu minni á fimmtudaginn, að greiðslur af erlendum lánum hafa farið að skipta mjög verulegu máli í samanburði við greiðsluhallann á vörum og þjónustu. Það var einmitt sú staðreynd, hversu miklu máli þessar afborganir voru farnar að skipta á síðari helming áratugsins, 1956 og síðar, að það hefði verið óforsvaranlegt að geta ekki sérstaklega um þær í sambandi við greiðsluhallann — í framhaldi af greiðsluhallanum á vörum og þjónustu. Það að gera þjóðinni eingöngu grein fyrir greiðsluhallanum á vörum og þjónustu, greiðsluhalla í þrengri merkingu orðsins, en láta hitt ekki fylgja með til skýringar til viðbótar, þannig að þjóðin gerði sér ljósan heildargreiðsluhallann, hefði verið að blekkja sjálfa sig og þjóðina herfilega.
Sannleikurinn er sá, að báðar þessar merkingar í orðinu greiðsluhalli hafa mikla þýðingu. En þær hafa misjafna þýðingu eftir því, hvernig aðstæðurnar eru. Ef afborganabyrðin er tiltölulega jöfn frá ári til árs, að ég ekki tali um frá áratug til áratugs, svo sem á sér stað hjá mörgum þjóðum, þar sem iðnaðarþróunin hefur um langan tíma verið stöðug, er aðalstærðin, sem máli skiptir, greiðsluhallinn á vörum og þjónustu. Aftur á móti fyrir þjóðir, sem standa í örri uppbyggingu, að ég nú ekki tali um, ef þær kosta hana að mjög verulegu leyti með föstum erlendum lánum, verður að skoða heildargreiðsluhallann til þess að gera sér grein fyrir því, hvert stefnir í efnahagsmálum þjóðarinnar. Hitt er svo annað mál, og það þurfa allir, ekki aðeins þm., heldur allir, sem þessi mál skipta, að gera sér algerlega ljóst, að greiðsluhalli, í hvorri merkingunni sem er, segir út af fyrir sig ekkert um það, hvort þjóð lifir um efni fram eða ekki. Greiðsluhalli í hvorri tveggja merkingunni segir í sjálfu sér ekkert um það, hvort þjóð lifir um efni fram eða ekki. Það er alveg eðlilegt, að þjóðir hafi greiðsluhalla, að þjóðir, sem standa í uppbyggingu sinna atvinnuvega, að þjóðir, þar sem mörg verkefni eru og hægt er að hagnýta innlent og erlent fé með hagkvæmum hætti, hafi einhvern greiðsluhalla við útlönd. Hitt hlýtur hvert mannsbarn að sjá, að þessi staðreynd þýðir ekki það, að greiðsluhallinn megi vera eins mikill og verkast vill. Þó að einhver greiðsluhalli við útlönd sé fullkomlega eðlilegur, fullkomlega réttlætanlegur og jafnvel til mikils góðs fyrir þróun þjóðarbúskaparins, má auðvitað ekki draga af því þá fjarstæðukenndu ályktun, að engu máli skipti, hvort greiðsluhallinn er mikill eða lítill, og ætti ekki að þurfa að undirstrika það öllu meir.
Hallinn, hvort sem hann er mikill eða lítill, jafnast með lántökum erlendis. Í því sambandi er mjög mikilvægt, hvers eðlis lánin eru, hvort þau eru föst lán eða lausaskuldir, og einnig, hvort þau eru til langs eða skamms tíma. Það, sem fyrst og fremst var varhugavert við hinar miklu lántökur okkar undanfarinn áratug, einkum á seinni helmingi áratugsins, var sú staðreynd, að allt of mikill hluti hinna erlendu lána var söfnun lausaskulda og allt of mikill hluti hinna erlendu lána voru lán til stutts tíma, til 4–6 ára.
