08.03.1962
Neðri deild: 61. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1167)

35. mál, atvinnubótasjóður

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur atriði í sambandi við þetta mál, sem ég ætlaði að minnast á.

Ég hafði alltaf verið þeirrar skoðunar, að hv. 1. þm. Vestf. væri áhugamaður um það, að ríkið legði fram ríflega fjárhæð árlega til þess að efla og viðhalda nokkru jafnvægi í byggð landsins, og þetta hafði ég haldið að hefði verið hans áhugamál um langt árabil. þegar ég því nú, þegar þetta mál kom fyrir þingið, heyrði, að hann væri mjög glaður í bragði yfir Því, sem nú væri að gerast í þessu máli, þá varð mér það fyrst að álykta, að þetta frv. hlyti að vera um stórkostlega aukin fjárframlög til þessara mála. En maður þurfti ekki lengi að líta á þetta frv. til að sjá það og sannfærast um það, að þessu er alveg þveröfugt farið. Hér er um að ræða frv., sem ákveður það að leggja minna frá ríkinu á ári hverju til þess að viðhalda jafnvægi í byggð landsins heldur en varið hefur verið til þessara hluta um langt árabil. þetta frv. er svo smátt í sniðum, að þó að það ákveði, að nú skuli lagðar 10 millj. kr. í svokallaðan sjóð, þá er það minni upphæð en á sínum tíma, þegar frv. var frammi um Það að efla og viðhalda jafnvægi í byggð landsins með 5 millj. upphæð, eins og þá var ákveðið. Það er afturför frá því, og leyfðum við okkur þá að gera hálfgert spott að því frv. og kalla það litlu gulu hænuna, eins og minnzt hefur verið á á flestum þingum síðan. Og það þótti þá af þingmeirihl. svo smátt í sniðum, að það tæki því ekki að láta hænuna lifa. Henni var slátrað, og harmaði enginn. Ég verð því að segja, að mér finnst gleði hv. þm., þessa áhugamanns í málinu, vera harla furðuleg. Og ég fæ ekki komið því saman, að hann sé enn þá sannur áhugamaður um fjárveitingar til þess að viðhalda jafnvægi í byggð landsins og gerist svo ákafur fylgismaður þessa frv., sem er um það að minnka fjárveitingar til þessa verkefnis.

Yfir hverju er að gleðjast? Það er yfir því að gleðjast, að nú eru ætlaðar 10 millj. kr. til verkefnis, sem voru, þegar frv. um þetta var fyrst frammi, ætlaðar til 5 millj., en verðlag í landi hefur miklu meira en tvöfaldazt síðan, svo að hér er um lægri upphæð að ræða en þá.

Ef maður lítur sér nær, þá er það staðreynd, eins og hér hefur verið tekið fram, að til þessara mála hefur verið varið sum árin upp í 15 millj. kr., önnur — og það nú seinast — a.m.k. 131/2 millj. kr. Og nú á að ákveða, að það skuli verða 10 millj., og hefur þó dýrtið farið og fer sífellt vaxandi.

Hvort sem maður lítur lengra eða skemmra um öxl, er því um að ræða afturför, minni fjárframlög en áður hafa verið lögð fram til þessara mála. Og yfir því sé ég enga ástæðu til að gleðjast, síður en svo. Það hlýtur að vera öllum áhugamönnum um aukið jafnvægi í byggðum þessa lands áhyggjuefni og óánægjuefni, að svona skuli stefnt, og er engin bót að því, þó að atvinnu- og framleiðslubótaféð eigi nú að heita sjóður. Það er líka eitt af bjargráðunum núna, sem liggja fyrir þessu þingi, að kalla ríkisábyrgðaskuldasúpuna sjóð. Og ég get ekki séð, hve miklu það bjargar, að það á að stofna sjóð af ríkisábyrgðaskuldasúpunni.

Hv. 1. þm. Vestf. vék að því áðan, að afstaða hv. 1. þm. Austf., sem ég þarf engu að svara fyrir, væri yfirleitt óábyrg, af því að hann væri í stjórnarandstöðu. Hann gerði meiri fjárkröfur nú í hverju máli heldur en stjórnarliðið vildi fram leggja. Þetta er sjálfsagt ekkert nýtt um stjórnarandstöðu, að tilhneiging sé í þá áttina. En það hefði kannske verið ástæða til að hafa orð á því, að hér væri stjórnarandstaðan óbilgjörn og of heimtufrek og óraunhæf í sínum kröfum, ef einhver þm. hefði verið að krefjast meiri fjárframlaga, sem hefðu meiri framkvæmdamátt, til þessa umrædda verkefnis, heldur en áður hefur verið lagt til þess. En um það er alls ekki að ræða. Menn hafa látið sér nægja að nefna í þessu sambandi 25 millj. kr., sem engan veginn hefur meiri framkvæmdamátt en 15 millj. kr., sem veittar voru til þessara mála á dögum vinstri stjórnarinnar. Þar virðist því stjórnarandstaðan vera innan þeirra hóflegu marka að ætla ekki nú að heimta meira af núv. ríkisstj. til þessa máls en þeir, sem nú eru í stjórnarandstöðu, hafa staðið að því að leggja fram til málanna. Og þá segi ég: meðan þeir halda sér við slíkar upphæðir, eru þeir innan hóflegra og ábyrgra takmarka og alveg tilefnislaust að bregða mönnum um óábyrga afstöðu í sambandi við þetta mál. Það eru engar öfgar nú að heimta það, að til atvinnu- og framleiðslubóta í landinu og til þess að viðhalda og efla jafnvægi í byggðum landsins séu nú lagðar fram þær upphæðir, sem a.m.k. jafngildi að framkvæmdamætti þeim upphæðum, sem áður hafa verið lagðar til þessara mála.

