30.03.1962
Efri deild: 75. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1499 í B-deild Alþingistíðinda. (1225)
77. mál, Hæstiréttur Íslands
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Frv. Þetta um Hæstarétt Íslands hefur verið alllengi til athugunar hjá allshn., og leggur n. á þskj. 77 fram allmargar brtt. við frv., en eins og í nál. n. segir, er Það sameiginleg tillaga n., að frv. verði samþ. með Þessum brtt., auk þess sem einstakir nm. hafa áskilið sér að hafa óbundnar hendur, ef Þeir teldu Þörf á frekari breyt. eða ef fram kæmu brtt. við umr. málsins, sem Þeir teldu til bóta.
Ég skal ekki eyða tíma hv. d. í að rekja málið sjálft. Það var gert á sínum tíma af hæstv. dómsmrh., er hann gerði grein fyrir ástæðum Þess, að lögin um hæstarétt voru tekin til endurskoðunar, og að Þessari endurskoðun hafa unnið dómarar hæstaréttar og Theódór B. Líndal prófessor, þannig að hinir færustu menn hafa að Þessu máli unnið.
Það hefur einnig verið tekið til meðferðar í hv. Þd. frv. til nýrra einkamálalaga, en Það frv. er mjög mikill bálkur og við nánari athugun Þess máls Þykir sýnt, að ekki verði auðið að afgr. Það mál hér á Þessu Þingi, vegna Þess að Þar eru margvísleg atriði, sem nokkur ágreiningur er um og Þurfa nánari athugunar við, og er Því ekki að vænta, að tími vinnist til að afgr. Það mál. Ég vík að Þessu hér vegna Þess, að till. allshn. um breyt. á frv. um hæstarétt eru að nokkru leyti fram komnar með hliðsjón af því, að ný einkamálalöggjöf nái ekki fram að ganga á Þessu Þingi, því að Það var einmitt gert ráð fyrir því í frv. sjálfu um hæstarétt, að sú löggjöf yrði afgr. samtímis, og þar sem svo verður ekki, þá leiðir af eðli málsins, að það verður að gera af þeim ástæðum ýmsar breyt. á hæstaréttarfrv.
Ég skal með fáum orðum víkja að þeim brtt., sem n. flytur við frv., án þess að fara að ræða það ýtarlega, því að flest af Því eru tæknileg og lögfræðileg atriði, sem eru svo faglegs eðlis, að ég geri naumast ráð fyrir, að hv. þm. kæri sig um, að farið sé út í einstök atriði í þeim efnum, heldur láta mér aðeins nægja að gera grein fyrir orsökum þess í meginatriðum, að þessar brtt. eru fluttar.
Það er lagt til að gera nokkra breyt, við 8. gr. frv. Er Það aðallega um Það að setja nánari skýringu varðandi laun hæstaréttarritara, og er gert ráð fyrir, að með hliðsjón af Þeirri reynslu, sem sá maður hefur í starfi hverju sinni, verði heimilt að framkvæma nokkurn tilflutning milli launaflokka innan þess ramma, sem ákveðinn er í gr. Það Þykir hins vegar sjálfsagt að hafa þá heimild til flutnings takmarkaða mjög og afmarkaða við Þá launaflokka, sem hér greinir.
Í nokkrum greinum hefur verið lagt til í frv. um hæstarétt, eins og Það liggur fyrir, svo sem í 16. gr. um áfrýjunarleyfi, og raunar kemur Það víðar fyrir í frv., að Þar hefur Það vald verið fært frá dómsmrn. yfir til hæstaréttar. Það er skoðun n., að í ýmsum þessum tilfellum sé slíkur flutningur ekki eðlilegur, og Því er í nokkrum tilfellum lagt til, að þessu verði aftur breytt í fyrra horf, að Það verði dómsmrh., sem hafi Það vald með höndum.
Þá er í frv. í 20. gr. lagt til, að það sé styttur frestur, sem verði að veita áfrýjunarleyfi innan, þ.e.a.s. í frv. er gert ráð fyrir, að Það verði innan fjögurra mánaða. N. þykir ekki ástæða til efnislega að gera á þessu breyt. frá því, sem áður var, aðeins skapa þannig rugling, og Því leggur hún til, að fyrra ákvæði um það gildi, 6 mánuðir.
4. brtt., við 25. gr. frv., sem er alllöng, byggist á því, sem ég áðan vék að, að þær breytingar, sem gert er ráð fyrir í einkamálalöggjafarfrv., verða ekki lögfestar á þessu þingi, og af því leiðir, að ekki er aðeins vísað til laganna um Það, eins og gert er í frv., heldur eru tekin inn bein ákvæði varðandi það efni, sem hér um ræðir, og allir þessir töluliðir og stafliðir eru settir inn vegna þess, að það er óumflýjanlegt, með hliðsjón af því, að hitt frv. verður ekki afgreitt.
Þá er 5. brtt. með öllum undirliðum, þar sem lagt er til að taka inn í frv. allmargar nýjar greinar. Allar þessar breyt. byggjast á Því, að einkamálalöggjafarfrv. verður ekki afgr. í því formi, sem Það hefur verið lagt fram nú, og af Þessum sökum þarf af formlegum ástæðum að taka hér inn þessi ákvæði öll, til þess að frv. um hæstarétt, eins og það er hugsað, og öll uppbygging þessarar löggjafar komi að fullu haldi, ef það mál verður afgr. hér á hinu háa Alþ. eitt út af fyrir sig.
Ég tel ekki ástæðu til, nema frekara tilefni gefist til, að rekja Þetta í einstökum atriðum. Þetta eru allt tæknileg atriði, sem hér er um að ræða.
Það er allveigamikil breyt. frá gildandi l., sem lagt er til í 32, gr. frv. að gerð verði, og er þar um að ræða víðtæka breyt. frá því, sem tíðkazt hefur um málflutning fyrir hæstarétti eða undirbúning mála þar. Þetta mál hefur verið allmikið athugað, og Lögmannafélagið hefur lagzt mjög gegn því, að þessi breyt. yrði gerð, og talið, að með því móti væri í rauninni burt fallinn grundvöllur undir munnlegum málflutningi fyrir hæstarétti, en munnlegur málflutningur er, sem menn vita, meginregla í íslenzku réttarfari nú, og n. hefur talið rétt að fallast á þetta sjónarmið og leggur því til, að tveir síðustu málsl. 32. gr. verði niður felldir.
Síðasta breyt., sem hér er um að ræða, sú 9., er algerlega formlegs eðlis með hliðsjón af öðrum breyt., en 8. brtt. er einnig mjög smávægileg og aðeins til Þess, að eðlileg merking fáist út úr Þeirri setningu, sem Þar um ræðir, en ekki um efnislega breytingu að ræða.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, nema frekari tilefni gefist til, að vera að ræða þetta mál í einstökum atriðum. Það er ekki óeðlilegt, að sett séu ný lög um hæstarétt, því að hæstaréttarlögin eru orðin gömul, og því eðlilegt, að reynslan hafi sýnt, að ýmsa nýja starfshætti kunni að verða að taka þar upp. Það er sem sagt sameiginleg till. n., að frv. verði afgr. með þeim breyt., sem n. leggur til að gerðar verði á þskj. 523.