Báðir málsvarar hv. stjórnarandstöðu í þessum umr. hafa haldið því fram, að hinn mikli greiðsluhalli áranna 1955–59, sem bent var á við undirbúning efnahagsráðstafananna á s.l. ári, hafi ekki verið varhugaverður, vegna þess að hið erlenda lánsfé hafi farið til þess að greiða kostnað við margs konar framkvæmdir, við Sogsvirkjunina, áburðarverksmiðjuna og við skipa- og bátakaup. Þetta atriði hefur verið eitt meginatriðið í deilunum um efnahagsmál, ekki aðeins í þessum umr. og ekki aðeins undanfarnar vikur, heldur undanfarna mánuði. Þetta er í raun og veru eitt hið helzta, sem fylgismönnum stjórnarstefnunnar og andstæðingum hennar ber á milli um staðreyndir í efnahagsmálunum. Þessi staðhæfing var endurtekin svo að segja alveg samhljóða af þessum hv. þm. s.l. föstudag. Upphæð greiðsluhallans er í raun og veru alveg óumdeild. Eftir að menn hafa komið sér saman um, að réttlætanlegt sé að nota orðið greiðsluhalli í víðari og þrengri merkingu, heldur mér vitanlega enginn því fram, að tölurnar um heildargreiðsluhallann séu ekki réttar. En þá hefur því verið haldið fram, að þessi greiðsluhalli, þótt mikill sé, um 200 millj. á ári í gamla genginu, hafi ekki verið varhugaverður og hann sé ekki varhugaverður, vegna þess að lánsféð hafi farið til þess að greiða kostnað við framkvæmdir, sem síðan eru nefndar. En hér er um grundvallarmisskilning að ræða, sem að vísu hefur verið bent á áður, en kannske ekki undirstrikað nógu rækilega, og þess vegna er þessi staðhæfing endurtekin æ ofan í æ, og það er því fyllsta ástæða til að fara nokkrum almennum orðum um þessa staðhæfingu.
Heildarframleiðsla þjóðar verður væntanlega alltaf meiri en erlendar lántökur hennar á sama tíma. Þess vegna er og verður áreiðanlega alltaf hægt að benda á framkvæmdir innanlands, sem séu jafnmiklar og erlendar lántökur á sama tíma. Þetta á ekki aðeins við um Íslendinga. Þetta á við um bókstaflega allar þjóðir, sem taka erlend lán. Ég þekki ekki til slíks ástands hjá nokkurri þjóð, að hún hafi tekið meiri erlend lán en sem svarar til framkvæmda innanlands á sama tíma. Þetta hefur ekki heldur átt sér stað hér. Framkvæmdir okkar hér innanlands á þessu tímabili, 1955–58, hafa auðvitað verið miklu, miklu meiri en erlendar lántökur okkar á sama tíma. Við getum aldrei tekið svo mikil erlend lán, við mundum aldrei fá svo mikil erlend lán nokkurs staðar, að við gætum ekki bent á, að framkvæmdir innanlands yrðu enn meiri en til lántakanna svarar. Þetta er ekki aðalatriði málsins. Þjóð má ekki taka ótakmörkuð lán erlendis, jafnvel þó að hún verji þeim öllum til framkvæmda. Ég skal segja meira: Þjóð má ekki taka ótakmörkuð lán erlendis, jafnvel þó að hún geti varið þeim öllum saman til mjög hagkvæmra og arðbærra framkvæmda innanlands. Því eru nefnilega alveg ákveðin takmörk sett, hvað greiðslubyrðin af erlendum lánum má verða mikil, án þess að fjárhagslegu öryggi og heilbrigði sé stefnt í hættu. Það, sem meginmáli skiptir í sambandi við erlendar lántökur, sem þýða skuldbindingu um greiðslu í erlendum gjaldeyri framvegis, er, að greiðslubyrðin í erlendum gjaldeyri fari ekki fram úr ákveðnu marki, fari ekki fram úr ákveðnum hundraðshluta af heildargjaldeyristekjunum, því ef hún gerir það, stofnar hún lánstrausti þjóðarinnar í hættu. Þetta er meginatriði málsins í sambandi við erlendu lántökurnar á síðari helming áratugsins 1960, en alls ekki hitt, í hvað lánsféð fór.
Hjá okkur Íslendingum hafði verið haldið þannig á málum, að á árinu 1959 var orðið ljóst, að greiðslubyrðin af erlendum lánum, sem á árunum 1951–56 var aðeins 2–3% af gjaldeyristekjunum, fór svo ört vaxandi, að hún óx frá 1957 til 1959 um næstum helming. Hún var 1957 komin upp í 5.1%, helmingi meira en meðaltalið 1951–56. Hún fór enn vaxandi 1958, í um 5.7%, og 1959, þegar málin voru skoðuð ofan í kjölinn, var greiðslubyrðin enn vaxin um næstum helming frá því 1957. Hún var komin upp í 9.4% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, — og það sem enn alvarlegra var: það var fyrirsjáanlegt, að hún mundi verða enn meiri á árunum 1960 og 1961, þar sem hámarkinu mundi verða náð og greiðslubyrðin væri orðin milli 11 og 12%. Það var fyrirsjáanlegt á árinu 1959, að greiðslubyrðin mundi innan tveggja til þriggja ára, þ.e. á árinu 1961, vera orðin milli 11 og 12%, en að vísu minnka úr því, og það var þessi staðreynd, — þetta er ekki hægt að undirstrika nægilega sterkt, — það var þessi staðreynd, það var hinn stórkostlega vaxandi þungi af greiðslubyrði erlendra lána, sem gerði stefnubreytinguna óumflýjanlega, framar öllu öðru.