Ég álít hins vegar, að ef það er meining hv. 1. þm. Vestf., að höfuðverkefni þessa frv. sé það að bæta úr atvinnuleysi, þar sem það verði mest, þá sé hann alveg á villigötum. Til þess höfum við fyrst og fremst atvinnuleysistryggingar og erum svo hamingjusamir, að síðan atvinnuleysistryggingarnar voru stofnaðar, hefur verið lítið um atvinnuleysi, og sá sjóður er nú svo sterkur, að hann á að vera nokkurn veginn fær um að gegna því hlutverki. Þetta litlu gulu hænu-frv. getur þar ekkert úr bætt. Sá 300 millj. kr. sjóður veldur miklu betur því hlutverki að hlaupa undir baggann, þar sem atvinnuleysi kann að berja að dyrum í héruðum landsins. Þó að þetta 10 millj. kr. framlag á ári ætti að fara að grípa þar inn í, mundi muna ákaflega lítið um það. En þetta sagði hv. 1. þm. Vestf. nú rétt áðan. Hann sagði, að hann endurtæki það enn, að höfuðhlutverk þessa frv. væri að bæta úr atvinnuleysi, þar sem það væri mest.

Ég álít, að hlutverk frv. eigi ekki að vera það. Látum atvinnuleysistryggingasjóðinn um það. Og eins og stendur er hann fær um það. Þetta á að vera til þess að hlaupa undir bagga, þar sem fámenn byggðarlög eiga í þrengingum. Það er oft þróunin, sem leggst öndvert gegn þeim, og þá þarf að hjálpa með ýmsu móti öðru heldur en beint að fyrirbyggja atvinnuleysi. Það þarf að undirbyggja þar ýmislegt, sem einstaklingsframtak og einstaklingsfjármagn í hinu fámenna byggðarlagi orkar ekki að koma fótum undir, og það hefur einmitt verið gert í mýmörgum tilfellum með framleiðslu- og atvinnuaukningarfénu.

Hv. 1. þm. Vestf. sagði það áðan og alveg ranglega, að atvinnu- og framleiðslubótafénu hafi yfirleitt ekki verið varið til jafnvægis í byggð landsins, heldur til kaupa á atvinnutækjum um allt landið. Þetta er rangt. Og mig furðar það, ef hv. þm. hefur ekki vitað um þetta. Þegar ég var í félmrn., var það gildandi og föst regla, að það var ekki varið einum einasta eyri af atvinnu- og framleiðslubótafénu til Vestmannaeyja eða neinna útgerðarplássa við Faxaflóa. Þau voru alveg í banni. Af hverju? Af því að fólksstraumurinn var frá þremur landsfjórðungum, frá Austfjörðum, Norðurlandi og Vestfjörðum. Og það var landssvæðið, sem atvinnu- og framleiðslubótafénu var varið til eingöngu og alls ekki til Faxaflóa eða Vestmannaeyja, sem fengu ekki einn einasta eyri af því í þann landshlutann, sem fólksstraumurinn stefndi til. Og þannig var fénu varið auðvitað til jafnvægis í byggð landsins. Þetta hlýtur að byggjast á misminni eða misskilningi hv. þm.

Það var síður en svo, að þessar upphæðir, sem var úthlutað í hina þrjá landshluta, sem fólksstraumurinn stefndi úr, væru ætlaðar til bátakaupa, það var til margvíslegra annarra aðgerða og aðstoðar og hjálpar. Ég skal t.d. nefna Kópasker. Kópasker hafði þá hafnaraðstöðu, að þar var ekki hægt fyrir Breiðirnar að komast að landi, það varð að skipa upp og út vörunum á bátum fyrir stórt verzlunarsvæði. Þetta pláss hafði engar atvinnutekjur handa sinni höfn, og það varð að líta svo á, að þarna stæði nokkuð sérstaklega á, en höfn þyrfti þarna að koma, svo að strandferðaskipin kæmust þarna að landi og ekki þyrfti að búa við það að skipa út og upp vörum á báti. Og þessi staður fékk nokkur ár í röð allháar upphæðir til þess að endurbæta þarna landtökuskilyrðin og hafnarmannvirkin. Og þannig var um fjöldamarga aðra staði, að til þess, sem manni fannst vera undirstaðan og bezt létta lífsbaráttu fólksins á viðkomandi stað, var fénu varið að beztu manna yfirsýn.

