06.04.1962
Neðri deild: 85. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)

77. mál, Hæstiréttur Íslands

Frsm. minni hl. (Gunnar Jóhannsson):

Herra forseti. Frv. um Hæstarétt Íslands var flutt í Ed. af hæstv. dómsmrh. Allshn. Ed. bar fram allmargar brtt. við frv. Voru þær samþ. Með samþykktum þeirra hefur frv. tekið allmiklum breyt. frá því, sem það var, þegar það var lagt fram. m.a. hefur verið bætt inn í frv. 12 nýjum gr., eins og hv. frsm. gat um, og greinatalan hefur breytzt í samræmi við það.

Á þeim eina fundi, sem allshn. Nd. hélt um frv., var hvorki frv. sjálft, eins og það var lagt fram af hæstv. dómsmrh., né þær breyt., sem á því voru gerðar í Ed., ræddar að neinu ráði. Það er í sjálfu sér rétt, að svo framarlega sem frv. á að ná fram að ganga á þessu þingi, var naumur tími til þess að athuga það eins gaumgæfilega og þurft hefði. Þessu frv. fylgja a.m.k. tvö önnur frv., en þau eru frv. til I. um breyt. á l. um málflytjendur, sem hér var tekið fyrir áðan í hv. d., og frv. til l. um meðferð einkamála í héraði. Auk þess var svo í vetur afgr. frv. til l. um dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimtu o.fl. í Reykjavík. Við umr. um það mál hér í hv. d. varð ekki betur skilið en að búast mætti við því, að öll þessi frv. yrðu afgr. nú á þessu þingi, enda er það mála sannast, að þau grípa að meira eða minna leyti hvert inn í annað.

Nú hafa þessi mál skipazt þannig, eftir því sem bezt verður vitað, að frv. um málflytjendur mun eiga að samþykkjast hér á þessu yfirstandandi þingi, en frv. um meðferð einkamála í héraði hefur mætt svo mikilli andstöðu af hendi Lögmannafélags Íslands og fleiri aðila, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki séð sér fært að halda Því til streitu. Ég hef rætt um það frv. ásamt hinum frv. við nokkra meðlimi Lögmannafélagsins og fleiri aðila. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef þar fengið, hef ég sannfærzt um það, að við frv. um meðferð einkamála í héraði er margt að athuga og nauðsynlegt, að á því verði gerðar allvíðtækar breyt., áður en það yrði að lögum.

Á fundinum í allshn. spurðist ég fyrir um það, hvort ekki væri hægt að ná samkomulagi um það, að frv. um hæstarétt yrði vísað til hæstv. ríkisstj. til nánari athugunar, m.a. af þeim ástæðum, að nokkuð víst mætti teljast, að frv. um meðferð einkamála í héraði mundi ekki verða afgr. á þessu þingi. Gengið út frá því sæi ég ekki neina sérstaka ástæðu til þess, að frv. um hæstarétt næði fram að ganga á þessu þingi. Um þetta náðist ekki samkomulag, og klofnaði n. um afgreiðslu frv.

Meiri hl. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en ég legg til sem aðaltill., að frv. verði vísað frá með rökst. dagskrá. Til vara hef ég leyft mér að flytja nokkrar brtt. við frv. Flestar þeirra eru í samræmi við ábendingar, sem fram komu í áliti Lögmannafélagsins, en það lá fyrir n. Þetta álit hef ég leyft mér að birta sem fskj. með nál. mínu. Ég hef haft samráð við nokkra meðlimi þessa félags og reyndar fleiri aðila um tillögurnar, og eru þeir, eftir því sem ég bezt veit, þeim samþykkir og telja þær til bóta. Brtt. mínar eru Þá eftirfarandi.

Það er við 5. gr., að í stað „30“ í 3. tölul. komi: 35. Rétt virðist, að hæstaréttardómarar hafi öðlazt þá mannþekkingu, reynslu og þroska, er fylgir 35 ára aldri, enda eru miklar kröfur gerðar til manna, sem hljóta þessi virðulegu embætti, og verður að telja, að þroski manna á árunum frá 30–35 ára hafi vaxið allmikið, enda eru miklar kröfur gerðar til þeirra manna, sem skipaðir eru sem dómarar í hæstarétti.