Það kann að vera erfitt að segja fyrir um það nákvæmlega, hversu greiðslubyrði þjóðar megi vera þung, án þess að hún stefni fjárhagslegu öryggi sínu og lánstrausti erlendis í voða. Það getur farið eftir aðstæðum, hvort eðlilegt er, að hún sé 2% eða 4, jafnvel 5%, en ég þekki engan mann, hvorki íslenzkan né erlendan, sem um þessi mál hefur fjallað, sem hefur talið 11–12% greiðslubyrði af erlendum lánum vera eðlilega, og þá undanskil ég ekki þessa tvo hv. þingmenn, sem hér hafa deilt fastast á hæstv. ríkisstj. Ég undanskil þá ekki, vegna þess að ég sat í 2–3 ár með þeim í ríkisstjórn og veit frá þeim tíma, að þeim er nákvæmlega jafnljóst og mér og okkur, sem nú sitjum í ríkisstj., að slík greiðslubyrði er algerlega óverjanleg. Okkur var að vísu ekki orðið þá, á árinu 1958, jafnljóst og varð á árinu 1959 og var árið 1960, hversu alvarlega stefndi í þessum efnum, af því að við erum þá enn á uppleið með fjárfestingarstefnuna. Fjárfestingarstefnan og lántökustefnan er í algleymingi, og það er einmitt ekki fyrr en á árinu 1958, sem við rekum okkur fyrst alvarlega á erfiðleikana, sem í stefnunni eru fólgnir, og ég man ekki betur en þessum hv. þm., sem þá voru ábyrgir ráðherrar, hafi verið alvara þessara fyrstu erfiðleika, sem okkur mættu, nákvæmlega jafnljós og mér var hún þá og mér er hún enn. Fyrstu erfiðleikarnir, sem sýna sig, ef teflt er á svona tæpt vað með greiðslubyrðina í framtíðinni, — á því ári var hún ekki orðin nema 5.7%, þó að síðar kæmi í ljós, að hún mundi verða meira en helmingi meiri þremur árum seinna, — fyrstu erfiðleikarnir, sem slíkt framtíðarútlit hefur í för með sér, eru, að lánstraust þjóðarinnar þrýtur. Það var þrotið 1958, á síðasta ári stjórnar Hermanns Jónassonar. Það var því miður þrotið 1958. Um það var okkur, þessum þremenningum, sem höfum deilt í þessum umr., öllum nákvæmlega jafnvel kunnugt. Ég þarf áreiðanlega ekki að minna þessa hv. fyrrv. samráðherra mína á þær lántökur, sem stjórn Hermanns Jónassonar stóð í árið 1958. Það er ekki ástæða til þess að blanda umr. um þau mál inn í þessar umr. Það mundi lengja þær óþarflega mikið. Ég minni aðeins á þá staðreynd, að á því herrans ári 1958 voru engin venjuleg lán fáanleg erlendis, og það olli ríkisstj. Hermanns Jónassonar einmitt alveg sérstökum erfiðleikum. Það var komið í ljós á því ári, að engin venjuleg lán voru fáanleg á því ári, og einmitt sú staðreynd var að stefna áætlunum þeirrar ríkisstj. í algera sjálfheldu, í fullkomna hættu, var að stöðva áætlanir þeirrar ríkisstj. Skýringin var auðvitað sú, að erlendir fjármálamenn voru að gera sér sömu staðreyndina ljósa og var að renna upp fyrir mönnum hér. Það gerðist samtímis, eins og eðlilegt er. Þau lán, sem fengust á því ári, voru fengin með algerlega óeðlilegum hætti. Ég þori að staðhæfa, að enginn okkar, sem þá sátum í ríkisstj., mundi vilja standa í slíkum lánaútvegunum oftar, enda alveg tvímælalaust, að slík lán hefði ekki verið hægt að fá öðru sinni. Það staðhæfi ég, enda var það sú staðreynd, sem mætti þeirri stjórn, sem tók við, stjórn Emils Jónssonar, og þeirri stjórn, sem nú situr, stjórn Ólafs Thors. Slík lán, sem þá voru tekin, hefði áreiðanlega enginn okkar viljað taka öðru sinni, enda ekki fáanleg.