Sums staðar á Austfjörðum, Norðurlandi og Vestfjörðum, þar sem bátakostur var ónógur, var einstaklingum veitt viðbótaraðstoð af atvinnuaukningarfénu, en eingöngu í þessum landshlutum til að efla bátastólinn. Á stað, sem við hv. 1. þm. Vestf. þekkjum báðir gjörla, þá var hjálpað íshúsi, sem var í vandræðum með að halda áfram rekstri og sveitarfélagið átti, og þar var veitt aðstoð til þess að kaupa ónotaða fiskimjölsverksmiðju, sem þurfti að endurbæta og þurfti að taka þarna í notkun, heldur en að búa við það ófremdarástand, að allur fiskúrgangur þessa pláss væri fluttur fram á bryggju, niður í bát og fluttur þaðan óunninn til Bolungarvíkur. Þannig var þessu plássi hjálpað um aukinn bátastól, um endurbætur á hraðfrystihúsi, sem sveitarfélagið átti, og með því að gera virka og nothæfa beinamölsverksmiðju, sem er þar á staðnum, en hefur verið ónotuð sem einstaklingseign í mörg ár. Þannig var atvinnulíf þessa pláss byggt upp og gengið á röðina á stöðunum að koma þar hjálpandi til, sem mest nauðsyn var á í atvinnulífinu í þeim landshlutum, sem fólksstraumurinn stefndi frá, en sá landshluti, sem tók á móti fólksstraumnum, fékk ekkert, aldrei eyri af því.

Í þessu frv. er ekkert um það, að það megi ekki veita hvert sem er á landinu þessu litla fé, sem sjóðurinn á nú að fá. Og ef það er meint og ekki bara mismæli hjá hv. 1. þm. Vestf., að þessi sjóður eigi ekki að koma hjálpandi til í atvinnuleysistilfellum, sem ég vona að sé bara mismæli, þá er hér alls ekki tryggt, að þessu litla fé verði varið eingöngu til framleiðslubóta í þeim héruðum, sem eiga við fólksflótta að stríða eða eiga hann vofandi yfir sér. En við það þarf sannarlega að takmarka verkefni þessa sjóðs. Annars verður hann ekki til aukins jafnvægis í byggð landsins.

Það má vel vera, að það sé út af fyrir sig frekar til bóta, að þetta frv. verði í formi atvinnubóta- og framleiðslubótafjár í eins konar sjóðsmynd, að gerð sé tilraun til að endurheimta eitthvað af því fé, sem áður hefur verið veitt til atvinnu- og framleiðslubóta, og að sérstök sjóðsstjórn sjái um úthlutun þessa fjár í staðinn fyrir nefnd manna, sem á undanförnum árum hefur verið kosin til þess frá ári til árs af Alþ. Það má vel vera, og ég get vel fallizt á, að það sé frekar eðlilegt form, sem þessu sé sniðið. En hitt er til hins verra, í staðinn fyrir að hafa þó allt að 15 millj. kr. til þess að gegna þessu ákveðna hlutverki, að fá nú aðeins til þess 10 millj., — það er til hins verra. Og það er engin von til þess, að stjórnarandstaðan lýsi neinum fögnuði yfir því. Og ég hefði haldið, að það væri sízt ástæða til þess af þm. í stjórnarliðinu, sem hafa verið og ég vil segja hljóta að vera áhugamenn um það, að þessu verkefni sé sinnt af myndarskap, þótt þeir séu í stjórnarliðinu, að vera að fagna í ræðu eftir ræðu yfir því, að upphæðin er lækkuð að beinni krónutölu og meira en lækkuð um helming, þegar miðað er við framkvæmdamátt þess fjár, sem til þess á að fara. Ég verð að segja, að það hlýtur að vera ósk okkar í stjórnarandstöðunni til þess síðasta að skora á stjórnarliðið, meiri hl. hér á Alþ., að endurskoða það, hvort ekki sé hægt að ætla a.m.k. svo mikið fé til þessa verkefnis, jafnvægis í byggð landsins, sem mest hefur verið veitt til þess — því að málið er ekki leyst — og að upphæðin sé við það miðuð, að hún sé a.m.k. ekki minni að framkvæmdamætti heldur en atvinnubóta- og framleiðsluaukningarféð hefur verið, þegar það var hæst, en það var um 15 millj. kr., og mundi þá ekkert duga minna til jafns við það en upp undir eða um 30 millj. kr. Allt annað er samdráttur og að sinna þessu verkefni verr en áður hefur verið gert.