30.10.1961
Neðri deild: 9. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)
35. mál, atvinnubótasjóður
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í sambandi við þetta mál. — Ég er sammála hv. 3. þm. Norðurl. e. um Það, að þetta frv. er afturför að því leyti, að það er verið að draga úr fjárveitingum til atvinnubótaaðgerða frá því, sem verið hefur á undanförnum árum, þegar skást var sinnt því hlutverki. Mér dylst hins vegar ekki, að það má færa rök fyrir því, að það sé réttara að binda þessa starfsemi ríkisins í lögum og koma þessari starfsemi í fast form, þannig að fjárveitingar séu nokkuð jafnar frá ári til árs og þó helzt jafnar að raunverulegu verðmæti, þannig að ekki dragi úr aðstoðinni, sem þarna er hugsað að veita frá ríkisins hendi. Það mun hafa verið ætlazt til þess með þeirri þál., sem hér var samþykkt, að með lagasetningu yrði tryggt, að ríkið gerði sérstakt átak í því að stuðla að aðstoð við þau héruð, sem af einhverjum sérstökum ástæðum standa höllum fæti, því að þannig er þessi aðstoð frá ríkisins hendi fyrst og fremst hugsuð. Og það er alveg rétt, sem hv. 1. þm. Vestf. vék að í sinni ræðu áðan, það eru til staðir, sem hafa orðið hart úti vegna þeirrar þróunar, sem hefur átt sér stað í landinu á undanförnum árum og áratugum. Þarf ekki annað en nefna t.d. staði eins og Flatey á Breiðafirði, sem hefur eiginlega komizt úr þjóðleið, og grundvöllur atvinnulífsins og það hlutverk, sem staðurinn innti af hendi áður, er nú brostinn. Af þessum ástæðum er rík þörf á því, að veita fólkinu á slíkum stað aðstoð til þess að komast yfir þá örðugleika, sem skapazt hafa vegna vissrar þjóðfélagsþróunar, og er ég honum alveg hjartanlega sammála um það, að hlutverk þessa sjóðs, sem hér er lagt til að verði bundinn með lögum, sé fyrst og fremst það að koma til hjálpar, veita aðstoð undir slíkum kringumstæðum. Má þar nefna, auk Flateyjar á Breiðafirði, Grunnavíkurhrepp og sjálfsagt mörg byggðarlög á landinu víðs vegar.
Ég er hins vegar samþykkur því, að það sé til bóta í þessu frv. að ætla banka í staðinn fyrir ráðuneyti að annast innheimtu þess fjár, sem frá ári til árs er varið í þessu skyni, og geri ég mér vonir um, að eitthvað af því fé, sem veitt hefur verið fram til þessa til atvinnuaukningar og atvinnubóta, kunni að innheimtast og gæti þannig orðið starfsfé í höndum þessa sjóðs, í viðbót við þá að mínu áliti allt of lágu upphæð, 10 millj. kr., sem sjóðnum er ætluð sem fast starfsfé frá ári til árs á næsta áratug. Að því er að vísu nokkur bót, því að eitthvað af þessu fé má sennilega innheimta, ef eftir því er gengið, þó að sumt hafi alveg frá upphafi verið veitt sem styrkir og flestar þær upphæðir verið veittar eiginlega út frá því sjónarmiði, að þær mundu varla verða endurheimtar af ríkinu aftur. Það er því næsta ólíklegt, að nokkuð af þeim endurheimtist að öllu, sízt af öllu með vöxtum, og ýmis þau fyrirtæki, sem aðstoð hafa fengið, eru nú ekki lengur til, og þannig áreiðanlega mjög mikil vanhöld á þessum upphæðum, þó að ríkt verði gengið eftir að innheimta það atvinnubótafé, sem veitt hefur verið.
Fjárframlögin, sem nefnd eru hér í frv., 10 millj. kr. til starfsemi sjóðsins, hafa lækkað í tvennum skilningi. Þau eru lægri að krónutölu heldur en veitt var til þessara mála á vissu árabili, þ.e.a.s. á dögum vinstri stjórnarinnar, því að þá var veitt til þessara mála frá 13 til 15 millj. kr., og það var meira fé en sama upphæð að krónutölu nú, miklu meira, og miðað við það tímabil er því um mikla afturför að ræða og ekki líklegt, að krónutalan yrði einu sinni sú sama, þó að nokkuð ynnist úr hinum áður veittu upphæðum við innheimtu þeirra. Það er sem sé bæði um rýrnun þarna að ræða að því er snertir krónutölu og einnig verðgildi og alveg sérstaklega verðgildi hverrar krónu.
Bæði hv. 3. þm. Norðurl. e. og hv. 1. þm. Vestf. hafa vikið að því, að þetta frv. sé í raun og veru hið sama að stofni til eins og frv., sem þeir undirbjuggu eitt sinn fyrir löngu fyrir hæstv. ríkisstj. og síðan var hér flutt sem stjórnarfrv., en komst samt ekki í gegnum þingið. Það er líka rétt, að það þótti á svo smáum upphæðum tekið í því frv., að þm. voru margir þeirrar skoðunar, að það mundi lítt koma að gagni, og í gamansemi leyfðu nokkrir þm. sér að kalla frv. „litlu gulu hænuna“, eins og hv. 1. þm. Vestf. enn rifjar upp. Mér finnst því, að þetta frv. með 10 millj. kr. upphæðina núna sé „litla gula hænan“ afturgengin. Hún er alltaf að ganga aftur og alltaf smærri og smærri í raun og veru, því að upphæðin núna er í raun og veru að kaupmætti jafnvel enn þá minni en upphæðin, sem nefnd var í frv., sem við kölluðum „litlu gulu hænuna“ sællar minningar. En að bera saman þessar tölur þá og nú fær mig eiginlega til þess að staðnæmast við það, að það lítur út fyrir, að „litla gula hænan“ sé lífseigust allra fugla, e.t.v. að fuglinum fönix undanskildum.