Þessi staðreynd, sem ég hef nú verið að tala um, að það er hæð greiðslubyrðarinnar í hlutfalli við gjaldeyristekjur, það er þungi byrðarinnar, sem skiptir meginmáli í sambandi við öflun erlends lánsfjár, en ekki hitt, til hvers andvirði lánsfjárins fer, — þessi meginstaðreynd er mönnum algerlega ljós, ef menn líta í eigin barm. Hún er hverjum einasta launamanni algerlega ljós, jafnvel þó að reynt sé að gera slíka staðhæfingu tortryggilega, þegar um er að ræða þjóðarbúskapinn í heild. Er launamaður byggir yfir sig hús eða hefur í hyggju að koma sér upp íbúð, veit hann, af því að það er allt vandamálið fyrir framan hann í heild, að það er ekki aðalatriðið fyrir hann, hvort hann getur fengið lán í banka eða einhvers staðar. Það er alls ekki aðalatriðið, hvort hann getur fengið lán og hvort hann hefur aðstöðu til þess að byggja húsið, koma húsinu upp á skömmum tíma, jafnvel með alveg sérstaklega ódýrum hætti. Hann tekur ekki lán án þess að hugsa um greiðslutímann eða vextina, jafnvel þó að hann geti fengið það og jafnvel þó að hann hafi aðstöðu til þess að nota peningana með mjög arðbærum og mjög hagkvæmum hætti, t.d. þannig, svo að ég geri dæmið eins hagstætt og hugsanlegt er, að hann geti komið því upp með methraða og með alveg sérstökum aðstæðum, þannig að húsið geti orðið sérstaklega ódýrt. Hann veit vel, að það, sem er meginatriði fyrir hann í sambandi við það, hvort hann á að leggja í að taka lán og byggja húsið, er, með hvaða kjörum eða til hvaða tíma hann getur fengið lánið, og hann metur tímalengdina eftir tekjum sínum. Hann veit vel, að hann má ekki binda svo mikinn hluta af tekjum sínum fram í tímann, að hann hafi ekki nægilegt afgangs til þess að framfleyta sér og fjölskyldu sinni og inna af hendi þær greiðslur aðrar, sem nauðsynlegt er að inna af hendi. Allir munu vita, að maður má ekki leggja í að byggja hús fyrir lánsfé, ef hann bindur helming af tekjum sínum með þessu móti, alveg sama hvað húsið getur verið ódýrt. Ef hann gerir þetta, fer hann á höfuðið, þá missir hann fyrst húsið, og kannske það, sem er enn verra, hann fer einnig á höfuðið.
Þetta er augljós staðreynd hjá hverjum einstaklingi, a.m.k. þeim, sem hefur haft í hyggju að byggja hús eða kaupa sér íbúð. En það er eins og mönnum verði þessi einfaldi sannleikur eitthvað torskildari, ef þeir eiga að dæma um þjóðarbúskapinn allan. Engu að síður á nákvæmlega sama við um þjóðarbúið í heild. Það, sem þjóðin í heild má ekki gera, er að binda of mikinn hluta venjulegra gjaldeyristekna sinna í greiðslu afborgana af erlendum lánum, af því að þá verður það til þess, að þjóðin getur ekki innt af hendi þær greiðslur, sem hún annars vili inna af hendi sér til framfæris og til annars, sem hún áður hefur varið tekjum sínum til. Hún getur reist sér þann hurðarás um öxl, að hún þurfi annaðhvort að skera niður neyzlu sína eða framkvæmdir svo mikið, að af því hljótist alvarleg vandræði, eða hún lendir í vanskilum út á við, sem þýðir, að hún glatar lánstrausti sínu gersamlega.