Þá er, að á eftir 7. gr. komi ný gr., svo hljóðandi, og breytist greinatalan samkv. því: „Hæstaréttardómurum er bannað að taka að sér launuð aukastörf. Þó mega þeir taka ritlaun fyrir að semja lögfræðirit“. Þessi nýja gr. verður þá 8. gr. Það hefur viljað við brenna, svo að notað sé orðalag aths. frv., að hæstaréttardómarar taki að sér að vera yfirmatsmenn, gerðardómsmenn, frumvarpssemjendur, álitsgerðarmenn o.s.frv., oft og einatt fyrir ríkisstj. gegn sæmilegri þóknun. Þá hafa þeir og auglýst sig sem skiptaforstjóra í dánarbúum. Eru laun fyrir slík störf vitanlega drjúgar tekjur. En vitaskuld rýrir slíkt og þvílíkt það traust, er nauðsyn ber til að borið sé til dómara í æðsta dómstóli landsins. En þegar ríkisstj. stendur í að útvega dómurum slíkar aukatekjur, er hlutleysi dómaranna í málum ríkisstj. ekki jafnöruggt og tvímælalaust sem ella væri.

Sjálfsagt er, að dómarar víki sæti, er svo er ástatt, sbr. 6. gr. frv. 5. tölul. Verður þá að setja setudómara í hæstarétti á ríkisins kostnað.

En það er ekki eini agnúinn á þessari skipan mála, heldur hitt, að þá eiga aukadómendur e.t.v. að fjalla um lögmæti verks hinna föstu dómara. Hætt er við, að aukadómarar mundu hika við að gagnrýna störf hæstaréttardómaranna, ef því væri að skipta, og er það mannlegt, svo mikið vald sem hæstarétti er fengið í litlu þjóðfélagi.

Þá er 3. brtt., að í staðinn fyrir „5000 krónur“ komi: 3000 kr. Fátækir menn með smáar kröfur eiga einnig að fá að leita réttar síns. Slíkt eru almenn mannréttindi. En ekki tjáir að bera saman áfrýjunarfjárhæð hér og í Danmörku, eins og gert er, því að þar eru tveir þriggja manna landsdómar, er svara til eins manns héraðsdóms hér á landi, en eðlilegt má telja, að mönnum falli þungt að una eins manns dómi.

Þá er 4. brtt. mín við 15. gr., að í stað „hæstiréttur“ komi: ráðherra. Ekki virðist ástæða til að láta hæstarétt þurfa að skipta sér af mati og áfrýjunarfjárhæð, enda hefur 16. gr. frv. verið breytt í sömu átt. Virðist rétt að hafa samræmi milli þessara lagaákvæða.

Og 5. brtt. er við 21. gr. Það er, að liðurinn falli burt. Það verður ekki séð, að nokkur frambærileg ástæða sé til að breyta 40 ára venju um annað eins smáatriði og þetta. Breyt. virðist því eiga fullan rétt á sér.

Þá er það við 34. gr., orðið „fyrsta“ í 4. mgr. verði: siðasta. — Og við 40. gr. er 7. brtt., að á eftir orðunum „og flytur mál sitt“ komi: skriflega. — ótækt virðist að flytja mál munnlega, þegar enginn er til andsvara, enda hefur það aldrei átt sér stað hér á landi.

Þá er það 8. brtt. Hún er við 41. gr., að í staðinn fyrir „fjögurra“ komi sex. Afgreiðsla dómsmála dregst oft mánuðum saman og fjölritun ágripa tekur langan tíma eftir reynslunni, og virðist því sá tími sízt of langur.

