02.02.1962
Neðri deild: 40. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)
124. mál, læknaskipunarlög
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja mikið 1. umr. þessa máls. En vegna þess að tveir hv. þm. hafa talað um, að það sé lítill vandi leystur með þessu frv. í sambandi við þetta mikla vandamál um skort héraðslækna, sem við er að glíma, og þurfi að athuga það á breiðara grundvelli og fleira og fleira, þá vil ég segja það, að þeir hv. þm. verða að gera sér ljóst, að það var aldrei meiningin með þessu eina frv. að leysa allan þennan vanda. Og það kemur fyllilega í ljós í skýrslu landlæknis, sem er látin fylgja þessu frv. og fjaliar um fleiri atriði og skýrt hefur verið frá nú af hæstv. heilbrmrh.. að enn séu til athugunar hjá ríkisstj., svo sem ákvæðin um staðaruppbótina eða sérstöðu þeirra lækna, sem í hinum minnstu læknishéruðum búa, og hefur einmitt verið gert hér að sérstöku atriði, að þetta frv. mundi lítið bæta úr. Annað frv. eða næsta mál á dagskránni, sem ég skal ekki víkja að núna, er líka einn þáttur þessara mála og bætir úr launakjörum lækna. Þar sem læknar á öðru verðlagssvæði eiga nú að búa við sömu kjör samkvæmt því eins og á fyrsta verðlagssvæði og hafa heimild til eftir nánari ákvæðum, sem sett eru í reglugerð. en ekki tiltekin í frv., að taka visst gjald af sjúklingum, eins og tíðkazt hefur á fyrsta verðlagssvæði, sem ætti að bæta aðstöðu einmitt héraðslæknanna og kjör þeirra. É`g lagði áherzlu á það, að Þessi tvö mál yrðu lögð fram fyrir jólin, Þannig að Það mætti strax byrja að taka þau til athugunar og meðferðar í nefnd, meðan aðrir þættir þessara mála væru til athugunar, því að ég held, að það sé augljóst, að okkur þm. sé flestum ljóst eða öllum, að hér er um mikið vandamál að ræða, og sjálfsagt fær sú nefnd. sem þetta mál fær til meðferðar, mikið verkefni við að glíma, og er ekki nema vel, að frá henni kæmu viðbótartillögur til úrbóta í þessu mikla vandamáli.
Varðandi aðra þætti, sem koma fram í skýrslunni, þá heyra þeir ekki allir til sérstakri löggjöf eða breytingu á lögum, heldur fjárlögum, og það hefur einnig verið vikið að því. Ég hygg, að það sé rétt, að það sé þannig á þeim málum haldið nú í sambandi við læknisbústaðina, sem síðasti hv. ræðumaður vék að, að það sé nokkurn veginn, — það fer náttúrlega fjarri því, að það sé fyllilega, — séð fyrir þórfum í þessu sambandi miðað við ákveðna áætlun, sem landlæknir hefur gert í því efni, að fylgt verði á næstu árum um byggingu læknabústaða, hvað margir séu í smíðum á hverjum tíma og hve mörgum þar með lokið á hverju ári.
Athugun á staðaruppbótinni, sem vikið er að í skýrslunni og mundi hafa einmitt mesta þýðingu fyrir þá, sem eru í minnstu héruðunum, athugun á því máli fellur saman við ráðagerðir um breytingu á héraðslæknaskipuninni, því að þarna kemur tvennt til álita: einnig að stækka læknishéruðin mikið frá því, sem verið hefur, eins og fram kemur í grg. landlæknis. En hann telur sig sjálfan hafa orðið fyrir mikilli andspyrnu eða menn séu mjög mótfallnir því í héruðunum, og hann vitnar einnig til þess, að sama hugsunarháttar telji hann hafa gætt í viðræðu við þingmenn. Hins vegar er um það að ræða að bæta aðstöðu þeirra í fámennustu héruðunum með því að gefa þeim einhver sérstök kjör með staðaruppbót. Og einnig kæmi til athugunar vegna breyttra samgangna og breyttrar tækni á síðari árum að stækka mjög læknishéruðin, bæta þannig aðstöðu læknisins með betri launum og betri kjörum. En þá kemur þetta: menn eru fastheldnir við fornar venjur hér á landi og vilja ekki missa sína gömlu læknishéraðaskipun, og ég hef sterkan grun um, að það sé rétt hjá landlækni, að það sé töluverð andstaða gegn því, bæði hjá fólkinu úti á landinu og umboðsmönnum þess hér á þingi.
Ég vildi aðeins vekja athygli á þessum atriðum, þannig að það væri enginn í vafa um, að með þessu eina frv., sem nú er til umr., er ekki gerð nein tilraun til þess að leysa þetta mikla vandamál, heldur er það aðeins einn angi af því, og annað frv. hér á dagskránni snertir einnig sama vandamál. Önnur eru til athugunar innan ríkisstj., og eins og ég sagði, þá verður það auðvitað mikið verkefni fyrir þá nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, og hún mundi að sjálfsögðu í þeim efnum geta haft og ætti máske að hafa gott samráð við landlækni nú eins og fyrr, þegar slík mál hafa verið á döfinni.