Í þessu sambandi er í raun og veru ekki úr vegi að rifja upp með örfáum orðum, hvað hér gerðist í grundvallaratriðum á áratugnum 1950–60, því að það skýrir þá mynd, sem ég hef hér verið að reyna að draga upp af vandamálunum, sem við hefur verið að etja undanfarið. Það, sem hér gerist á áratugnum 1950–60 í mjög stórum dráttum, er það, að þegar gengisbreytingin 1950 nær ekki þeim árangri, sem henni var ætlað að ná af þeim, sem beittu sér fyrir henni, og verðbólgan heldur áfram, og það gerist jafnframt, að framkvæmdir eru stórauknar á flugvellinum, sem ýtir enn undir verðbólguþróunina gegnum skort á vinnuafli, — þegar þetta allt saman verður ljóst, þegar 2–3–4 ár eru liðin af áratugnum, hefst hér tímabil geysimikillar fjárfestingar, þá verður hér ofan á hjá íslenzkum stjórnarvöldum eindregin fjárfestingarstefna í skjóli verðbólgunnar annars vegar og svo mjög aukinna gjaldeyristekna af varnarliðsframkvæmdum hins vegar. En það, sem gerðist ekki, var, að þjóðin minnkaði neyzlu sína í hlutfalli við hina auknu fjárfestingu. Þjóðin minnkaði neyzlu sína ekki til að geta komið hinni auknu fjárfestingu í framkvæmd, heldur var fjárfestingin í aðalatriðum kostuð með erlendum lánum. M.ö.o.: þjóðin vildi gera hvort tveggja, eins og löngum hefur viljað brenna við, hún vildi halda neyzlu sinni út áratuginn, en kosta viðbótarfjárfestinguna með erlendum lánum. Stjórnir Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar og Emils Jónssonar voru allar miklar fjárfestingarstjórnir, ef svo mætti að orði kveða. Mikið af þeim framkvæmdum, sem þá var efnt til, ef til vill mest af þeim, var mjög gagnlegt og mjög nytsamlegt, en undir lok áratugsins var komið í ljós, og það er mjög mikilvæg staðreynd, að gjaldeyristekjurnar höfðu ekki vaxið í hlutfalli við hina auknu fjárfestingu. Hin aukna fjárfesting hafði m.ö.o. ekki skilað af sér auknum gjaldeyristekjum í hlutfalli við þá auknu greiðslubyrði, sem fjárfestingin hafði haft í för með sér, og það er þess vegna, sem viðnám var orðið alveg óhjákvæmilegt, þegar undir lok áratugsins kom. Viðnámið var orðið alveg augljóst á síðasta ári stjórnar Hermanns Jónassonar, á árinu 1958, þegar það kom svart á hvítu í ljós, að eðlileg lán erlendis voru ekki fáanleg til að halda þessari stefnu áfram, því að í raun og veru var búið að loka alls staðar fyrir erlenda lántökumöguleika. Þó að úr greiddist með sérstökum hætti, eins og ég gat um áðan, á því ári, var það okkur öllum, sem þá vorum í stjórn, augljóst mál, að það mundi ekki vera hægt á árinu 1959. Ef til vill hefur það átt einhvern þátt í því, að stjórnin raunverulega sundraðist, þó að um það skuli ég neita mér um allar fullyrðingar. En sem sagt, það féll í skaut stjórnar Emils Jónssonar að stöðva verðbólguþróunina, að koma í veg fyrir það, að hrapað væri fram af brúninni.
Það féll síðan í hlut þeirrar ríkisstj., sem nú situr, — það gat ekki verið verkefni bráðabirgðastjórnar Emils Jónssonar, — að koma þjóðarbúskapnum aftur á traustan grundvöll, að treysta þann grundvöll, sem í raun og veru hafði sundrazt á árinu 1958.
Hv. stjórnarandstæðingar hafa oft haldið því fram, að undirstrikun okkar á hinum mikla greiðsluhalla síðari helming áratugsins 1950–60 þýði, að við teljum, að allt hið erlenda lánsfé hafi farið i vitleysu, því hafi verið sóað, og að fullyrðingar okkar um, að þjóðin hafi lifað um efni fram á þessum tíma, þýði i raun og veru, ef öllu er á botninn hvolft, það, að við teljum, að lánsféð hafi verið notað í neyzlu og í vitleysu. En því hefur aldrei verið haldið fram, að lánsfénu hafi verið eytt í þeim skilningi, að því hafi verið eytt í vitleysu, heldur hefur kjarninn í málflutningi okkar verið sá, að neyzlan hafi ekki verið minnkuð í samræmi við hina auknu fjárfestingu. Með þessu er ég þó engan veginn að segja, að öll fjárfestingin hafi verið eins hagkvæm og æskilegt hefði verið. Þess má t.d. geta um hinar miklu frystihúsabyggingar á þessum tíma, að það fjármagn, sem til þess hefur farið, hefur því miður engan veginn skilað arði í nokkru viðhlítandi hlutfalli við það fé, sem til þessara miklu framkvæmda hefur verið varið, en um það er annars ástæðulaust að fjölyrða í þessu sambandi.
Við höfum sem sagt ekki haldið því fram, og það felst ekki í staðhæfingum okkar um, að greiðsluhallinn hafi verið óhæfilega mikill, og það felst ekki í staðhæfingum okkar um, að þjóðin hafi lifað um efni fram, að lánin hefðu farið í vitleysu. Greiðsluhallinn í heild var of mikill, af því að hann ofbauð gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Staðhæfing okkar um, að þjóðin hafi á þessum tíma lifað um efni fram, var einmitt sú, að það var ekki hægt að halda uppi óbreyttri neyzlu og fjárfestingaraukningunni nema með því að stefna lánstraustinu erlendis í hættu, nema með því að tefla á tæpt vað um greiðslubyrðina erlendis.
