29.03.1962
Neðri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)
155. mál, verkamannabústaðir
Þórarinn Þórarinsson:
Hæstv. forseti. Á þskj. 96 er frv., sem ég er flm. að ásamt tveimur þm. öðrum um breyt. á núgildandi l. um verkamannabústaði. Meginefni þess frv. er að tryggja byggingarsjóði verkamannabústaða aukið starfsfé og að hækka þau lán, sem veitt eru úr sjóðnum til einstaklinga, sem eru að koma sér upp verkamannabústöðum.
Eins og fram kemur í grg. frv., er þetta frv. fyrst og fremst flutt til að bæta úr hinni mest aðkallandi þörf, þ.e.a.s. þörf Þeirra einstaklinga, sem eru að festa kaup á þeim íbúðum, sem Þegar er búið að koma upp eða verið er að koma upp, en frv. hins vegar ekki miðað við framtíðarlausn þessa máls. Það er einmitt tekið fram í grg., að hið æskilegasta hefði verið, að öll löggjöfin um verkamannabústaði yrði tekin til rækilegrar endurskoðunar með það fyrir augum, að sú starfsemi, sem byggist á henni, yrði stórlega efld og aukin. Ég sé ástæðu til Þess í framhaldi af þessu að fagna Því, að hæstv. ríkisstj. hefur nú lagt fram nýtt frv. til laga um verkamannabústaði, þar sem verulegt tillit er tekið til þeirra tveggja meginatriða, sem felast í þessu frv. okkar þremenninganna á þskj. 96. Ég hefði hins vegar kosið, þar sem hér er um heildarendurskoðun verkamannabústaðalaganna að ræða, að á sumum sviðum hefði verið lengra gengið til þess að leysa úr þeirri þörf, sem hér er við að fást.
Ég nefni það þá fyrst, að ég tel nauðsynlegt, að það hefði verið tryggt nokkru riflegra framlag til byggingarsjóðs verkamannabústaða en gert er í frv., t.d. með því, eins og lagt var til af minni hl. félmn. í Ed., að auka framlag ríkissjóðs um helming frá því, sem gert er ráð fyrir í því frv., sem hér liggur fyrir. Enn fremur, að það væru bein ákvæði um það í frv. að tryggja hagstæð vaxtakjör. En í frv. er það lagt í vald Seðlabankans að ákveða, hverjir vextirnir séu. Eins og hæstv. félmrh. benti réttilega á hér áðan, er hagur þeirra manna, sem hér um ræðir, þannig, að það er nauðsynlegt, að vaxtakjörin séu sem allra hagstæðust, og það er að sjálfsögðu aukið öryggi fyrir því, að ákvæði um það sé í frv. sjálfu eða lögunum sjálfum, en það sé ekki á valdi óviðkomandi aðila að ákveða, hver vaxtakjörin séu. Þess vegna ber að vænta þess, ekki sízt með tilliti til þess, sem hæstv. félmrh. sagði um þetta mál hér áðan, að hann stuðli að því við meðferð málsins hér í d., að þetta verði tryggt í sjálfum lögunum, þ.e.a.s. hverjir vextirnir séu, en óviðkomandi aðili sé ekki látinn ákveða það. En það gefur auga leið, eins og hæstv. ráðherra benti á og ég hef áður minnzt á, að það fólk, sem á að njóta þeirrar aðstoðar, sem hér um ræðir, getur ekki staðið undir háum, óhagstæðum vaxtakjörum, og þarf ekki að ræða það nánar.
Þá væri nauðsynlegt í þriðja lagi að tryggja það í lögunum sjálfum, að sjóðnum yrði tryggt eitthvert ákveðið lánsfé. Það er ekki gert í frv., heldur aðeins sjóðsstjórninni heimilað að taka lán til starfsemi sinnar, en ekki neitt sérstakt gert til þess að tryggja, að sjóðurinn geti fengið slíkt lán. Frá Þessu atriði álit ég að þyrfti að ganga betur.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða. meira um Þetta mál á þessu stigi, en vænti þess, að hv. n., sem fær þetta mál til athugunar, íhugi sérstaklega þau atriði, sem ég hef hér minnzt á.