17.03.1961
Efri deild: 75. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (996)

152. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Það er virðingarvert að sjálfsögðu, að núv. hæstv. ríkisstj. reynir þó eitthvað til þess að leiðrétta til betri vegar það, sem hefur misfarizt í hennar höndum, eins og að því er varðar sjávarútveginn í þessu tilfelli, þar sem þetta frv. hljóðar um aðstoð við sjávarútveginn. Skal það ekki lastað, þótt þessum málum mætti hins vegar á ýmsan hátt annan og það kannske á betri hátt fyrir koma en í þessu frv. felst.

Framsóknarmenn í hv. Nd. lögðu fram till. að því er varðar landbúnaðinn. Þessar till. voru felldar. En í þeim útvarpsumr., sem fram fóru fyrir nokkru hér á Alþingi, gaf einn hv. þm., sem tilheyrir stjórnarliðinu, yfirlýsingu, sem ber að skilja svo, að mark sé á henni takandi. Þetta var hv. 3. þm. Austf. (JP), og var yfirlýsing hans þannig, með leyfi forseta:

„Þess vegna tel ég rétt, að það komi fram, að ríkisstj. hefur ákveðið að leita eftir því við banka og sparisjóði, að hluta af víxilskuldum bænda verði breytt í föst lán til langs tíma með hagkvæmum vaxtakjörum.“

Nú vildi ég spyrja hæstv. ráðh., hvort ríkisstj. sé nú þegar búin að semja eða leggja einhver tildrög að samningum við banka og sparisjóði um þessi efni, að því er varðar víxilskuldir bænda þar. Og í öðru lagi vil ég spyrja um það, hvort ekkert eigi þá að gera þeim bændum til bjargar, sem hafa miklar lausaskuldir, sem eru ekki í bönkum eða sparisjóðum, því að það vitum við ósköp vel, að það eru ekki allar skuldir, — bændur eins og aðrir skulda hjá sínum viðskiptavinum engu síður. Og þá vildi ég enn fremur spyrja um, hvort það sé meiningin að afla heimildar Alþingis í þessum efnum, áður en það frv., sem nú er til umr., verður afgr. héðan frá hv. deild.

Mér er kunnugt um, að það er langt síðan hæstv. ríkisstj. hófst handa um að afla hliðstæðra gagna, að því er varðar hag bændastéttarinnar, eins og útgerðarinnar. Því vildi ég enn fremur spyrja um, hvort ekkert lægi fyrir í þeim efnum nú. Vænti ég, að hæstv. fjmrh., úr því að hæstv. bankamrh. er ekki hér inni, geti upplýst þessi mál, því að þar sem ríkisstj. er ákveðin í því að gera eitthvað bændum til hjálpar, þá hlýtur hún öll að vera á einu og sama máli um það, og hver ráðh, sem er getur þá væntanlega upplýst þau mál.