Það verður að skoða ummæli eins og þessi sem eigandi við þjóðarbúskapinn í heild, og þá er alveg ómótmælanlegt, að ef við hefðum ekki tekið þessi miklu erlendu lán, ef við hefðum haldið greiðslubyrðinni innan einhverra hæfilegra marka, við skulum segja 5–6%, þá var hitt hvort tveggja ekki mögulegt, að auka fjárfestinguna jafnmikið og gert var eða halda neyzlunni jafnhárri og hún raunverulega var. Þetta eru alveg ómótmælanlegar staðreyndir og ættu að vera auðskildar öllum mönnum, sem vanir eru að hugsa um þessi efni.
Það var um þrjár leiðir að ræða á þessum árum eins og alltaf. Ef menn vilja auka fjárfestinguna, verður annað tveggja að minnka neyzluna eða taka erlend lán. Ef menn vilja auka neyzluna, er hægt að minnka fjárfestinguna eða taka erlend lán. Það, sem gerðist hér, var, að neyzlan var látin haldast óbreytt, en fjárfestingin aukin með erlendum lántökum, og erlendu lántökurnar voru svo miklar, að algerlega óhæfilegt og óforsvaranlegt var. Þess vegna er það réttmætur dómur, að í raun og veru hafi þjóðin á þessum árum lifað um efni fram, af því að neyzlan og fjárfestingin í landinu gat ekki orðið á annan hátt en þann að taka svo mikil erlend lán, að greiðslubyrðin var óhæfilega þung og lánstrausti þjóðarinnar raunverulega spillt. Þess vegna er ekkert rangt því, heldur er það þvert á móti alveg rétt, fullkomlega rétt, að á þessum tíma lifði þjóðin um efni fram. Hún hafnaði þeirri neyzluminnkun, sem hin mikla aukning fjárfestingarinnar hlaut að gera nauðsynlega, ef við áttum að halda heilbrigðum greiðsluviðskiptum við útlönd.
Þá kem ég að síðasta atriðinu, sem ég vil gera að umtalsefni og líka var sameiginlegt í ræðum hinna tveggja málsvara stjórnarandstöðunnar. Það voru ummæli þeirra um, að afkoma þjóðarbúsins 1960 væri mjög slæm og í raun og veru væri hún verri en hún hefði verið á árinu 1959 og á árunum þar á undan. Þeir lögðu mikla áherzlu á, að fyrst enn væri um að ræða heildargreiðsluhalla við útlönd, eftir að þessi ríkisstj. hefði setið að völdum í rúmlega ár, sé það glögg sönnun þess, að hin nýja stefna hennar hafi misheppnazt. Hér er mjög hallað réttu máli. Það er rétt, enda skýrði ég frá því í ræðu minni þegar á fimmtudaginn, að á báðum árunum 1959 og 1960 hefur orðið um mikinn heildargreiðsluhalla við útlönd að ræða. Það er um að ræða halla á vörum og þjónustu, og afborganirnar eru líka mjög miklar, og það er um að ræða mikinn heildargreiðsluhalla við útlönd. En að þetta sé dómur um, að stefna ríkisstj. sé að misheppnast, er auðvitað misskilningur eða rangtúlkun, og það er alveg augljóst á því, að einmitt í grg. ríkisstj. fyrir frv. hennar í febr. 1960 var sagt, að það væri algerlega óhjákvæmilegt, að um mikinn heildargreiðsluhalla yrði að ræða á árunum 1959, 1960 og 1961. Það væri um það að ræða að greiða afborganir af þeim gífurlega miklu erlendu lánum, sem tekin voru, einkum á seinni hluta áratugsins 1950–60. Þó að þau lán séu að vísu flest of stutt, að mjög verulegum hluta 5–6 ár, var þegar í ársbyrjun 1959 vitað, hve afborganirnar af þeim mundu vera miklar alveg til ársins 1963. Það stendur skýrum stöfum í grg., sem fylgdi frv., hvernig þessi heildargreiðsluhalli er áætlaður alveg fram til ársins 1963, svo að það þurfti engum að koma á óvart, að ég skyldi skýra frá þeim staðreyndum hér s.l. fimmtudag, að á árunum 1959 og 1960 hefði orðið verulegur greiðsluhalli. Skýringin á greiðsluhallanum er fyrst og fremst greiðslubyrðin, sem er afleiðing af lántökunum á árunum eftir 1954–55, og þær afborganir, sem enn fara vaxandi til ársins 1961. Það er því í raun og veru að snúa hlutunum algerlega við að segja, að þessi greiðsluhalli sé afleiðing eða standi í einhverju sambandi við þær ráðstafanir, sem gerðar voru í ársbyrjun 1960.
