08.03.1962
Neðri deild: 61. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1431 í B-deild Alþingistíðinda. (1164)
35. mál, atvinnubótasjóður
Gunnar Jóhannsson:
Herra forseti. Fjhn, flytur brtt. á þskj. 349 við frv. til laga um atvinnubótasjóð, þar sem lagt er til, að sjóðsstjórnin geti, ef ástæður þykja til, leitað umsagna nokkurra aðila. Eru þar tilnefndar sveitarstjórnir viðkomandi staða, Fiskifélag Íslands, Búnaðarfélag Íslands og Iðnaðarmálastofnun Íslands. 2 sjálfu sér hef ég ekkert við það að athuga, að leitað sé álits þessara stofnana um atvinnuástand viðkomandi staðar og annað því tilheyrandi. Hins vegar teldi ég rétt og sjálfsagt, að jafnframt sé leitað umsagnar Alþýðusambands Íslands um slík mál sem hér um ræðir. Alþýðusambandið er ábyggilega sá aðili, sem mun kunnugast um atvinnuástand víðs vegar um land, og virðist því ekki nema sjálfsagt og eðlilegt, að leitað sé álits þess í slíku máli. Fyrir því hef ég leyft mér að flytja skriflega brtt. við b-lið 1. töluliðar um, að á eftir orðunum „Fiskifélags Íslands“ komi: Alþýðusambands Íslands, og svo till. áfram óbreytt. Þar sem till. er flutt skriflega, vil ég mega óska eftir því við hæstv. forseta að leita eftir afbrigðum um það, að till. fáist tekin fyrir. Brtt, mín hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta, — það er brtt. við brtt. á þskj. 349, um atvinnubótasjóð: Við b-lið 1. tölul. Á eftir orðunum „Fiskifélags Íslands“ komi: Alþýðusambands Íslands.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta, en vænti þess, að hv. alþm. samþykki þessa till. Að öðru leyti vil ég þó taka það fram, að ég tel það frv., sem hér liggur fyrir, vera til bóta, svo langt sem það nær, frá því ástandi, sem áður hefur verið í þessum málum, þótt ég hins vegar fyllilega viðurkenni það, að framlag úr ríkissjóði til atvinnubótasjóðsins er allt of lágt, og hefði mátt vænta þess, að til þeirra mála hefði verið varið hærri upphæð árlega en gert er ráð fyrir. Þrátt fyrir það tel ég samt sem áður, að frv. sé til bóta, og mun greiða því atkvæði.