En þá er það brtt. við 44. gr., að gr. falli burt og breytist greinatalan samkvæmt því. Það virðist a.m.k. ekki mikil ástæða til slíkrar greinargerðar fyrir hæstarétti eftir ýtarlegar greinargerðir í héraði. Um þetta atriði segir svo, með leyfi hæstv. forseta, í bréfi frá Lögmannafélagi íslands: „Ýmis verk eru falin hæstarétti í þessu frv., er aðrir hafa áður annazt, svo sem áfrýjunarleyfi samkv. 15.–16. gr. frv., umsögn samkv. 20. gr. og endurupptaka að gengnum hæstaréttardómi. Virðist oss réttara að halda þeirri reglu, er verið hefur, að hæstiréttur þurfi ekki að fást við slíka hluti. Áfrýjunarupphæð hefur verið hækkuð úr 50 kr. í 5 þús. Við teljum slíkt of stórt stökk, enda ber að hafa í huga, þegar dómstig eru aðeins tvö, að varhugavert er að takmarka áfrýjunarrétt svo mjög, enda eru málaferli oft og einatt ekki fjáröflun, heldur liggur meira við en fjármunir einir. Frv. gerir ráð fyrir breytingum á gildandi skipulagi, án þess að séð verði, að nauðsyn beri til. Má nefna í því sambandi styttingu frests til áfrýjunarleyfis úr 6 í 4 mánuði samkv. 20. gr., þingfestingu máls á fyrsta þingdegi þess mánaðar, er til er stefnt, í stað þess siðasta, eins og tíðkazt hefur. Tradisjónir í þessu þjóðfélagi eru ekki svo margar, að ástæða sé til að afnema Þær, ef ekkert heldur til slíks. Eigi virðist ástæða til munnlegs málflutnings, ef stefndur sækir eigi þing, sbr. 28. og 36. gr.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða frekar um þessa grein, en sem sagt: ég legg til í mínum brtt., að hún verði felld burt.

Við 47. gr. legg ég til, að orðin „og 44.“ falli burt. Það er í samræmi við það, sem á undan er gengið. Og á eftir orðunum „skriflegan málflutning“ komi: ef sérstaklega er ástatt.

Við 56. gr. er brtt. Við bætist ný mgr., svo hljóðandi: „Leggja skal berum orðum dóm á hverja Þá málsástæðu, sem fram er borin.“ Ótækt virðist, að dómarar hæstaréttar séu eins og véfréttir eða einhliða málflutningur, slíkt rýrir það traust, er nauðsyn ber til að dómarar í æðsta dómstóli þjóðarinnar njóti, enda er svipuð regla lögmæt í mörgum mestu menningarlöndum heims.

Og þá er að lokum síðasta breyt. Það er við 59. gr., að í stað „hæstaréttar“ komi: ráðherra. — Það er í samræmi við aðrar brtt., sem ég hef hér lýst.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þessar brtt. Þær eru fram fluttar og um þær hef ég haft samráð við lögfræðinga, sem telja, að þær séu til mikilla bóta frá því, sem frv. er nú, þrátt fyrir það, þó að þeir hafi viðurkennt og flestir muni viðurkenna, að þær breyt., sem gerðar voru á frv. í Ed., séu flestar eða allar til bóta. En þar sem, eins og ég gat um áðan, frv. um meðferð einkamála í héraði mun ekki hljóta afgreiðslu á þessu þingi, sé ég ekki neina sérstaka ástæðu til að mæla með því, að frv. um Hæstarétt Íslands nái nú fram að ganga. Samkv. því legg ég til, að málið verði afgr. með svo hljóðandi rökst. dagskrá:

„Með því að sýnt er, að frv. til l. um meðferð einkamála í héraði nær eigi fram að ganga á þessu þingi, og þar eð lög um hæstarétt hljóta jafnan að miðast við þau í veigamiklum atriðum, ákveður d. að fjalla eigi frekar um þetta frv. að sinni og tekur fyrir næsta mál á dagskrá:

Og til vara hef ég leyft mér að flytja þær brtt. við frv., sem ég hef hér lýst, svo framarlega sem rökst. dagskráin verður felld. Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um brtt.