Þá hafa þeir hv. málsvarar stjórnarandstöðunnar rætt allmikið um, að ég hafi í ræðum mínum og blöð stjórnarinnar aftur breytt um reikningsaðferð, miðað við það, sem við gerðum, þegar við vorum að leggja frv. um efnahagsmálin fram, vegna þess að ég hafi lagt á það áherzlu, að til þess að skilja tölurnar um árin 1959 og 1960 þurfi að draga greiðslur vegna kaupa á skipum og bátum frá. Ég vil aðeins taka skýrt fram, ef það er þessum hv. þm. ekki þegar ljóst, — ég taldi mig hafa skýrt það í fyrstu ræðu minni, — að þegar ég segi, að nauðsynlegt sé að draga greiðslur vegna skipa og báta frá heildargreiðsluhallanum 1959 og 1960, þegar er verið að bera þau ár saman, þá er það ekki gert í sama skilningi og með sömu rökum og þeir hafa viljað halda fram, að eigi að draga kostnað við framkvæmdir frá greiðsluhallanum á árunum 1956—59. Ég geri það alls ekki með sömu rökum og ekki sama tilgangi.
Þeir hafa sagt: Það á að draga kostnaðinn við framkvæmdirnar 1956-59 frá heildargreiðsluhallanum, vegna þess að þar fékk þjóðin innlend verðmæti í staðinn fyrir erlendu lánin. Það hafa þeir sagt. Ég var áðan að sýna fram á, hvað væri varhugavert, hvað væri rangt í þessum málflutningi. Þegar ég sagði í ræðu minni á fimmtudaginn, að til að fá rétta hugmynd um árin 1959 og 1960 yrði að draga greiðslu fyrir skip, báta og flugvélar frá, gerði ég það til þess, að hægt væri að bera árin saman, og það var í raun og veru allt annað. Ég sagði: Ef menn vilja bera árin 1959 og 1960 saman innbyrðis, verður að draga greiðslur vegna skipa, báta og flugvéla frá. Ef menn vilja bera þessi ár, 1959 og 1960, saman við t.d. árin 1957 og 1958, verður líka að draga innflutning á skipum og bátum frá vegna þess, hversu hann er miklum breytingum undirorpinn. Það er enginn liður til í innflutningi íslenzku þjóðarinnar, sem er jafnbreytilegur frá ári til árs, eins og innflutningur skipa og báta og flugvéla. Við höfum ekki endurnýjað þessi tæki okkar með nokkurn veginn jöfnum hætti áratug eftir áratug eða ár eftir ár. Þessi innflutningur á sér stað, — hvort sem okkur líkar betur eða verr, og okkur ætti að líka það verr, hann á sér stað í rykkjum. Það skiptir ekki aðeins milljónatugum, heldur jafnvel hundruðum milljóna frá einum fimm árunum til annarra fimm áranna eða frá ári til árs. Það er þess vegna, að ef maður vill bera saman afkomu eins árs og annars, vilji maður bera saman heildargreiðsluhallann frá ári til árs, þá verður að taka innflutning skipa, báta og flugvéla út úr þessum tölum. Þetta er ástæðan til þess, að hagstofan hefur, svo lengi sem ég man eftir, alltaf skýrt frá innflutningi skipa og báta í sérlið, jafnvel þegar hún gefur bara upp heildarinnflutning og heildarútflutning. Hagstofan gefur aldrei upp heildarinnflutning og heildarútflutning öðruvísi en taka fram, að af innflutningnum var svo og svo mikið skip, bátar og flugvélar, af því að hún veit, að heildartölurnar eru alls ekki sambærilegar frá mánuði til mánaðar eða frá ári til árs eða áratug til áratugs.
Þetta voru rökin fyrir því, að ég sagði, að það yrði að draga þessar tölur út úr, en alls ekki hin, sem þessir hv. þm. hafa verið að nota til stuðnings sínum málflutningi, að skip og bátar séu verðmæti, sem komið hafi fyrir hið erlenda lánsfé. Þann rökstuðning hef ég aldrei notað, enda er hann rangur. Þess vegna var það, að ég hafði sagt það, að tölurnar um heildargreiðsluhallann, sem var 1959 730 millj. og 1960 709 millj. kr., þessar tölur segja manni ekkert innbyrðis um árin, af því að 1959 var greitt upp í skip, báta og flugvélar 320 millj., en 500 millj. árið 1960, 180 millj. kr. meira. Það er alger fjarstæða að bera árin saman og gleyma þessum stórkostlega mun á þessum eina lið. Ef tekið er tillit til hans, fær maður rétta mynd af árunum innbyrðis, því að þá kemur í ljós, að fyrir utan skipa- og flugvélakaup hefur greiðsluhallinn minnkað um 201 millj. kr. á árinu.
