04.04.1962
Neðri deild: 83. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1388 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)

210. mál, Samvinnubanki Íslands hf.

Hannibal Valdimarsson:

Hæstv. forseti. Ég kvaddi mér ekki hljóðs til þess að mæla gegn þessu frv. Ég er samþykkur því, að Samvinnusparisjóðnum verði breytt í banka með lögum. Um hitt langaði mig til þess að spyrjast fyrir, hvort það væri að ósk samvinnuhreyfingarinnar, að þessum banka er valið hlutafélagsform. Ég hefði talið æskilegast, ef það hefði talizt geta hentað bankastarfseminni, að þessi banki samvinnuhreyfingarinnar væri samvinnufélag eða sjálfseignarstofnun samvinnumanna, án þess að honum væri valið hlutafélagsform. Ef þetta er að ósk samvinnuhreyfingarinnar og það form þykir betur henta bankastarfseminni, þá set ég það ekki fyrir mig, en langaði samt til að vita, hvort þetta hefði breytzt í meðförum eða hvort þetta form væri valið að vilja samvinnuhreyfingarinnar.