16.03.1961
Neðri deild: 76. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (989)
152. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er ekki nema ánægjulegt, að hv. 1. þm. Norðurl. v. lýsir áhuga sínum fyrir því, að lausaskuldum bænda verði komið í gott horf, og er ekki nema ástæða til að fagna þeirri liðveizlu, sem hann býður fram í því efni.
Hv. þm. hefur heyrt það bæði á fundum í fjhn. og annars staðar, að þessi mál eru í undirbúningi hjá ríkisstj. og þessum málum verður komið í gott horf, að svo miklu leyti sem mögulegt er. En það tekur sinn undirbúning með þetta eins og sjávarútveginn. Það er kunnugt, að á s.l. hausti voru settir sérfróðir menn í að gera athuganir á fjármálum útgerðarinnar og benda á lausn í því máli. Þessir sérfræðingar sömdu um það grg. til ríkisstj., og á þeirri grg. eru byggð brbl., sem nú er verið að ræða um. Eftir að þessir sérfróðu menn höfðu lokið athugunum sínum á sjávarútveginum, tóku þeir að sér að gera sams konar athugun á fjármálum bænda, bæði einstaklinga og vinnslustöðva landbúnaðarins, en grg. er ekki enn komin frá þessum ágætu mönnum, sem að þessu vinna, og fyrr en sú grg. liggur fyrir, verður ekki sagt frá því nákvæmlega, hvernig að þessu verður farið. En ég get upplýst hv. þm., sem varpaði hér fram fsp., um það, að að þessu er unnið nú á sama veg og var unnið að athugun á fjármálum sjávarútvegsins. Hitt þarf svo engan að undra, þó að þannig hafi verið að orði komizt hjá hv. 3. þm. Austf., að hluta af víxilskuldum bænda verði breytt í löng lán með hagkvæmum vaxtakjörum. Því er nú verr, að það mun ekki vera mögulegt að breyta öllum víxilskuldum þannig. Víxlar eru með ábyrgðarmönnum, og ef bankinn á að sleppa ábyrgðarmönnunum, verður hann að fá tryggt veð fyrir skuldinni, ef á að breyta því í fast lán til langs tíma. Og því miður mun það vera þannig um einstaka bændur, að þeir hafa jafnvel ekki tryggt veð, og það má jafnvel reikna með því, þó að vonandi sé það ekki í stórum stíl, að það sé þannig ástatt hjá einstaka bónda, að lánardrottinn vilji ekki sleppa þeirri ábyrgð, sem hann hefur á víxlinum, og þannig mun það einnig vera hjá einstökum útgerðarmönnum og útgerðarfyrirtækjum, að þeir geta ekki af þessari sömu ástæðu komizt að öllu leyti undir lög um stofnlánadeildina. Þetta veit ég, að hv. 1. þm. Norðurl. v. veit.
Hér hefur aðeins verið minnzt á víxilskuldir. En það er vitanlega fleira, sem til athugunar kemur í þessu efni. Eins og ég sagði áðan, er greinargerð sérfræðinganna ekki komin enn, og segi ég það ekki í ásökunartón, vegna þess að ég veit, að þeir eru að athuga þessi mál, eftir því sem þeir hafa tíma til, og þeir munu skila af sér, að ég vona, áður en langur tími líður. Hvort lagasetningu þarf til þess að ráða fram úr þessu, skal ég alveg ósagt láta, en ríkisstj. mun að sjálfsögðu, þegar grg. liggur fyrir, taka þessi mál til athugunar og heppilegrar úrlausnar.