Greiðslurnar fyrir skipin og flugvélarnar eru allar saman samningsbundnar, því miður til ekki nógu langs tíma, að mjög verulegu leyti til 5–6 ára, fyrir togarana að vísu til lengri tíma. Hér er því um tvo ólíka hluti að ræða, og ættum við ekki að þurfa að deila um þessi atriði áfram.
Það, sem er mergurinn málsins, til þess að geta myndað sér skýra hugmynd um að þessu leyti, hvort stefna ríkisstj. er að heppnast eða misheppnast, er því breytingin á greiðslujöfnuðinum, er þessar staðreyndir eru hafðar i huga. Það, sem er kjarni málsins í sambandi við hina nýju stefnu ríkisstj., er, að síðan hún tók við völdum og fór að framkvæma þá lagasetningu, sem samþ. var í febrúar s.l., hefur þessi ríkisstj. engar ráðstafanir gert til þess að þyngja greiðslubyrðina í framtíðinni. Það er það, sem er mergurinn málsins. Henni hefur þvert á móti tekizt að halda þannig á málum, að hægt er að standa við þær skuldbindingar, sem gengizt var undir á árunum 1955–59. Það er hægt að standa við þær skuldbindingar um afborganir í erlendum gjaldeyri, þær gífurlegu skuldbindingar, sem gengizt var undir á árunum 1955–59 vegna bátakaupa, vegna verksmiðjubygginga, vegna togarakaupa, og það er í sannleika sagt ekki lítið afrek, að það skuli hafa tekizt. Hitt er auðvitað alveg ljóst, að það var greiðsluhalli 1959, það var greiðsluhalli 1960 og það verður greiðsluhalli 1961 og kannske áfram, þó að hann fari úr því minnkandi. Það er bara ekki aðalatriði málsins, heldur er hitt aðalatriði málsins, að tekizt hefur að standa við skuldbindingarnar, sem stjórnarvöld gengust undir. Það hefur að vísu ekki verið hægt nema með því að gera hvort tveggja að minnka nokkuð fjárfestingu og minnka nokkuð neyzlu. Stjórnin hefur aldrei dregið nokkra dul á, að það var kjarninn í stefnu hennar og nauðsynlegur fylgifiskur þess að koma málum þjóðarinnar á réttan kjöl að minnka nokkuð fjárfestinguna og minnka nokkuð neyzluna. Stjórnin hefur aldrei gert nokkra tilraun til þess að blekkja nokkurn mann, til að blekkja nokkurn þjóðfélagsþegn í þessum efnum. Þetta var gert árið 1960. Neyzlan var minnkuð, og fjárfestingin var minnkuð. Einmitt þess vegna hefur tekizt að standa við skuldbindingarnar, sem þjóðin var búin að taka á sig, — og það sem meira er, sem ég vil undirstrika alveg sérstaklega, það hefur ekki aðeins tekizt að koma í veg fyrir, að þjóðin yrði að vanskilamanni á alþjóðlegum lánamarkaði, heldur hefur jafnframt tekizt að endurvekja lánstraust þjóðarinnar.
Það vil ég að síðustu leggja alveg sérstaka áherzlu á, að aftur nú á árinu 1961 munu standa þjóðinni opnir ýmsir möguleikar til öflunar langra lána erlendis, — möguleikar, sem var verið að loka, sem voru orðnir lokaðir þjóðinni þegar árið 1958. Hitt er svo annað mál, að það verður með engu móti talinn sanngjarn málflutningur, að aðalleiðtogar þeirra flokka, sem stóðu að því að taka þessi erlendu lán og víssu, að þau voru til 5–6 ára fram í tímann, skuli nú hér á Alþingi standa og allt að því brigzla núv. ríkisstj. um, að stefna hennar sé að mistakast, þegar henni hefur tekizt að standa við þá reikninga, sem flokkar þessara manna undirskrifuðu. Það er ekki heiðarlegur málflutningur, ekki skemmtilegur málflutningur, vildi ég segja, að standa í 21/2 ár að því að skrifa reikninga og álasa síðan þeim, sem standa í því að borga þá. Ég hefði getað skilið hitt, ef þeir stæðu hér og álösuðu núv. ríkisstj. fyrir að borga reikningana ekki. Það hefði verið ádeiluefni sannarlega. En þeir hafa verið borgaðir, og þeir verða borgaðir. Einmitt þess vegna hefur þjóðin átt í nokkrum erfiðleikum, einmitt þess vegna þurfti hún að skera niður fjárfestinguna og þurfti að skera niður neyzluna. Þegar tekst að standa í skilum með jafntvímælalausum hætti og þessari stjórn hefur tekizt og þegar henni hefur þegar tekizt til viðbótar að endurreisa lánstraustið, á stjórnin sannarlega ekki gagnrýni skilið, allra sízt frá þessum hv. þm.